Vikan


Vikan - 19.05.1983, Page 38

Vikan - 19.05.1983, Page 38
byggist við einhverju þessu líku hvar og hvenær sem væri. Hún heiði tæplega tíma til að kanna málið á eigin spýtur. Hún varð að koma sér burt hvað sem það kostaði! — Þetta hljóð sem henni fannst hún heyra, henni stóð stuggur af því. En það þýddi ekkert að hika. Hún hafði nóg af peningum til að koma sér undan og ekki þurfti hún að kvíða því að vera of þekkt hér um slóðir. Lyndon hafði verið örlátur og jafnan gætt þess að hún heíði sjálf nóg ié handa á milli en hann hafði ekkert hampað henni í kunningjahópnum fram að þessu. Regnið var ekki eins þétt og áður og nú greip óttinn hana enn meir en áður. Þruskið sem henni hafði fundist hún heyra var orðið of skýrt til að hún gæti leitt það hjá sér. Það táknaði að einhver vissi. Og nú var oröið of seint að flýja. En yrði hún næsta fórnarlamb eða var þetta hljóð í ein- hverjum sem ekki gerði henni mein? Hún vissi ekki almennilega hvort þruskið kom úr borðstofunni, sem var fyrir aftan hana, eða úr garðinum. Hún gat ekki hreyft sig af skelfingu. „Gott kvöld, frú Bart, eða er það ekki frú Bart?” Meira mundi hún ekki. Hún vaknaði svo í þægilegum fangaklefa. „Hún er vöknuð,” sagði fangavörðurinn, „en ég held hún þurfi að jatna sig.” Síðar um daginn var hún færð til yfirheyrslu. Hún gerði ekki kröfu um að fá aö tala við lögfræðing. Hún tortryggði lögfræöinga. „Treystu aldrei lögfræð- ingum,” hafði Lyndon ein- hvern thna sagt við hana, „þeir hugsa aldrei um ann- að en að hafa eins mikið fé af þér og þeim er unnt og kæra sig kollótta um hvort þú lendir í fangelsi eða ekki.” Þetta rifjaðist nú upp fyrir henni og hún fann að hún var sama sinnis. Dánarorsök Lyndons var fundin, eitur í kampavín- inu. Sterkt eitur en bragð- laust, eitur sem mjög erfitt var að verða sér úti um. Hún var ekki formlega ákærö, „. . . en framhjá því er ekki hægt að líta að þú ert einkaerfingi mikilla auðæfa og að því er þjónustufólkið segir var það að þínu undirlagi að því var gefið frí þetta kvöld og þið sáuð sjálf um gestina. Það er mjög óvenjulegt í húshaldi Lyndons Bart.” Hún hafði ekkert um þetta að segja aö svo stöddu. Hver myndi virða hennar sjónarmið, hér þar sem hún var ein um sínar skoðanir? Lögreglumaðurinn sem yfirheyrði hana var sá sami og hafði komiö aftan að henni um nóttina. Hann hafði fylgst með Lyndon um nokkurt skeið vegna þess aö hann lá undir grun um ólögleg eiturlyfja- viðskipti. Ekkert af þessu kom henni á óvart — ekki beinlínis. „Hverjir voru í sam- kvæminu auk ykkar?”l spurði lögreglumaðurinn. „Ég þekki fæst af þessu fólki, en þarna voru viðskiptafélagi mannsins míns, með konunni sinni. . . ” „Langdon, já. . .” „.. . og svo voru einhverjir gamlir vinir Lyndons, heita Ward og ég held að hún sá dálítið eldri en hann. Hún er kvik- myndaleikkona, svo mikiö veit ég.” „Já, haltu áfram!” „Já, en þið vitið þetta allt!” „Já, já, en það er góð byrjun fyrir þig að rifja þetta upp.” „Byrjun á hverju?” „Á yfirheyrslunni.” „ Jæja, það voru svo sem ekki nema ein hjón í viðbót, Lon Reed og Clarissa Darling, bæði úr auglýsingabransanum. ’ ’ „Ertu ekki að gleyma neinu?” „Nei?” „Hvað um tvíburabróður Reed?” „Tvíburabróður! Mein- arðu að þeir hafi verið tveir. . . . það skýrir ýmis- legt!” „Nú?” „Já, ég botnaði ekkert í hvernig hann gat verið bæði á veröndinni og í borð- stofunni svo að segja samtímis. En af hverju sagði Lyndon mér ekki frá því að þeir væru tveir?” „Hann hlýtur aö hafa haft sínar ástæður. Archi- bald Reed er lögfræðingur og ógiftur í augnablikinu.” „Lögfræöingur? Og ertu viss um að þeir hafi báðir verið þarna? Ég tók örugg- lega bara á móti einum! ” „Við skulum fara betur yfir það á eftir. En hvernig fór samkvæmið fram?” „Þaö er eiginlega ekki frá neinu að segja. Við vorum með allt tilbúið, vínið og veitingarnar. Og gestirnir komu um tíu- leytið. Þetta var allt hálf- ógeðslegt. Flestir drukku sig of fulla, nema kannski Clarissa, og Lyndon var alls ekki fyrsti maðurinn í gólfið. En það virðist ekki vera til siðs í þessum hópi að sinna þeim sem lognast út af svo að mig grunaði ekkert þegar Lyndon var kominn í gólfið. Ekki fyrr en auðvitað eftir að gest- irnir voru farnir. Það var nú næstum kominn morg- unn þegar þeir fóru loksins.” „Var það þá sem þér varð ljóst hvers kyns var?” „Já, og þá settist ég út á verönd. Það var ekki hægt að hugsa í þessu ógeðslega lofti þarna inni. Og ég vissi ekkert hvað ég átti aö gera.” „Gerðirðu eitthvað?” „Nei, ég bara hugsaði” „Um hvað?” „Að mér yrði kennt um allt. Mér er hvort sem er alltaf kennt um allt.” „Jæja, við skulum bíða með þaö. Við vitum að fleiri en einn vildi manninn þinn feigan. Þú getur sjálf- sagt ímyndað þér hvernig er að reka viðskipti með manninum þínum?” „Já, það má næstum segja að ég hafi gert það.” „Charles Langdon hafði gert ítrekaðar tilraunir til að slíta samstarfinu við Lyndon, en árangurslaust. Hann var ekkert sérlega hrifinn af þeim viðskiptum sem herra Bart virtist stunda í skjóli fyrir- tækisins.” „Já?” „Og svo var það Lon Reed. Hann hafði ástæðu til að leggja fæð á Lyndon því að hann hefur átt vingott við konu hans árum saman.” „Árum saman, en það er búið, erþaðekki. . . ?” „Var? Nei, frú Bart, ég hef nú verið að fylgjast með manninum þínum nógu lengi til að geta fullyrt að svo var ekki. En það er auðvitað búið núna. Og Archibald Reed, lög- fræðingurinn. Hann og maðurinn þinn hötuöust, en eitthvað var það sem olli því að þeir virtust alltaf verða á vegi hvor annars og jafnvel þurfa á návist hvor annars að halda.” „Og hvað heldur þú?” „Já, mér finnst nú senni- legast að þú hafir drepið hann. Þú gerir þér eflaust grein fyrir hvaö þú erfir mikið en það getur orðið vandaverk að finna sann- anir gegn þér því að þú hefur alla aðstöðu til að ganga frá lausum endum, 38 Vikan 20. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.