Vikan - 24.06.1982, Blaðsíða 15
Fjölskyldumál
ir að það kemst á skólaald-
ur. Þörf þess fyrir viður-
kenningu eykst oft einnig
og það vill teikna, smíða
eða sauma ýmsar gjafir
sem tákn um hlýjar til-
finningar til föður síns. Á
þessum aldri er barnið oft
mjög upptekið af að fá
ýmsa hluti sjálft. Það fer
einnig að sýna lífi föðurins
meiri áhuga og spyr meira
en áður. Oft fer barnið fyrst
nú að sýna óhlýðni og
slæma hegðun í heimsókn
hjá föður ef það er ósátt við
hann af einhverri ástæðu.
Hins vegar vefst sjaldan
fyrir því að skipta um um-
hverfi og það getur ýmist
verið mömmu- eða pabba-
barn án sýnilegrar
áreynslu.
Eldri börn
vilja sveigjan-
leika í
umgengni
Eldri skólabörn eru hins
vegar búin að öðlast sterka
réttlætiskennd og þau geta
ekki notið heimsóknar ef
þau finna til höfnunar, sár-
inda eða reiði út í föður. Oft
koma fram óskir hjá börn-
um og unglingum að breyta
eða fresta heimsóknum
vegna þess að þau vilja
heldur umgangast félaga
sína. Þau vilja þó sjaldnast
fresta heimsóknum til
langs tíma en eru meira að
gefa merki um að sam-
bandið sé að þróast í nýja
átt og það þurfi að vera
sveigjanlegt.
Á unglingsárunum verð-
ur samband föður og ungl-
ings æ meir undir því kom-
ið að þeir hafi sameiginleg
áhugamál og geti umgeng-
ist eins og tvær manneskj-
ur óháðar blóðböndum. Á
þessum tíma á unglingur-
inn einnig til að sýna endur-
nýjaðan áhuga á föður og
hans fólki og má líta á það
sem lið í uppgjöri unglings-
áranna þegar svo mikill
kraftur fer í að takast á við
uppruna sinn og reyna að
svara áleitnum spurning-
um um hver hann er, þessi
einstaklingur sem er að
vaxa og þroskast.
Barnið
breytist hratt
Sunnudagsfaðir hefur
ekki tækifæri til að fylgjast
með daglegu lífi barnsins
síns. Hann verður að
treysta á þær svipmyndir
sem hann fær af barninu í
heimsóknum og geta síðan
í eyðurnar. Ef barnið er
komið nokkuð á legg getur
það oft sjálft haft samband
hvenær sem því dettur í
hug og þá er áreynslulítið
fyrir föðurinn að fylgjast
með eða taka þátt í lífi
barnsins og þroska.
En oftar er um að ræða
fyrirfram ákveðnar heim-
sóknir sem barn og foreldri
búa sig undir hvort í sínu
lagi. Báðum er mikilvægt
að tíminn með hvort öðru
sé vel notaður. Þess vegna
reyna flestir sunnudags-
pabbar að gera eitthvað
með börnum sínum og
reyna að vera vel upplagðir
þegar þeir hitta þau.
Heimsóknir sem eru
skipulagðar geta gengið
ágætlega um langan tíma
og geta skapað öryggi í
sambandi föður og barns.
Feður taka hins vegar oft
eftir því að barn fer smám
saman að breytast; að
hluta til vill það ennþá hafa
sama formið á heimsókn-
um en að hluta til vill það
endurskoða samninginn við
föður og breyta honum þeg-
ar ný áhugamál og félagar
koma inn í myndina. Stund-
um verður sprenging,
óhlýðni og neikvæðni nær
yfirhöndinni, svo faðir
barnsins veit ekki lengur
sitt rjúkandi ráö.
Þegar svo er komið er oft
auðveld lausn að halda að
barninu sé spillt á einhvern
hátt eða einhverjir einstak-
ir atburðir oi saki breyting-
una á hegðan barnsins.
Hér er þó oftast um að
ræða meiriháttar breyt-
ingu á viðhorfum hjá barn-
inu sem þó hefur lengi ver-
ið að þróast innra með því.
Þessi breyting hefði verið
foreldrinu augljós ef það
hefði átt þess kost að sjá
barnið og heyra oftar en
hálfsmánaðarlega. Nýjar
þarfir kalla á breytt við-
brögð og eltingaleikurinn
um íbúðina, sem var orðinn
að hefð fyrir háttatíma,
verður allt í einu barnaleg-
ur. Sama má segja um bíla-
getraunina í ökuferðum
sem allt í einu má ekki
nefna nema drengurinn sé
einn með föður sínum. Slík
viðbrögð geta gert fööur
undrandi og leiðan, ekki
síst af því að þau koma
yfirleitt skyndilega.
Þó tímabundnir erfiðleik-
ar komi upp í sambandi
föður og barns er í lang-
flestum tilfellum hægt að
leysa málið með barninu.
Það hefur mesta þýðingu
að hlusta vel, fylgjast með
breytingum og styðja og
örva barnið. Orð og athafn-
ir föður sem barnið hittir
sjaldan hafa mjög mikla
þýðingu. Því miður virðast
margir feður ekki gera sér
grein fyrir þessu mikil-
vægi sínu, eru óstundvísir
eða breyta heimsóknum
með litlum eða engum
fyrirvara og svo framveg-
is. Börnum er mikilvægt að
foreldrar þeirra haldi lof-
orð sín. Barni, sem elst upp
með móður, er mikilvægt
að vita að það eigi föður
sem leggur eitthvað í
sölurnar til að vera með því
í virku starfi eða leik. Þá
skiptir ekki höfuðmáli
hvort öndunum er gefið,
sparkað bolta eða farið í
leikhús. {11
25. tbl. Vikan 15