Vikan - 19.05.1983, Qupperneq 51
Draumar
Get flogið
Kæri draumráðandi.
Eg hef aldrei skrifað þér
áður og vona að þú viljir
ráða þennan draum, hann
er mjög svipaður þeim sem
mig dreymiryfirleitt. Hann
ersvona:
Mér finnst ég vera stödd
í kaupstað og að ég sé á
flótta undan einhverjum
og sé að það er líka einhver
annar að flýja sem ég
kannast við. Þegar ég kem
nær sé ég að það er Z. Eg á-
kveð að hjálpa honum og
tek í höndina á honum. Z
spyrnir t jörðina og þá get
ég flogið með því einu að
segja að ég geti það. Svo
heldur hann allt í einu í
löppina á mér og ég svíf
svoleiðis yfir nokkur hús.
Þá vorum við sloppin en
samt hélt ég áfram að
fljúga hærra og hærra. Þá
segir Z að hann sé að missa
takið en ég hlusta ekki á
hann fyrr en hann dettur
niður, þá flýti ég mér að
ienda og þá er Z í einm
hrúgu og virðist allur
mölbrotinn. Eg tek hann í
fangið, lyfti mér upp og
svífyfir öll húsin til að geta
séð hvar sjúkrahúsið er. Þá
finnst mér ég vera á mjög
kunnugum stað og flýg
upp eftir að sjúkrahúsinu
en þá er það ekki lengur
sami staðurinn heldur í
einhverri stórborg. Þegar
ég kem inn legg égZ á bekk
rétt innan við dyrnar. Þá
kemur hjúkrunarkona og
spyr hvað við séum að
þvælast þarna inni. Eg segi
að Z sé mjög veikur, allur
brotinn og að hún eigi að
athuga Z strax. Hjúkkan
tekur í axlirnar áZ og segir
við mig: Hann er ekkert
veikur og hættið þið þessan
vitleysu. Var þá ekkert að Z
og vaknaði ég svo.
Eg vona að þú getir
ráðið þennan draum fynr
mig því að allir draumarnir
sem mig deymir eru þannig
að ég get flogið og er alltaf
að bjarga einhverjum.
Með fyrirfram þökk fyrir
birtinguna,
K.E.Á.
Þessar draumfarir endur-
spegla drauma þína um að
geta sigrast á þeim
erfiðleikum sem þú þarft
að takast á við. Með
þessum draumum léttir þú
af þér daglegu amstri og
vinnur sigur í draumunum.
Margir vilja halda því fram
að draumar af þessu tagi
séu góðir fyrir lífið og
sálina og hjálpi fólki í dag-
legu amstri svo þú skalt
telja þá fremur jákvæða en
neikvæða þó ekki geti þeir
beinlínis talist tákn-
draumar.
Kysst á skipi
Kæri draumráðandil
Eg ætla að biðja þig að
ráða fyrir mig draum sem
mig dreymdi í nótt. Þetta
er stuttur draumur þegar
ég skrifa hann niður á blað
en mér fannst hann vera
ferlega langur þegar mig
dreymdi hann.
Mér fannst ég vera á
skipi með vinkonu minni
og bróður hennar sem er
aðeins eldri en ég. Brðð-
irinn kom labbandiþangað
sem ég og vinkona mín
stóðum. Eg held að hann
hafi ætlað að labba framhjá
okkur en þá sný ég mér við,
tek utan um hann og fer að
kyssa hann. Þegar við erum
hætt að kyssast tekur hann í
handlegginn á mér, brosir
svo til mín og labbar burtu.
Eftir þetta hitti ég hann oft
á skipinu og þegar við hitt-
umst tók hann alltaf utan
um mig og klappaði mér
allri. Það var fleira fólk en
við á skipinu en ég sá aldrei
andlitin. Eg þekki
bróðurinn æðislega vel, við
erum góðir vinir en ekkert
meira en það.
Jæja, ég vona að þú viljir
ráða þennan draum fyrir
mig. Með fyrirfram þökk,
bæ, bæ.
Eg-um-mig-frá-mér-til-
mín.
í þessum draumi er í
rauninni ekkert annað en
staðfesting á vináttu ykkar
stráksins og hann bendir
ekki til að neitt meira verði
á milli ykkar í framtíðinni.
Hins vegar gætu orðið
einhverjar breytingar í lífi
þínu á næstunni og fer það
mjög eftir því hvernig var í
sjóinn hvort þær eru þér að
skapi eða ekki. Ef gott var í
sjóinn, ekki síst ef veðrið
var gott, þá er það góð
breyting en lakari ef slæmt
var í sjóinn. Þú getur
raunar ekkert um hvernig
veðrið var en manst það
vonandi sjálf og skilur þar
af leiðandi merkingu
draumsins.
Sameinið enskunám
og sumarfrí
Enskukennsla fyrir hádegi, skemmtiferðir
og íþróttir eftir hádegi og á kvöldin.
í sumar efnir hinn vinsæli málaskóli, The Globe Study Centre
For English í Exeter, til námskeiða fyrir fólk á öllum aldri.
Undanfarin 5 sumur hafa margir ánægðir íslendingar stundað
enskunám þar sem öllum nýtísku kennsluaðferðum er beitt og
jafnframt notið lífsins á þessum veðursæia stað við suður-
strönd Englands.
1. Fullt fæði og húsnæði hjá valinni enskri fjölskyldu eða dvöl
á stúdentagörðum.
2. 14 klst. kennsluvika hjá góðum og reyndum kennurum.
3. Dagsferðir (m.a. til London) og margs konar íþróttir á
dagskrá 5 daga vikunnar. Kennsla í siglingum, golfi og
tennis.
Brottfarardagar: 25. júní, 16. júlí og 6. ágúst.
Lágmarksdvöl er 3 vikur.
ísl. fararstjóri mun fylgja nemendum frá Keflavík til Exeter.
fAllar nánari uppl. veitir
Böövar Friðriksson í síma 41930
á skrifstofutíma og síma
46233 á kvöldin og um helgar.
20. tbl. Vikan 51