Vikan - 19.05.1983, Qupperneq 30
Húsiðlá
undir skemmdum
Viö byrjuðum á því aö berja for-
skalninguna af öllu húsinu því eins og
áöur sagöi þá lifði viðurinn ekki undir
múrhúöuninni og ókostir þess voru
farnir aö koma í ljós. Viö ákváöum aö
viðarklæöa þaö líkt og þaö haföi veriö í
upphafi. Okkar klæöning er aö vísu
óhefluö og standandi en upprunaleg
klæöning var auövitaö hefluö, plægö og
liggjandi.
Gluggarnir eru alveg eins og þeir
voru. Reyndar settum viö gler í þá,
Erlingur skar sjálfur þessar boga-
dregnu rúöur, meira aö segja skar
hann eina rúöu sem er alveg kringlótt
og var ákaflega ánægður meö sig. Þaö
þykir víst mjög erfitt aö framkvæma
slíkan skurö en hann reyndi aö finna út
úr því sjálfur. Og þaö tókst! ”
Erlingur: „Þaö mætti reyndar láta
fljóta meö eina sögu sem geröist á
meöan viö stóöum í þessum aðgerðum.
Þegar viö ákváöum aö klæöa húsiö aö
utan fékk ég mér náttúrlega bæöi
kúbein og sleggjuhamar til aö brjóta
forskalninguna af. Þegar ég er svo aö
brjóta hér götumegin, þaö var góö
aðstaða, ég var hér einn um morg-
uninn aö hamast á veggnum og gekk
bara alveg ágætlega, kemur aö Jónas
kailinn Guömundsson, stýrimaður og
rithöfundur. Hann var á hægri ferö í bíl
hér eftir götunni, stoppar, skrúfar
niöur rúöuna og segir: „Nei, Erlingur.
Nei, Erlingur. Ekki þetta! Biddu hana
Brynju heldur aöopna meðgóðu! ””
Brynja: „Hér var mjög fallegt
heimili áöur fyrr, meö gólfteppum og
vönduöum húsgögnum. En viö gengum
fyrst inn í þessar stofur auöar, meö
heldur kuldalegum linoleumdúk.
Við rifum dúkana í burtu og þá kom í
ljós þessi viður, þessi fallega fura. Viö
pússuöum því öll gólf og lökkuðum.
Þetta eru kannski ekki alveg slétt borö
en þau eru mjög falleg og gott aö þrífa.
Veggirnir eru pappaklæddir. Og á.
þessum tíma, eöa rétt eftir aö viö
keyptum, kom þessi alda aö rífa
maskínupappírinn af öllum veggjum
og strigann og fara inn á panel. Sem
betur fer vorum viö búin aö búa í
húsinu í nokkur ár án þess að gera
nokkurn skapaðan hlut og okkur datt
ekki í hug aö rífa pappann af heldur
geröum bara eins og alltaf hefur veriö
gert í þessu húsi. Viö bara máluöum
maskínupappírinn. Undir honum er
strigi og undir honum eflaust panell,
en ég get ekki hugsaö mér aö sjá hann.
Eldabuskan
mátti ekki sjást
Eldhúsið þurfum viö aö gera upp,
þaö er útbygging frá árinu 1942. Þá var
einfaldasta leiðin aö furuklæða þaö,
sem við og gerðum. Annars heföum viö
þurft aö múra og mála og sparsla þaö
allt. Húsiö var klætt aö utan og um leiö
eldhúsiöaöinnan.
I gamla daga var ekki gengið beint
úr borðstofu inn í eldhús heldur var
smáherbergi á milli, svokallaö
anretteværelse. Sjóðandi matarpottar
máttu ekki blasa viö gestunum og því
var fyrirkomulagið þannig að fyrst var
anretteværelset opnaö. Þar voru stofu-
pigerne, fóru meö matinn inn í borö-
..Þcssjr mymiir cnt tir Fiiigleik.Si//itr/ón )óhamisson tcibhidi hitn
tn^.tn.t. ti'/n ertt nttkknrs knn.tr samhLtnti .tf Ihtw/íð.trs/hínni o^ ttít
tírtnnutm. Stgur/ón kom lu'rn.t etnn i/.tgtnn. eftir .ti) hl.ii liturinn v.tr
komtnn ./ horðstofitr/.t. og n.tf okknr myniitrn.tr. Honttm f./nust f.n
/’.tss.t sro vel vtðhtinn.
stofuna og lokuöu á eftir sér. Á meöan
setti eldabuskan næstu föt frá sér. En
ég bjó úr þessu herbergi borökrók inni
í eldhúsinu til að rýmra yröi um okkur.
