Vikan - 29.12.1983, Blaðsíða 38
Stjörnuspá
Hrúlurinn 21. mars 20. april
Þér hefur hætt til
þess aö láta áhuga-
málin og ánægjuna
sitja fyrir skyldu-
störfum. Þetta hefur
að sjálfsögðu ekki
nema eitt í för með
sér og þaö er ekki til
neinna bóta fyrir þig.
Krabbinn 22. jiini - 23. júli
Næsta vika verður
viðburöarík. Þú munt
þurfa að taka ein-
hverja ákvörðun sem
tengist fjármálum og
þú ættir að íhuga vel
þinn gang áður en þú
gerir eitthvað róttækt
í þeim málum.
Vogin 24. sept. - 23. okt.
Þú hefur lagt hart að
þér upp á síðkastiö
og ættir því að hvíla
þig um stund ef
færi gefst. Einhver
leiöindi, sem þú hefur
tekið nærri þér,
munu verða úr sög-
unni fyrr en varir.
Sleingeitin 22. des. 2Ö. jan.
Þú færö ákaflega
skemmtilegt verkefni
á næstunni og þú ert í
góðu andlegu ástandi
til aö takast á viö
það. Einhver at-
burður hefur farið
ákaflega í taugarnar
á þér en nú er það úr
Nautið 21. aptíl 21. mai
Þú færð erfitt
verkefni sem þú ert
alveg dauðhræddur
við að takast á
hendur. Þú vanmetur
hæfileika þína hvað
eftir annaö og þú
ættir að fenginni
reynslu að vita að
það er algjör óþarfi.
Þér finnst tilveran
eitthvað daufleg
þessa dagana. Er það
ekki bara vegna þess
að mikið hefur verið
að gerast hjá þér aö
undanförnu og því
kemur þessi hæga-
gangur á hlutunum
þér á óvart?
Tvíburarnir 22. mai-21. júni
Það er mikið að
gerast í einkalífi þínu
þessa dagana og
stormasamt samband
þíns og vinar þíns
setur mikinn svip á
helgina. Reyndu aö
stilla skapsmuni
þína, annars munt þú
sjá eftir því.
Meyian 24. ágúst - 23. sept.
Þú lifir ákaflega
spennandi lífi og þú
veist aldrei atburði
næsta dags fyrir. Þér
hættir til að vera
vanþakklátur en
mundu að margir
öfunda þig og vildu
vera í þínum sporum
ef þeir gætu.
Sporðdrekinn 24. okt. - 23. nów.
Þú hefur lengi gengið
með eina stóra ósk í
maganum og nú eru
allar líkur á að þessi
ósk rætist von
bráöar. Þú verður
beðinn um að gera
ákveðnum manni
greiöa og ættir að
drífa í því.
Bogmaðurinn 24. nóv. 21. des.
Þú munt hafa mikið
að gera næstu daga,
svo mikið að þú ferð í
vont skap. En reyndu
aö muna að þaö er
ekki fólkinu í
kringum þig aö
kenna hve upptekinn
þú ert! Sýndu tillits-
semi umfram allt.
Vatnsberinn 21. jan. - 19. febr.
Þú færð fréttir af
ákveðnum atburði
sem þú átt ákaflega
erfitt með aö trúa.
Þér hættir til aö taka
allt of mikið mark á
því sem aörir segja.
Þú ættir að reyna aö
mynda þér þínar
eigin skoöanir.
Fiskarnir 20. febr.- 20. mars
Framan af verður
vikan ákaflega hvers-
dagsleg. Síðan máttu
búast við að lifni yfir
lífinu því þú færð
heimsókn sem hefur
mjög skemmtilegar
afleiðingar í för meö
sér fyrir þig.
