Vikan - 24.06.1982, Blaðsíða 51
Höggí
andlitið
Kæri draumráðandi:
Eg ætla að biðja þig um
að ráða eftirfarandi
draum:
Mér fannst ég vera
stödd t húsi vinkonu
minnar, en þó var hún
ekki þar. Eg vissi að inni
var fullt af fólki og allt
inni í herbergjunum og
enginn sást. Mér fannst
þetta fólk vera að horfa á
bíómyndir (ath. ekki
video). Svo kom allt þetta
fólk fram og streymdi út
og varðþar troðningur.
Þá sá ég þar mann
(rauðhærðan) ásamt tveim
börnum, sem kona hans
á, dreng og stúlku.
Maðurinn leiddi strákinn
en ekki stúlkuna. Þá hras-
aði litla stúlkan (henni var
hrint) en fósturfaðir henn-
ar og bróðir voru komnir
fram í dyrnar. Maðurinn
leit aftur fyrir sig og reiði-
svipur kom á hann. Hann
sleppti drengnum sem
barst með straumnum og
út á stétt. Maðurinn fikr-
aði sig aftur upp og þreif í
handlegg stúlkunnar,
kippti henni upp og var
mjög harðhentur. Hann
dró hana til dyra þar sem
ég stðð. Eg horfði fast á
hann og sýndi honum
fyrirlitningu og andúð.
Hann snarstansaði og leit
reiðilega á mig. Hann
sleppti stúlkunni og hélt
allt í einu á svartri
gúmmílengju (eins og er
við dyrnar innan í bílum)
og sló mig með henni
þvert yfir andlitið. En ég
biá ekki r^semi minni (í
daglegi lífi er ég fljót
upp) eldur tók ég lengj-
una hægt og rólega úr
hendi hans og þurfti ekki
einu sinni að toga. Síðan
tók ég um hann og skellti
honum f gólfið og þar lá
hann. Ég gekk út, lét
börnin leiðast og sagði
drengnum að gæta systur
sinnar.
Svo bara allt í einu var
ég komin inn í lítið hús
og á veggjum var viður,
fura, og í eldhúsinu var
innréttingin úr dökkum
viði. Þar bjó kona, vin-
kona vinkonu minnar sem
býr í húsinu. Hún átti
dökkhærða dóttur með
dökk augu. Hún (stúlkan)
var mjög falleg. Mér
fannst hún heita Sara og
vera átta ára. Móðirin hirti
mjög lítið um hana og var
ekki heima en ég var að
passa hana. En hún var
hlédræg og sagði ekki orð
við mig. Svo var ég komin
út og var að ganga niður
smábrekku þegar ég mætti
rauðhærða manninum og
konu hans og leiddu þau
börnin á milli sín. Öll
voru þau brosandi og
ánægð, sérstaklega konan.
Þar með endaði draumur-
inn.
Stella.
Báðir hlutar draumsins
endurspegla sterka
ábyrgðartilfinningu sem þú
hefur í vökunni og stjórnar
miklu í lífi þínu. Fyrri hlut-
inn boðar þér talsverðar
sviptingar í tilfinningalíf-
inu og verða þær nú alveg
á næstunni. Þar er mikil-
vægt að halda stillingunni
undir öllum kringumstæð-
um. Hjónin í draumnum
geta átt von á áframhald-
andi erfiðleikum sem verða
erfiðari viðureignar eftir
því sem lengra líður. Litla
stúlkan í síðari hluta
draumsins er svo einungis
árétting þess sem fyrr er
komið fram.
Allt um
ungbarn
Kæri draumráðandi.
Mig dreymdi að ég væri
búin að eignast barn. Eg
hafði verið svo veik á
spítalanum að ég fékk
ekki að taka barnið með
mér heim en þarna var ég
á leiðinni að sækja það.
Mér fannst ég vera mjög
þreytt og veik ennþá. Eg
gekk inn um dyrnar á
spítalanum og var þá
stödd í barnafataverslun
sem var ætluð til að kaupa
föt á börn áður en farið
væri heim með þau. Eg
fór í gegnum verslunina
og niður hringstiga og þar
voru mörg barnarúm.
Hjúkrunarkona kom til
mín og ég sagði henni að
ég héldi að dóttir mín
væri þarna en ég hafði
aldrei séð hana sjálf.
Konan gengur að einu
rúminu og tekur upp stóra
stelpu me>ð mikið hár en
það var ekki mín stelpa.
Hún lá undir þeirri fyrri
og var minni og með
minna hár.
Eg tók barnið mitt, fór
með það upp og ætlaði að
kaupa eina bleyju, buxur
og galla.
Þá birtist vinkona mín
og lét mig kaupa nokkrar
bleyjur, fernar nærbuxur
Draumar
og galla. Síðan fór hún
heim með mig og ég lagð-
ist í rúmið hennar og
barnið mitt setti ég í rúm
barnsins hennar. Þá birtist
bróðir mannsins míns,
klæddi barnið úr öllum
fötunum og lét það liggja
þannig. Svo fór hann að
kyssa mig. Mér fannst ég
vakna upp í draumnum
og fannst ég yrði að
hringja í mömmu og biðja
hana að ráða drauminn
fyrir mig. Svo vaknaði ég
fyrir alvöru og nú langar
mig að vita hvort þetta
þýðir eitthvað sérstakt.
Með þakklæti.
E.H.
Einhvern veginn finnst
draumráðanda að þessi
draumur endurspegli kvíða
og áhyggjur í vökunni (ef
til vill ómeðvitaðar). Sé
þessi draumur hins vegar
ráðinn sem tákndraumur er
ýmislegt framundan og
ólíkt, bæði góð heilsa
(veikindi þín og þreyta) og
eins óþægindi og jafnvel
veikindi. Eins og þú sérð er
þetta ekki vel rökrétt og
þess vegna engin sérstök
ástæða til að hafa áhyggjur
af því. Hins vegar ber þessi
draumur það glögglega
með sér að þér hættir til að
ofgera þér og reyna allt of
mikið á þig og það kemur
mjög illilega niður á þér
fyrr eða síðar svo full
ástæða er til að hvetja þig
til að taka ekki meira að þér
en þú veldur og vega og
meta hvað skiptir máli, oft
er fólk að þreyta sig á því
sem vel má sleppa. Það
virðist lítil hætta á að þú
verðir aðgerðalaus samt og
þú skalt forðast leiðindi og
sálrænt álag (nöfnin í
draumnum bera vott um
sviptingar í skapferli).
Z5. tbl. Vlkan 51