Borðstofan var máluö hvít í fyrstu,
til þrifa eins og annaö í þessu húsi. Viö
erum lengi aö velja liti. Stundum leita
ég í óöryggi mínu til Magnúsanna vina
minna, Skúlasonar arkitekts og
Tómassonar myndlistarmanns. Biö þá
um ráö svo viö séum nú ekki aö gera
neina vitleysu. En þeir segja oftast:
„Máliö eftir eigin smekk og enga
vitleysu.” Eftir langa mæöu völdum
viö síðan bláan lit á borðstofuna. Viö
erum bara ansi ánægö meö hann.
Manni líður mjög vel hérna í þessum
bláa lit. Og þeir sem hugsa um áhrif
lita á fólk tala um aö þaö séu margir
sem þurfi á þessum bláa lit að halda.
Að hann gefi orku. Hann er þannig
blandaöur að hann er ekki kuldalegur.
Þetta er orkugefandi litur.
Okkur fannst ekki þurfa stórisa fyrir
glugga. Langt er á milli húsa, næsta
hús fyrir neöan er Fríkirkjuvegur 11
en á milli er gamla hestaréttin hans
Thors Jensens, f jós og útihús voru rifin
fyrir nokkrum árum, þrátt fyrir
eindregin mótmæli. Hér fyrir austan
garöinn okkar eru gömlu traöirnar
umluktar háum steingaröi, leirhellu-
lögöum aö ofan. Þegar viö vorum ný-
flutt hingaö komu hrekkjusvín meö
hamra og brutu upp úr öllum gömlu
leirflísunum.
Nú, úr borðstofu er gengiö inn í sól-
stofuna. Eg veit aö gamli maöurinn,
Olsen og kona hans, sem voru af
dönsku bergi brotin, sátu hér í þessu
horni viö morgunverðinn. En sá gamli
var svo heitfengur aö hann lét rífa ofn-
inn úr þessari stofu og sat svo aftur á
móti í vorsólinni hér inni í þessu horni
og drakk sitt te á morgnana. Þessi
stofa er þægileg og björt, enda er hún
mest notuö á sumrin.
Inni í þeirri stofu geymum við
gamla ljósmynd sem Öskar Gíslason
og Inga Laxness gáfu okkur. Hún er
frá 1907, aö ég held, og þá er ekki
byrjaö aö byggja Kvennaskólann. Og
þar vantar Fríkirkjuveg 11 líka. En
húsiö okkar sést aftur á móti mjög vel.
Viö fengum þessa mynd ekki fyrr en
viö vorum búin aö klæöa þaö aö utan.
En viö sjáum aö núna er þaö miklu
líkara því sem þaö var í upphafi en
þegar þaö var forskalað. Húsiö er aö
vísu aöeins ljósara og gluggarnir
aöeins dekkri á myndinni en sami stíll.
Græna stofan var máluö í þessum
róandi græna lit því í henni er sjón-
varpiö. Þetta var líklega skrifstofa
gamla mannsins hér áöur fyrr. Hann
notaði þó anddyrið aöallega til að taka
á móti gestum hversdags. Stofur voru
notaðar á tyllidögum. Viö notum þær
aftur á móti alla daga og tölum bara í
síma í anddyrinu. Hér inni hanga
margir gripir sem okkur hafa veriö
gefnir, minningar úr leikhúsinu og
fleira.
Skiljum húsið
miklu betur rtúna
í stuttu máli höguöum við því þannig
aö viö flýttum okkur ekki aö laga eöa
breyta neinu, fyrst og fremst vegna
þess aö viö áttum enga peninga til
þess. En ég er mjög fegin núna því ég
held aö þaö hafi skipt sköpum aö hafa
flutt inn í húsiö og fundið einhvern
veginn smám saman út hvaö þyrfti aö
gera, í staöinn fyrir aö breyta öllu áöur
en maður flutti inn. Viö skiljum miklu
betur núna hvernig húsiö þjónar okkur
sembest.”
30 Víkan ZO. tbl.