Vikan - 26.07.1984, Blaðsíða 12
Litið inn til listamanna:
■ H leii TISÓ kr lá
í sambandi við heimsókn forseta Íslands, Vigdísar Finnbogadóttur, til Finn-
lands nýverið var opnuð sýning þar sem þetta verk Leifs Breiðfjörðs gleður
augu gesta.
Glermyndahefð á íslandi á sér
ekki langa sögu. Á meðan
franskar, enskar og þýskar kirkj-
ur á miðöldum glömpuðu af marg-
litum glermyndum voru litlu
íslensku kirkjumar fremur fá-
brotnar útlits enda fátækt mikil á
heimaslóö þeirra. Það er fyrst á
20. öld að glermyndir fara að birt-
ast á íslandi. Einna fyrstu gler-
myndir í íslenskum kirkjum em
gluggamir í kaþólsku kirkjunni í
Reykjavík og í Bessastaðakirkju,
skreytingar gerðar af erlendum
glerlistarmönnum. En fljótlega
komu fram á sjónarsviðið íslensk-
ir listamenn sem námu þessa list
erlendis og era þar fremstar í
flokki listakonuraar Nína
Tryggvadóttir og Gerður Helga-
dóttir en list þeirra er þekkt bæði
hér heima og erlendis. Einn arf-
taki þessara kvenna og það nafn
sem er hvað þekktast í glerlist á
íslandi um þessar mundir er án
efa Leifur Breiðfjörð, en hann
nam glerlist að loknu námi við
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands við Listaskólann í Edin-
burgh, Edinburgh College of Art.
Leifur hefur einnig ferðast mikið
um Evrópu og kynnt sér glerlist
og fyrstu verkefni hans eftir að
hann kom heim frá námi 1968 vora
gluggaþrenning fyrir Fossvogs-
kapellu og veggur í gamla góða
Þjóðleikhúskjallaranum.
Leifur hefur haldið margar
einkasýningar og tekið þátt í fjöl-
mörgum sýningum bæði hér
heima og erlendis og verk hans
má sjá víða, á Hótel Sögu, á Skála-
felli í Hótel Esju, í Bústaðakirkju í
Reykjavík, í Flateyrarkirkju, svo
nokkur dæmi séu nefnd. Þá hefur
Leifur hannað bæði rými svo og
alla innanstokksmuni kapellu
Kvennadeildar Landspítala Is-
lands en kona hans, Sigríður
Jóhannsdóttir vefari, á þar heið-
urinn af myndvefnaði, en þau
Leifur vinna mikið saman.
Vikan heimsótti Leif á dögunum
í vinnustofu hans að Sigtúni 7 í
Reykjavík en þar, í blikksmiðju
föður síns, Breiðfjörðsblikk-
smiðju, hefur Leifur haft vinnuað-
stöðu frá því hann lauk námi. Á
vinnustofunni var öll fjölskyldan
saman komin: eiginkonan var að
blýleggja hluta af dreka nokkram
sem kemur til með að gleðja gesti
Kjarvalsstaða í framtíðinni og
synirair, Jói og Óli, vora ýmist að
dunda við að smíða eða litu í blað
inn á milli.
12 Vikan 30. tbl.