Fimm mínútur með Wif/y Breinho/st
Það má sjálfsagt alltaf rökræða
um söngraddir, mína svo sem
líka ef því er að skipta. Ég ætla
svo sem ekkert að fara að halda
því fram að hún sé samkeppnis-
fær við Pavarotti eða Placido
Domingo en á hinn bóginn er
rétt að geta þess að hún er nú
ekki verri en svo að ástæða hefur
þótt til að nota hana í kór. Við
höldum aðalæfingu einu sinni á
ári og hún stendur oftast ögn
lengur en til var ætlast.
Það kemur jafnvel fyrir að
maður verði ofurlítið rakur en
þegar maður hefur nú lagt sál og
söngrödd að veði hvert einasta
fimmtudagskvöld í heilt ár fyrir:
,,í vor kom ég suður með sólskin
í hjarta. . .” án þess að fá
nokkuð að bergja á annað en
appelsín, þá finnst mér nú hrein-
skilnislega sagt að maður eigi
fyrir einni aðalæfingu.
Maríanna er á annarri skoðun.
Þegar aðalæfingin var haldin
fyrir skömmu mætti ég sam-
viskusamlega. Það var orðið
nokkuð áliðið þegar æfingin var
búin. Ja, eiginlega allnokkuð
áliðið. Það var dimmt í húsinu
þegar ég fikraði mig í átt að aðal-
dyrunum. Maríanna svaf greini-
lega svefni hinna réttlátu. Ég
stakk vindilstúf í skráargatið og
sneri en vindillinn var hollenskur
og ekki sniðinn fyrir þessa gerð af
lásum. Það var ekki fyrr en nátt-
hrafn, sem átti af tilviljun leið
framhjá, bauð mér aðstoð sína að
ég slapp inn. Hann tók í húninn
og spyrnti í með hnénu og
hurðin spenntist upp. Ég bauð
honum lykla af kippunni minni í
þakklætisskyni. Hann trúði mér
fyrir því að hann þyrði ekki heim
til konunnar sinnar vegna þess að
hann hefði verið á aðalæfingu í
karlakórnum sínum og þá upp-
götvaði ég að þetta var hann
Magnús, formaðurinn, og svo
sungum við í fortissimo eitt ein-
asta erindi af ,,í vor kom ég
suður með seðla í flösku. . .” og
svo fór hvor til síns heima.
Forstofan ruggaði svolítið
þegar ég kom inn í hana. Það var
eins og hún væri að reyna að
hrista mig af sér en ég greip í
handriðið og hélt mér fast þar til
forstofan var búin að jafna sig.
Þessi forstofukytra! Hún skyldi
bara passa sig á morgun! Ég
sleppti takinu á handriðinu og
greip í skáphurðina. Aftur fór
húsið að hringsnúast. Hver svo
sem stóð fyrir þessu fannst mér
það stráksskapur að vera að hrista
til annarra manna hús um miðjar
nætur svo að maður gæti ekki
einu sinni hengt upp frakkann
sinn. Off, þetta var nú aðalæfing
í lagi. Ég skal ábyrgjast að við
sungum eitthvað. Það var að
minnsta kosti eitthvað sem söng í
hausnum á mér. Ég fór varlega
úr skónum og fleygði þeim gæti-
lega í hornið á forstofunni.
— Ussss! sagði ég og lagði
fingurinn á varirnar til áherslu.
Svo byrjaði ég að læðast upp
stigann. Ég var kominn hálfa leið
upp þegar gauksklukkan í
borðstofunni galaði tvisvar.
Bölvaður fuglinn gargaði svo
heyrðist um allt hús. Ef
Maríanna heyrði þetta nú. Til
öryggis galaði ég tíu sinnum I
viðbót nokkurn veginn eins og
fuglinn I gauksklukkunni.
— Hvað er klukkan? spurði
Maríanna syfjulega þegar ég
læddist varlega inn í svefnher-
bergi.
— Tólf, sagði ég fljótmæltur,
alls ekki meira en tólf. Heyrðirðu
ekki að klukkan sló tólf rétt í
þessu?
Svo fór ég í rúmið. Heiðri
mínum var borgið. Ef ég var
kominn heim fyrir tólf varð
aldrei neitt vesen.
38 Vikan 52. tbl.