Vikan


Vikan - 24.06.1982, Síða 35

Vikan - 24.06.1982, Síða 35
Roger Moore í s.o.s. Hann er tákn fyrir hina fullkomnu karl- mennsku... á hvíta tjaldinu. En heima fyrir er hann ósköp venjulegur og tekur virkan þátt í ýmiss konar félagsstarfsemi. Til dœmis er hann formadur félags sem fjallar um málefni hreyfi- taugalamaöra (spastic). Félagiö á um þessar mundir 30 ára afmaeli. Yfir 300 manns gefa nú vinnu sína íþágu góds málefnis og í vor var haldin mikil hátíö til styrktar hreyfitaugalömudum. Opinber Ijósmyndari félagsins og sá sem tók meö- fylgjandi mynd er David Bailey, heimsfrœgur í sinni stétt, og einnig hann gefur alla vinnu sína. JAPÖNSK STÓRSLYSAMYND Þeir sem búa í og i nágrenni við Tókýó hafa mátt búast við sterk- um jarðskjálfta siðan 1970. Engar stórhræringar hafa þó átt sér stað á undanförnum árum. Síðasti jarðskjálfti sem kvað að var árið 1923 en þá fórust 200 þúsund manns. En Japanir eru hugvitssamir og láta sig ekki muna um að framkalla svo sem einn jarðskjálfta ef þess þarf með á kvikmyndatjaldinu. Leikstjórinn Kenjiro Oomori og brellusérfræðingurinn Akiyoshi Nakano hafa nýverið lokið við gerð ákaflega áhrifamikillar hamfarakvikmyndar, JISHIN RETTO (Jarðskjálftaeyjarnar). Leikmynd og tækni við gerð myndarinnar er sögð svo listagóð að hamfarirnar verða mjög sannfærandi, jafnvel fyrir þá sem eru orðnir langþreyttir á stórslysamyndum. Likan af Tókýó fyrir og eftir „hörmungarnar". 25- tbl. Vikan 35

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.