Vikan


Vikan - 26.07.1984, Side 5

Vikan - 26.07.1984, Side 5
Ljónapabbi gerði tilraun til að fjölga Ijónunum í dýragarðin- um. Hann lét sig það engu skipta þó fjöldi mannlegra áhorf- enda fylgdist með. i fyrra tókst honum ætlunarverk sitt, þá Jitti ein kerlinganna hans unga. . • Dagur í dýragarði Gamla konan var afar sorgbitin. „Hann þekkir mig ekki lengur. Og viö sem höfum veriö svo góðir vinir.” Það var górilluapinn Samson sem hún talaði um, karlinn í górilluparinu í dýra- garðinum í Kaupmannahöfn. Mannapamir eru nýlega fluttir þar á milli húsa. Gamla konan taldi sannað að þessa flutninga hefði karl ekki þolað, hann væri alveg ruglaöur á hinum nýja stað. Yfirstjórn dýragarðsins er á annarri skoðun og þykir mikil framför að hinu nýja apahúsi. I stað einfaldra búra hafa aparnir fengið þrískipt hús. Til endanna búa górillurnar og simpansarnir. í miðjunni er hins vegar vinnu- svæðið. Górillunum er hleypt þangað annan hvern dag og simpönsunum hinn daginn. Ekki geta þessir frændur unnið saman. I búrunum og á vinnusvæðinu er allt gert til að örva gáfnafar apanna. Þeir geta náð sér í ýmislegt góðgæti með því að nota greinar eða litla steina. Simpans- arnir voru fljótir að læra þetta enda óhemju forvitnir. Górillurn- ar fóru sér hins vegar hægt og eru ekki komnar nærri því eins langt. Yfirmenn dýragarðsins eru afar hreyknir af þessu nýja húsi. Þeir láta sér í léttu rúmi liggja sú gagn- rýni sem aðeins hefur borið á. Gagnrýnin snýst fyrst og fremst um kostnaðinn. Húsið kostaði heilar 12 milljónir danskra króna eða 36 íslenskar milljónir. Þeir sem alltaf vita best hvað hægt er að gera við peninga hafa bent á að nær hefði verið að reisa barnaheimili fyrir dönsk börn en hús fyrir útlenda apa. Mörgum velgerðarstofnunum fannst apa- búrið hins vegar svo mikilvægt að þær gáfu peninga til þess. Og eftir nokkur ár sættast eflaust allir á það og finnst hin mesta framför að því. 125 ár Danski dýragarðurinn verður 125 ára þann 20. september í haust. Bæði apahúsið og afrísk savanna, sem opnuð verður í sumar, eru búin til í þessu tilefni. Miklar breytingar hafa reyndar staðið yfir alveg síðan árið 1980. Þá fengu mörg stóru rándýranna, eins og til dæmis tígrisdýrin og hlébarðinn, ný búr og stærri. Ári seinna fengu norrænu dýrin, hreindýr og sauðnaut, betri aðstæður. Mörgæsirnar voru næst- ar í rööinni í hittifyrra og í fyrra voru þaö gauruxarnir. Á næsta ári á síöan aö búa til stóran barna- dýragarð. Þar eiga að verða ýmis meinlaus dýr sem börnin geta komist í nána snertingu við, kýr sem mjólkuð er á málum, hænsni, hestar, sem hægt verður að fá að setjast á bak á, kanínur og fleira. Skólar ætla að notfæra sér hinn nýja barnadýragarð og fara með börn þangað í hópum og segja þeim til. Þessi nýi barnadýragarður kemur til með að kosta 5,3 danskar milljónir. Ymsar stofnanir hafa gefið hluta af þess- ari upphæð, annað er lánað án vaxta. Vonast er til að vinna við þessa nýju deild garðsins geti hafist á afmælisdaginn í haust. Litillen vinalegur Dýragarðurinn í Kaupmanna- höfn er ekki stór miðað við til dæmis dýragarðinn í London. En hann er mjög vinalegur. Það virðist fara tiltölulega vel um flest dýrin og þau una sér vel, svo vel að það er ekki óalgengt að í garðinum fæði þau af sér afkvæmi. Slíkt gerist ekki víða í dýragörðum. Öll mikilvægustu dýrin eru líka þarna, ljón, tígrisdýr, birnir, úlf- ar, slöngur, fílar, flóöhestar, gír- affar og svona mætti lengi telja. Svæðið milli búra dýranna er þakið fallegum gróðri. Þegar ég var þar snemma í vor var allt að springa út, bæði dýrunum og fólkinu, sem kom til að skoða þau, til mikillar gleði. Mikið er gert fyrir gestina, greinilegar merkingar og sérstök skrifstofa, þar sem hægt er að fá nánari upplýsingar, sléttir og góðir göngustígir, aö mestu tröppulausir, hreinlætisaðstaða og veitingar. Aðgangurinn kostar 8 krónur fyrir börn, 23 fyrir fullorðna og 18 krónur fyrir ellilífeyrisþega. Á sumrin er opið alla daga frá 9—17, 30 tbl. Víkan s

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.