Vikan


Vikan - 29.12.1983, Page 13

Vikan - 29.12.1983, Page 13
Kennslan fór fram á ensku því þarna var eins og áöur er sagt bresk nýlenda. En í Ghana eru fjögur aðaltungumál og þar með fjórir aðalættbálkar, en þar að auki fjölmargar mállýskur. En á þessum fjórum tungumálum getur fólkið nokkurn veginn skilið hvert annað. Ljós í frumskóginum Viö höfðum mikil samskipti við innfædda. Auk þess sem ég kenndi við skólann vorum við stöðugt á ferðinni í skóginn og inn í þorpin til þess að vitja um fólkið og konan mín að hjúkra eftir mætti. Við héldum samkomur og vorum með litla ljósavél sem við gátum gang- sett. Við hengdum upp 4—5 feta flúrlampa, vorum með skugga- myndavél og kvikmyndasýninga- vél og sýndum myndir. Þegar kviknaði á ljósunum og vélarnar fóru í gang var það algjör opinber- un fyrir fólkið því það hafði aldrei séð neitt þessu líkt. Og af því við vorum að tala um það áðan hvernig kristniboðinu væri tekið þá er það alltaf mikil opinberun þegar maöur kemur meö þessa hluti. Síðan fengum viö fatasendingar að heiman og deildumút fatnaði og gáfum allt sem við gátum. Þörfin er svo mikil að fólkið verður fegiö. Líf í stöðugum ótta og undirokun Gagnrýni á kristniboð á rétt á sér svo langt sem hún nær. Vestur- landabúar hafa farið að mörgu leyti óhyggilega að ráöi sínu. Við fórum til þessara landa, ætluðum aö kippa fólki upp úr sínum eigin farvegi, klæða það í vestræna skikkju hvaö snerti menntun, menningu og trúfræði. Þetta var auðvitað af góðum huga gert. Ég held að við þurfum að mæta þessu fólki þar sem það er. Hvað menn- ingu þess snertir; að það standi á sínum eigin menningargrundvelli en við bætum hana með öllu sem kristindómurinn og vestræn menning getur veitt. Hvað trúna sjálfa snertir er það þar sem gagnrýnin kemur hvað haröast fram og margur hefur sagt að við ættum að leyfa þessu fólki að vera í friði í trú sinni. Hér er talað af góðum hug en um nokkuð sem við vitum ekkert um fyrr en við hrær- umst í því. Þetta fólk er ekki eins og sagt er „sælt í sinni trú”. Það er það alls ekki. Fólk lifir í stöðug- um ótta og stöðugri andlegri þrælkun. Öttinn er við illa anda sem eru tilbeðnir. Fólkið lifir í stöðugum ótta við þessa illu anda, gengur út í eld og vatn og leggur allt fram sem það á til að blíðka andana. Það kemur kannski með barnið sitt fárveikt til töfralæknis- ins og leggur fram svo og svo mik- iö sem hann krefur það um, ef til vill tvær geitur eða fimmtíu kíló af hrísgrjónum eftir því hvað hann setur upp. Fólk reynir að safna þessu saman til þess að bjarga barninu sínu. Hann syngur sinn seið og gerir allar sínar kúnstir en barnið deyr. Það er aldrei honum að kenna. Því næst kemur yfirlýs- ingin: „Þú borgaðir ekki nógu mikið, andarnir voru ekki ánægðir, þess vegna tóku þeir barnið.” Þannig lifir fólkiö í stöðugum ótta og undirokun. Eitt það stórkostlegasta sem maður getur séð í mannlegu lífi er aö sjá mismuninn á þessu fólki og þeim einstaklingum sem öðlast hafa skilning á kærleikanum og fyrir- gefandi náð og frelsi sem ekki þarf að vera óttablandið. Það er mesta lausn sem þetta fólk getur hlotið. Og þess vegna er kristniboð eins og það ætti að vera af besta toga spunnið, það besta sem við getum gert fyrir þetta fólk. Þessi mynd er tekin af Jóni Hjörleifi við skírnarathöfn í Ghana.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.