Vikan


Vikan - 29.12.1983, Blaðsíða 25

Vikan - 29.12.1983, Blaðsíða 25
Breytingar og byltingar.... Yfírlitið er tvískipt, annars vegar er helstu hljómsveita getið og hins vegar helstu viðburða, svo og frammistöðu fjölmiðla, vinsælustu laganna og svo framvegis. Og hefst þá slagurinn. skapa sér verulega sterka stööu á tónlistarsviðiriu voru textar þeirra ósviknir baráttutextar og fram- takið mjög gott. Við vonum bara að fleiri kvennahljómsveitir komi fram. Stuðmenn Stuðmenn áttu sínar frægðar- stundir. Mynd þeirra, Með allt á hreinu, hlaut gífurlegar vinsældir, svo miklar að langt er saman að jafna. Hljómsveitin spilaði víða um land við miklar vinsældir og virðingu og gaf út plötuna Grái fiðringurinn, sem kynnt var um borð í Eddunni, hinu nýja farþega- skipi okkar Islendinga. Veruleg tónlistarafrek voru ekki unnin í þessum herbúðum á árinu en víst er að gaman er aö Stuðmönnum. Q4U Q4U lét mjög að sér kveða í byrjun ársins, fylgdi nýrri LP- plötu úr hlaði með hljómleikum og plötukynningu víðs vegar. Þegar platan kom á markað í febrúar voru dómar yfirleitt mjög á einn veg: Hljómsveitinni hafði farið mjög mikið fram síðan á Rokki í Reykjavík og það án þess að þynn- ast út í meöalmennsku. Ellý er kröftug söngkona og mikil sviðs- manneskja. Mannabreytingar höfðu orðið talsverðar í hljómsveitinni frá Rokkinu, Steinþór, Linda og Kormákur hætt og í staðinn voru komnir þeir Árni Daníel og Danni Pollock. Léttara yfirbragð varð á hljómsveitinni með tilkomu synthesizerins og tónlistin yfir- leitt miklu vandaðri. Engu að síður var það lag sem bar svip af eldri lögunum, Böring, semmest heyrðist spilað í útvarpi. Síðasta hluta ársins hefur lítið borið á hljómsveitinni, þó er vitað til þess að hún á upptökur á eina plötu í viðbót tilbúnar í pússi sínu, en á þessu stigi er ekki vitað hvenær eða hvort sú plata verður gefin út. Kukl Veruleg umbrot urðu í tónlistarlífinu á árinu, eins og getið var í upphafi, og einna mest áberandi var hrun Þeysveldisins. Ur þeim herbúðum og fleiri reis svo hin ævintýralega hljómsveit Kukl. I henni eru þau Björk Guðmundsdóttir úr Tappa tíkarrassi, Einar Örn Benedikts- son úr Purrki pillnikk og Iss!, Sig- tryggur Baldursson og Guðlaugur Öttarsson úr Þey, Birgir Mogensen úr Með nöktum og Killing Joke og Einar Melax úr Van Houtens Kókó. Hljómsveitin gaf út eina litla plötu með lögunum Söngull og Pönk fyrir byrjendur fyrir friðarhátíðina 10. september. Upphaflega var hljómsveitin sett saman fyrir síðasta þátt Áfanga í útvarpinu og söng þá Megas með. Síðan spilaði hún á friðarhátíðinni og svo ekki fyrr en á tónleikunum í Menntaskólanum við Harmahlíð, þar serh Einar Örn söng með hljómsveitinni í gegnum síma frá London. Ekki er þessi skrautlega saga alveg búin því nú stendur til að Kukl gefi út stóra hljómplötu á merki Crass í Bretlandi og haldi síðan hljómleika með Crass og Flux of Pink Indians í Bretlandi. Þaðernú það. Tappi tíkarrass Hljómsveitin afrekaði það helst á árinu að leika í kvikmyndinni Nýtt líf auk þess sem hún spilaði á hljómleikum og gerði ýmislegt annað sem rokkhljómsveit er uppálagt að gera. Meðal annars var tekin upp LP-plata sem líklega er komin út þegar þetta birtist. Hljómsveitin er líklega aö hætta, en allt er þó óvíst um það og allt í góðu ef svo fer, eins og góður maður orðaði það. Ikarus Ein af merkilegri hljómsveitum ársins. Eins og Kukl reis hún skyndilega úr öskunni. Tolli Morthens safnaði saman þeim Komma úr Ogsmá og Q4U, Braga Ólafssyni úr Purrkinum og Begga Morthens úr Egó og út kom mjög góð pönksveit. Ikarus spilaði undir hjá þeim Tolla og Megasi á annarri hlið The Boys from Chicago og síðan á friðartónleik- unum 10. september. Þegar þetta er skrifað hefur hljómsveitin’ tilbúna aðra plötu, þar sem hver tónlistarmaður syngur að minnsta kosti eitt lag, en ekki er alveg á hreinu hvenær hún verður gefin út. Ástæða er til aö fylgjast með afrekum þessarar hljómsveitar. Frakkarnir Eins og sést á umfjöllun um Kukl og Ikarus var töluvert um nýjar hljómsveitir í sumar. I haust komu síðan fram fleiri nýjar hljómsveitir, þeirra á meðal Frakkarnir. Þar ganga fram garparnir Mike Pollock úr Bodies og Utangarðsmönnum, Þorleifur úr Egó, Finnur Jónsson úr Eik og Gunnar trommari. Jóhannes, eig- andi Safari, tók hljómsveitina upp á sína arma og gaf út plötu með henni undir lok ársins. Hljómlist Frakkanna er pottþétt rokk og platan heitir 1984. Það er vel viðeigandi að vara fólk við þegar ár Orwells gengur í garð. Með nöktum Meö nöktum er ný hljómsveit sem eins og Frakkarnir kom fram í haust. Það eru Magnús Guðmundsson úr Þey, Birgir Mogensen bassaleikari, Halldór Lárusson trommari og Helgi gít- arleikari sem halda úti hljómsveit sem keyrir mjög öflugt og kröftugt sánd út í loftið á hljóm- leikum. Ekkert er víst með plötu, en ef einhver hljómsveit hefur erft Þeysarasándið þá er það Með nöktum. 52. tbl. Víkan 25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.