Vikan - 19.05.1983, Page 16
■
mm
Meistarí
/eiksins
Sidney She/don
Viðskiptaskólinn í Jóhannesar-
borg var nýtt og spennandi ævin-
týri. Þegar Kate var í Chelten-
ham, stúlknaskóla í Englandi sem
hafði á sér gott orö, hafði þaö
verið erfiðisverk, óþægindi sem
hún varð að leggja á sig. Þetta var
öðruvísi. I hverjum bekk lærði hún
eitthvað gagnlegt, eitthvað sem
myndi koma henni að haldi þegar
hún tæki við stjórn fyrirtækisins
sem faðir hennar hafði sett á
stofn. Námskeiöin spönnuðu
bókhald, framkvæmdastjórn,
alþjóðaviðskipti og viðskipta-
stjórn. Og hún var heima í Suöur-
Afríku. Einu sinni í viku hringdi
David til að vita hvernig henni
gengi.
„Ég elska þetta,” sagði Kate
honum. „Þetta er verulega
spennandi, David.”
Einhvern daginn myndu þau
David starfa saman, hlið við hlið,
seint um kvöld, alveg ein síns liðs.
Og á einu þessara kvölda myndi
David snúa sér að henni og segja:
„Kate, ástin min, ég hef verið eins
og blindur auli. Viltu giftast mér?
Og andartaki síðar myndi hún
hvUaífaðmi hans...
En það varð að bíða. Þangað til
þurfti hún ýmislegt að læra. Kate
sneri sér ákveðin að lexíunum.
Viðskiptanámskeiðið var í tvö
ár og Kate kom nægilega snemma
heim í suður-afríska bæinn Klip-
drift til að halda upp á tuttugasta
afmælisdaginn. David tók á móti
henni á stöðinni. Osjálfrátt
varpaöi Kate handleggjunum um
hann og faðmaöi hann að sér. „0,
David, ég er svo glöð að hitta þig.”
Hann dró sig frá henni og sagði
stirðlega: „Það er gaman að sjá
þig, Kate.” Framkoma hans var
óþægilega þvinguð.
„Er eitthvaðað?”
„Nei. Það er — það er bara það
að ungar stúlkur faðma karlmenn
ekki að sér opinberlega.”
Hún horfði andartak á hann.
„Ég skil. Ég lofa því að þú þurfir
ekki að fara hjá þér mín vegna
framar.”
Meðan þau óku heim að húsinu
skoðaði David Kate svo lítið bar á.
Hún var heillandi fögur stúlka,
saklaus og auðsærð og David var
staöráðinn í að notfæra sér það
aldrei.
Á mánudagsmorgni flutti Kate
inn í nýju skrifstofuna sína hjá
Kruger-Brent hf. Það var líkt og
að falla skyndilega inn í framandi
og einkennilegt sólkerfi sem hafði
sína eigin siði og eigiö mál. Þar
var að finna flókið safn af
deildum, undirdeildum, svæða-
deildum, rétthöfum og útibúum
erlendis. Vörurnar sem fyrirtækið
framleiddi eða átti virtust
óþrjótandi. Þarna voru stálver,
nautgripabú, járnbraut, frakt-
skipafélag og auðvitað undirstaða
auðæfa fjölskyldunnar: demantar
og gull, sink og hvítagull og
magnesíum, grafið upp úr námum
allan sólarhringinn og streymdi í
fjárhirslur fyrirtækisins.
Vald.
Þetta var nærri því of mikið að
meðtaka. Kate sat í skrifstofu
Davids og hlustaði á hann taka
ákvarðanir sem höfðu áhrif á
þúsundir manna um allan heim.
Framkvæmdastjórar hinna ýmsu
deilda gerðu tillögur en David fór
allt eins mikið að eigin ráðum.
„Því gerirðu það? Kunna þeir
ekki störf sín?” spurði Kate.
„Auðvitað gera þeir það en það
er ekki aðalatriðið,” útskýrði
David. „Hver einstakur
framkvæmdastjóri lítur á sína
deild sem miðju heimsins og
þannig á það líka að vera. En
einhver verður aö hafa heildarsýn
yfir fyrirtækið og ákveöa hvað sé
best fyrir það. Komdu. Viö eigum
að borða hádegisverð með manni
sem ég vil að þú hittir.”
David fór með Kate inn í stóru
einkaborðstofuna sem var við
skrifstofu Kate. Ungur beinaber
maður með magurt andlit og
spurul brún augu beið eftir þeim
þar.
„Þetta er Brad Rogers,” sagði
David. „Brad, heilsaðu nýja
yfirmanninum þínum. Kate
McGregor.”
Brad Rogers rétti fram höndina.
„Gleður mig að kynnast þér, ung-
frú McGregor.”
„Brad er leynivopnið þitt,”
sagði David. „Hann veit jafnmikið
um Kruger-Bent hf. og ég. Ef ég
hætti einhvern tíma skaltu ekki
hafa áhyggjur. Brad verður til
staðar.”
Ef ég hætti einhvern tíma.
Tilhugsunin sendi skelfingar-
bylgju um Kate. Auðvitað myndi
David aldrei hætta í fyrirtækinu.
Kate gat ekki um annað hugsaö
yfir hádegisverðinum og þegar
honum var lokið hafði hún ekki
hugmynd um hvað hún hafði
borðað.
Kate hafði ákaflega gaman af
nýja lífinu. Við allar ákvarðanir
voru milljónir punda í húfi. Stór
viðskipti voru gáfnaþraut, hug-
rekki til að taka áhættu og eðlis-
ávísun um hvenær ætti að hætta og
hvenær halda sínu striki.
„Viöskipti eru leikur,” sagði
David við Kate, „þar sem spilað
er um ofboöslegar fjárhæðir og þú
ert að keppa við sérfræðinga. Ef
16 Vikati 20. tbl.