Vikan - 26.07.1984, Blaðsíða 6
Tígurinn var orðinn óþolinmóður að bíða eftir matnum
sínum. Hann gekk um gólf og leit stíft á áhorfendur til að
kanna hvort fóðrunarmeistarinn leyndist ekki á meðal
þeirra.
Dagur í dýragarði
Turninn, tákn
dýragarðsins í
Kaupmannahöfn.
Úr honum sést
yfir allt svæðið.
Aðgangur kostar 5
krónur.
á veturna frá 9—16. Júlí og ágúst
er opið klukkutíma lengur en aðra
sumarmánuði, til klukkan 18.
Þó að hægt sé að kaupa
veitingar á svæðinu skal engum
ráðlagt það. Þær eru bæði dýrar
og vondar og á sumrin, þegar
mikiö er að gera, getur biðröðin
orðið mjög löng. Danir hika ekki
við að koma með nesti með sér og
ættu íslendingar að geta tekið upp
siði þeirra.
Barnakerrur og hjólastóla er
hins vegar hægt að skilja eftir
heima því hvort tveggja er hægt
að fá lánað án endurgjalds í
garðinum.
Garðurinn er í horni Friðriks-
bergsgarðsins. Þangað er hægt að
komast með strætó númer 28 og 41
frá Ráðhústorgi og númer 39 frá
Friðriksbergi.
Heill dagur i dýragarði
Það er auðséð að margir Danir
koma oft í dýragarðinn sinn og eru
þar lengi í einu. Þegar staðnæmst
var hjá búrum dýranna mátti
heyra langar og miklar samræður
um þau. Fólkiö þekkti þau meö
nöfnum og bar atferli þeirra
saman við þaö sem hafði verið
síðast þegar þau voru skoðuö.
„Nú er Fífí í fýlu. Siðast þegar
ég sá hana brosti hún út að
eyrum.”
Það kemur líka stundum fyrir
að garðurinn er bókstaflega að
springa af fólki. Til dæmis komu
hvorki meira né minna en 56
þúsund manns í heimsókn um
páskana. Þá lá við að börn og
gamalmenni træðust undir. Um
helgar er ekki óalgengt að gestir
komist upp undir 50 þúsund. Is-
lenskum ferðalöngum skal því
ráðlagt að fara fremur virka daga
en helga ef þeir geta komiö því
við.
Það er enginn vandi að
eyða heilum góöviðrisdegi í dýra-
garðinum, reika um á milli dýr-
anna, setjast niður á bekk og njóta
sólarinnar og borða nestið sitt. Til
að auka ánægju gestanna er
dýrunum ekki gefið að éta öllum á
sama tíma. Allan daginn er því
hægt að sjá hinar ýmsu tegundir
6 Víkan 30. tbl.