Vikan - 29.12.1983, Page 29
okkar í ár er
Umsjón: Þórey
Myndir: Ragnar Th.
Þar skemmta sér saman börn,
unglingar og fullorðnir. Því bjóð-
um við upp á veitingar við hæfi
bæði barna og fullorðinna.
Drykkjarföng eru óáfeng eða létt-
Kaldar bollur eru til dæmis
drykkir þar sem blandað er
saman ávaxtasafa, léttu víni og
sódavatni eða gosdrykkjum ef
vill. Víninu er að sjálfsögðu
sleppt ef bolian á að vera óáfeng,
Sjaldnast fer vel á því að nota
Framreiðslan skiptir miklu máli.
Ef þið ætlið að búa til mikið af
bollu er rétt að blanda í stórum
potti en bera fram í fallegri skál
og ekki sakar að hafa glös í stíl.
Gætið þess að skálar og glös
undir heita drykki séu eldföst.
áfeng. Allir ætla að skemmta sér
en enginn að verða drukkinn. Á
matborðinu eru kræsingar við
hvers manns smekk, sitt af
hverju, sætu, söltu og súru.
Púns og bollur er sérlega vel
tilfallið í fjölmennari samkvæmi.
Það er hægt að laga með góðum
fyrirvara og hver og einn getur
skenkt sér að vild. Kaldar bollur,
hvort sem er aðeins áfengar eða
óáfengar, eru bragðgóðar, hress-
andi og fallegar á borði. Þá á
heitt púns ekki síður vel við á
gamlárskvöld þegar komið er inn
úr kuldanum frá því að skjóta
flugeldum eða horfa á brennu.
bragðsterk brennd vín, svo sem
romm, vodka, viskí eða brenni-
vín, í bollur nema þá smáskvett
ur til bragðbætis.
Heitt púns er helst kryddvín
eða kryddaður ávaxtasafi, svo
sem jólaglögg og skyldir drykkir.
Aðalatriðið er að leyfa kryddinu
að liggja að minnsta kosti nokkr-
ar klukkustundir í víninu eða saf-
anum til þess að kryddið nái að
bragðbæta vökvann sem mest og
innihaldið jafnist sem best
saman. Hið sama gildir raunar um
kaldar bollur en er þó engin regla
sem ekki má víkja frá þegar tím-
inn er naumur.
Látið heitt púns aldrei sjóða
heldur hitið að suðumarki. Síið
heil kryddstykki frá leginum áður
en borið er fram en bætið rúsín-
um og möndlum saman við ef
vill. Bætið ekki freyðivíni, sóda
vatni eða gosdrykkjum út í kaldar
bollur fyrr en rétt áður en á að
bera fram. Skreytið ávaxtabollur
með ávaxtasneiðum og berjum
eftir því sem við á.
í stórar skálar getur verið fall-
egt að setja heilt ísstykki sem
fryst er í hringkökuformi. Þá er
ekki síður snjallt að frysta vínber
eða önnur skrautleg ber í ísmola-
forminu og nota út í boiluna.
52. tbl. Vikan 29