Vikan


Vikan - 26.07.1984, Page 15

Vikan - 26.07.1984, Page 15
vinnustofu LeHs Breiðfjörðs glerlistarmanns skýröi gang mála fyrir blaöa- manni: „Helstu efnin sem eru notuð við gerð glermynda eru glerið sjálft sem er antíkgler og er gegnumlit- að. Það er hægt aö fá mismunandi áferö á glerið, eins og bólótt, æðótt og eins er hægt að fá það mislitt. Þá eru notaðir blýfalsar sem eru í mismunandi breiddum og tengja saman hin ýmsu glerform myndarinnar og aö lokum er lóð- tin notað til að tengja blýfalsana saman. Þegar ég ræðst í þaö verk- efni að gera glermynd fyrir ein- hvern ákveöinn stað er fyrsta verk mitt aö athuga allar aðstæður á staðnum, birtu, staðsetningu glugga, umhverfið og fleira. Eftir að hafa velt þessu fyrir mér, mis- munandi lengi eftir verki, geri ég frumteikningu að glermyndinni en þessi frumteikning er síðan stækk- uð upp í réttar stærðir. Þá fer að koma að glerskuröi og að velja glerið og þá þarf að gera vinnuteikningar þar sem allar blý- línur eru merktar inn á. Þessa vinnuteikningu mála ég síðan aft- an á stóra glerrúðu sem er stað- sett þannig að dagsbirtan fellur í gegnum hana. Gleriö er síðan skorið meö glerskera eftir þessum vinnuteikningum. Þetta er gert á ljósborði og fest upp á glerplötuna en þannig eru litirnir valdir saman. Þá kemur til blýlagningin sem Sigríöur vinnur að mestu og þegar henni er lokið er lóöfeiti borin á samskeyti blýfalsanna og lóðað með tini. Þetta er gert báðum megin glermyndarinnar en síðan er kíttað í blýfalsana og þeim þrýst að glerinu og lokaö og mynd- in þannig fest. Að lokum tekur hreinsun við en frágangurinn miö- ast síðan við endanlega staðsetn- ingu verksins. Þegar ég geri steindan glugga fyrir ákveðinn stað þróast verkiö í gegnum ótal skissur og teikningar þar til endanleg vinnuteikning er gerð. Oft gefur þessi forvinna miklar upplýsingar um vinnu listamanna og listaverkin sjálf. En mér hefur fundist allt of lítil rækt lögð við þessa hlið á vinnu listamanna yfirleitt.” — Engin vinnuslys? „Ekki mikiö, verk hafa dottið í gólfið meö minni háttar afleiðing- um. En ég átti einu sinni verk sem komið var í heimahús en ekki búiö að setja upp. Þaö lá upp viö glugga þegar köttur geröi sig heimakominn og kom inn glugg- ann og velti verkinu um koll. Þetta var mynd sem var alveg tilbúin til uppsetningar. Nei, það er frekar lítið sem hefur brotnað en ef það kemur fyrir er ekki annað að gera en annaðhvort að gera við verkið eða vinna það upp á nýtt og allar teikningar eru aö sjálfsögðu fyrir hendi.” Hef alltaf verlð veikur fyrir flugdrekum Þegar komið er inn fyrir dyrnar á vinnustofu Leifs í Sigtúni 7 blasir við risastór flugdreki úr pappa á veggnum en aö þessum dreka er Leifur einmitt að vinna núna. „Þessi flugdreki eöa bróöir hans úr glerinu á að fara á Kjarvals- staði. Þetta er eitt af skúlptúr- verkunum, hann er stór og kemur til með að hanga í loftinu á Kjar- valsstöðum en annars er hann þannig úr garði gerður að þaö er hægt að taka hann í sundur í parta sína og hengja til dæmis hluta hans í glugga, nú eða drekinn get- ur haldið til á gólfinu í stað þess að hanga yfir fólki. Drekinn er eigin- lega kominn til af því að ég var meö verk á samsýningu FIM á Kjarvalsstöðum 1980. Ég geröi til- lögu að verki, hún var samþykkt 1982 og ég hef verið aö vinna í drekanum af og til síðan. Þarna er hugmyndin sú að nota efni í verk sem annars er ekki nothæft í raun- veruleikanum. Enginn myndi láta sér detta í huga að útbúa glerflug- dreka ef hann ætti að fljúga. Ég hef gaman af að nota glerið í eitt- hvað sem í raunveruleikanum er ekki mögulegt.” Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Leifur leikur sér meö flugdreka og brúnin lyftist á listamanninum þegar taliö berst að flugdrekum: „Þetta er ekki fyrsti glerflug- drekinn sem ég geri. 1969 var ég með flugdreka á sýningu í Nor- ræna húsinu. Ég hef líka leikið mér með flugdreka með strákunum mínum, bjó einu sinni meira að segja til kolkrabba sem flaug á flugdrekadegi á Kjarvalsstöðum. 1979 má segja aö hafi verið nokk- urs konar flugdrekaár hjá okkur Loftskreyting á Skálafelli í Hótel Esju. fjölskyldunni, vorum mikið að búa til flugdreka og upp úr því má segja aö ég hafi snúið mér að gler- drekunum. Það var tímabil sem ég varð næstum að velja á milli flugdrekans og vinnunnar. Ég hef meira að segja komist í kast viö lögin út af dreka sem ég og strák- arnir mínir vorum með á lofti. Eg var í óðaönn að greiða úr ein- hverri flækju þegar allt í einu stendur hjá mér lögregluþjónn sem segir aö ég sé kominn með dýrið í aöflugslínu. Ég stóð þarna einn og vandræðalegur því strák- arnir voru auðvitað roknir eitt- hvaö. Eg hef átt glerdreka á sýningu í Finnlandi, á flugdrekasýningu. Það hefur verið gaman aö þessum dreka sem á að fara á Kjarvals- staöi og það veröur sárt aö missa hann en hann á eflaust eftir að eiga góða daga á Kjarvalsstööum og þaö verður gaman að fylgjast með hvort hann veröur í náðinni eða ekki þegar ég kem þangað.” 30. tbl. Vikan 15

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.