Vikan


Vikan - 19.05.1983, Síða 18

Vikan - 19.05.1983, Síða 18
„Þaö er stundum mest spenn- andi,” sagði hún sakleysislega. „Faðir minn sagði mér að þú værir ákaflega mikilvægur maður, hr. Blackwell.” „Eiginlega ekki — og ég heiti David.” Hún kinkaði kolli. „Þaö er gott nafn. Það gefur til kynna mikinn styrk.” Aður en máltíöinni lauk haföi David komist að því að Josephine O’Neil var mikið fleira en bara fögur kona. Hún var greind, haföi kímnigáfu og kunni á því lagið aö láta honum líöa vel. David fannst hún hafa innilegan áhuga á sér. Hún spurði hann spurninga um sjálfan sig sem enginn hafði spurt hann áður. Þegar kvöldinu lauk var hann þegar orðinn hálfvegis ástfanginn af henni. „Hvar búið þið?” spurði David Tim O’Neil. „SanFrancisco.” „Fariö þið fljótlega þangað aftur?” Hann reyndi að hljóma jafnhirðulaus og honum var unnt. „í næstu viku.” Josephine brosti til Davids. „Ef Klipdrift er jafnathyglisverður bær og allt bendir til að hann sé gæti ég kannski talið pabba á að verahér lengur.” „Ég hef í hyggju að gera hann svo áhugaverðan sem ég get,” fullvissaði David hana. „Hvernig þætti þér að fara niður í demanta- námu?” „Við yrðum hrifin af því,” svaraöi Josephine. „Þakka þér fyrir.” Einu sinni hafði David í eigin persónu fylgt mikilvægum gestum niður í námurnar, en hann hafði fyrir löngu eftirlátið undirmönn- um sínum það starf. Nú heyrði hann sjálfan sig segja. „Hentar það í fyrramálið?” Hann átti að sitja ýmsa fundi þennan morgun en allt í einu virtust þeir ekki skipta máli. David var með Josephine og föður hennar á hverjum degi eftir það og með hverjum deginum varö David innilegar ástfanginn. Hann haföi aldrei kynnst svo töfr- andi konu. Þegar David kom til að sækja O’Neil-feðginin í kvöldverð eitt kvöldið sagði Tim O’Neil: „Ég er svolítið þreyttur í kvöld, David. Væri þér sama þó ég kæmi ekki með?” David reyndi að leyna gleði sinni. Drauma-reiðhjólið frá FfQkklondi komið aftur • Tourist ferðahjól, 10 gíra, með breiðum dekkjum, 24” og 26”. • Ljós, bögglaberi að framan og aftan, stand- ari, pumpa, og bjalla. • Aldur frá 8 ára. Auk þess mikið úrval af reiðhjólum fyrir alla, krakka, konur og kalla. Racer-keppnishjól, 10 gíra, dekk 26” og 28”. Racer keppnishjól fyrir börn, 3 gíra, dekk 18”—24”. 3 gíra kven- og karlmannshjól, breið dekk 26”. Fótbremsuhjól, dekk 20”—26”. Reiðhjólavarahlutir í miklu úrvali; töskur, körfur, lásar, hraðamæl- ar, bílafælur o.fl. Varahluta- og viðgerðar- þjónusta Árs ábyrgð l/erslunin /V14RKIÐ Suðurlandsbraut 30— Sími 35320 „Auðvitað, herra minn, ég skil það.” Josephine brosti ertnislega til Davids. „Ég skal reyna að hafa ofan af fyrir þér,” lofaði hún. David fór með hana í veitinga- sal í hóteli sem hafði nýlega verið opnað. Salurinn var fullur en David þekktist og fékk þegar í stað borð. Tríó var að leika banda- ríska tónlist. Davidspurði: „Viltudansa?” „Ég hefði gaman af því.” Andartaki síöar var Josephine í örmum hans á dansgólfinu og það var hrífandi. David þrýsti yndis- legum líkama hennar þétt að sér og hann fann að hún svaraði í sömu mynt. „Josephine, ég er ástfanginn af þér.” Hún lagöi fingurinn á varir hans. „Elsku David.... ekki....” „Afhverjuekki?” „Vegna þess að ég get ekki gifst þér.” „Elskarðu mig?” Hún brosti upp til hans, blá augu hennar glömpuðu. „Ég er vitlaus í þig, ástin mín. Séröu það ekki?” „Af hverjuþá?” „Vegna þess aö ég gæti aldrei búið í Klipdrift. Ég gengi af göflunum.” „Þú gætir reynt.” „David, þú freistar mín, en ég veit hvernig þaö myndi fara. Ef ég giftist þér og neyddist til að búa hérna myndi ég breytast í organdi skass og á endanum myndum við hata hvort annað. Ég vil frekar aö við kveðjumst á þennan hátt.” „Ég vil ekki kveðja þig.” Hún leit upp í andlit hans og David fann líkama hennar bráðna upp að sér. „David, er einhver möguleiki á því að þú gætir búið í SanFrancisco?” Þetta var ómöguleg hugmynd. „Hvað ætti ég að gera þar? ” „Við skulum borða morgunverö saman í fyrramálið. Ég vil að þú talir viðpabba.” Tim O’Neil sagði: „Josephine sagði mér frá samtali ykkar í gær- kvöldi. Þið tvö virðist eiga í erfiðleikum. En ég hef kannski lausn á því, ef þú hefur áhuga. ” „Ég hef mikinn áhuga, herra O’Neil.” O’Neil tók upp brúna skjala- tösku úr leðri og teikningar upp úr henni. „Veistu eitthvaö um frosinn mat?” „Ég er hræddur um að ég viti ekkert.” „Þaö var fyrst byrjað aö frysta mat í Bandaríkjunum 1865. Vandinn var að flytja hann miklar vegalengdir án þess aö maturinn þiðnaði. Við eigum frystivagna 18 Vikan 20. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.