Vikan


Vikan - 26.07.1984, Page 20

Vikan - 26.07.1984, Page 20
„Enn eitt rothöggið,” hugsaði ég, en það hefur þessi áhrif á mig líka svo að ég held mig á mottunni. Foreldrar mínir fluttu ekki þangað frá Chicago fyrr en ég var í gagnfræöaskóla og ég hef aldrei vanist losarahættinum þar. „Faðir þinn hlýtur að hafa verið einhvers konar auðjöfur,” sagði Ellie á leiðinni. „Sannur óvinur fólksins.” „Hvað gerði hann? ” „Bókhaldari — fyrirtækis sem bjó til vínil sætisáklæði.” „Eins og þú.” „Nei. I hans augum var þetta starfiömeð stóru S—i.” „Það var gott að þú sagðir mér þetta. Það væri svo leiðinlegt að halda að þér væri alvara með búðina eða svoleiðis. ” „Þetta er aðeins starf mitt — ekkert annað. Ég lenti í þessu á áttunda áratugnum þegar stjórn- málaskoðanir mínar fóru að breytast.” „Staðreyndin er sú,” sagði hún, „að hvorugt okkar er að gera það sem við vorum að gera fyrir tíu árum. Þú stjórnaðir kröfugöngum og hélst ræður en ég bjó mig undir hjónabandið. Nú er ég hætt við að vera gift og þú leitar að nýrri útrás fyrir stjórnmála- áhugann, en við lifum þó enn. ” Pabbi var að blanda áburð úti í garði þegar við komum. Hann kom og tók þéttingsfast í hendur okkar — stór maður með úlnliði á við upphandleggina á mér. Ég hef aldrei skilið hvers vegna hann varð ekki verkalýðsleiðtogi. Það hefði hæft honum svo vel — útlitsins vegna. En ég skil líka vel að hann velti því fyrir sér hvers vegna ég, þessi nærsýni, granni maður, gerðist ekki viðskipta- fræðingur meö stór gleraugu. Hann horfði á litla bílinn minn, ekki beint með vanþóknun heldur eins og það ylli honum von- brigðum að ég væri að aka svona bíl, á mínum aldri. „Eyddirðu miklu bensíni á leiðinni?” spurði hann og átti þá við að þessir litlu bílar eru þekktir fyrir sparneytni. „Of miklu. Við ættum kannski að setja áburö á geyminn.” „Þetta er tómstundaiðja mín,” sagði hann við Ellie. „Ég býst ekki við að Carl hafi fengið áhuga ágarðvinnu?” „Á illgresi og glerbrotum,” sagði ég. „Það er fyrir framan húsið,” sagði Ellie. „I bakgarðinum ræktar hann baunir og spergil- kál.” „Þú hefðir átt að færa mér eitt- hvað,” sagði hann, „sem garð- yrkjumanni.” „Manstu eftir snákunum?” sagði ég. Árið sem við fluttum var mikið af snákum í garðinum. „Nú eru það dúfurnar úr bæn- um,” sagði hann og benti upp á þakið þar sem ég sá nokkrar feitar dúfur bíða. „Ég á í höggi við starrana,” sagði ég og sá að Ellie gaf mér þýðingarmikið augnaráð. Ég vissi hvað hún var að hugsa: dúfurnar hans og starrarnir mínir, bók- haldið hans og bókhaldið mitt — ágætiskenning í sjálfu sér. OKKUR BRÁ þegar við komum inn í kuldann. Foreldrar mínir gerðu alltaf of mikinn mun á því að vera inni og úti svo að það var alltaf eins og að koma í annað loftslag að fara inn. „Mikið er þetta gott eftir hitann á leiðinni,” sagði Ellie, brosti til okkar pabba og fór að þvo sér en skildi töskuna eftir. „Við ættum kannski að fara með tösku Eleanor upp til henn- ar,” sagðipabbi. „Ég vil ekki vera leiðinlegur en viö ætluðum að vera í sama her- bergi.” „Ö,” sagði hann gætinn. „Mamma þín hefði ekki verið ánægð með það. En ég veit að tímarnir breytast og mennirnir með. Svo...” „... aðþað er ílagi?” Hann kinkaði kolli. Svipurinn var blanda af feimni og stolti. „Við getum farið með töskurnar í herbergi móður þinnar eða gamla herbergiðþitt.” „Herbergið mitt,” sagði ég og sá á svipnum á honum að ég hafði valið rétt. HANN GEKK á undan og Ellie kom til okkar þegar við komum að dyrunum. „Viö höfum haft þetta fyrir gestaherbergi frá því að Carl fór að heiman,” sagði hann til að skýra muninn á postulíns- styttunum og leifunum af bjór- dósasafninu. Hann setti tösku Ellie við annað rúmið og mína við hitt. Hann sagði okkur að við þyrftum ekki að hugsa um að fara út í mat því að hann væri að elda mat sem hann hefði aldrei reynt fyrr. „Gott,” sagði ég og Ellie leit viðurkenningaraugum á mig. Eftir að hann var farinn teygðum viö úr okkur í rúmunum og hún fór að blaða í gömlu Andrésar andar blöðunum mínum. „Það er matur íþessu,”sagðiég. „Æ, ég veit ekki,” svaraði hún. „Andrés er eitthvað að plata Andrésínu.” „Hvað áttu við? Samband þeirraersvo gott.” „Ég held að hún vilji giftast honum.” „Hvers vegna er hún þá að fara út með frænda hans? ” „Svo að Andrés verði ekki of montinn. Hann er vanur að ráða yfir henni.” „Hvernig veistu það? Þú ert bara búin meðtvö blöð.” „Ja, aðstæður eru ekki ókunn- uglegar.” Ellie heldur að ég skipti lífi mínu niður í merktar einingar. En tak- mörkin veröa eitthvað ógreini- legri hérna heima, með kærustuna innan um barnadótið. Pabbi hafði búið til kvöldmat eftir uppskrift úr vikublaði. Hann bragðaði á matnum og beið svo eftir viöbrögðum okkar. „Ég vona að sósan sé ekki of sterk,” sagði hann. „Það er í henni rauö paprika, hvítlaukssalt, berjahlaup og sinnep. ” Rauð paprika? Mamma hélt því fram að hún væri óholl fyrir magann. Og pabbi notaði hana í matinn! Þegar við vorum búin að borða og sátum yfir kaffinu sagði pabbi okkur frá eldamennsku sinni. Heilan mánuð hafði hann borðað frystan mat sem mamma hafði búið til — hver máltíð (þó að hann segði það ekki) annarri verri. Svo hafði hann lifað á snarli í heilan mánuð en núna var hann farinn að nota þekktar uppskriftir úr viku- blöðum. Ellie og pabbi lækkuðu róminn á meðan þau voru að þvo upp í eld- húsinu. Hefði ég átt að sjá þessi tengsl þeirra fyrir? Nú voru dyrnar opnaðar og pabbi sagði ánægjulega: „Eleanor segir mér að búðin velti tuttugu þúsund dölum á mánuöi.” „Það fer lítið af því í minn vasa!” „Ég veit að þú hefur góð laun en tölurnar merkja góða stjórnun. Yfirmennirnir hljóta að sjá það. ” „Mér er sama hvað þeir sjá og hvað ekki! Ég vil bara fá kaupið mitt og vinna í friði. ” Ég er alltaf að vona að þú takir starfið alvarlegar.” „Ég tek alltaf eitthvaö alvar- lega. Þú hefur bara aldrei verið ánægður með það sem ég tek alvarlega.” Þrætutími. Hvort sem það var Víetnam 1970, ózonbeltið 20 Vikan 30. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.