Vikan


Vikan - 26.07.1984, Síða 33

Vikan - 26.07.1984, Síða 33
Tískumynd frá franska fyrirtækinu Bourjois. Það er með eldri snyrtivörufyrirtækjum og litirnir í augn- skuggum og kinnalit hafa margir verið framleiddir eins frá upphafi. Teiknaða myndin er einnig frá Bourjois og sýnir vel þessa línu sem nú er að koma - yfirbragð fyrri tíma endurvakið með örlitlum breyt- ingum í takt við annan hugsunarhátt og tíðaranda. púður. Það náði geysilegri útbreiðslu og eftir- líkingar skutu upp kollinum um allan heim. Hann byrjaði að framleiða það fyrir Comédie Francaise — en leikkonurnar þar voru hans átrúnaðargoð. Og einn af hans fyrstu við- skiptavinum var ung leikkona Sarah Bern- hardt að nafni. Þá var árið 1862. Og síðar, árið 1890, kom frá honum fyrsti kinnaliturinn, síðar augnskuggar og augnblýantar. Bourjois varð heimsfrægt fyrir snyrtivörurnar og boxin kringlóttu urðu hátískuvara. Síðar komu önn- ur fyrirtæki til sögunnar og gamla nafnið féll í skuggann af öðrum nýjum. Framleiðslan hélt áfram samt sem áöur og alltaf voru til í Frakklandi tryggir viðskiptavinir sem ekki höfðu keypt annað frá upphafi. Litimir voru þeir sömu og áður — ekkert breyttist. En konumar sem fylgt höfðu Bourjois vom famar að safnast til feðra sinna þannig að ekki vom horfurnar góðar. Þá kom avant-garde tískan til sögunnar. Ungir förðunarlistamenn í París lentu í stökustu vandræðum með að finna réttu litina í farða til þess að ná sömu áhrifum og í fatnaðinum. Einhver hreinlega datt niður á litina í skrýtnu kringlóttu boxunum frá Bourjois sem höföu verið framleiddir í sama formi frá því fyrir i stríð. Verðið hafði víst lítið hækkað heldur. Fiski- ' sagan flaug, gamla fyrirtækiö hætti að geta ■ annað eftirspurn og rétti úr kútnum. Núna eru I sífellt fleiri litir að bætast við en þeir gömlu halda ennþá velli — óbreyttir! Gamla verksmiðjan er ennþá til í fullum gangi þótt nýrri hafi verið komiö á laggimar og núna em uppi hugmyndir um að breyta þeirri eldri í safn. Gaoli rrfíg~rtf Svo aftur sé snúið að sálargluggunum er það trú margra að augnliturinn segi til persónuleikann. Margir telja sig geta lesið augnaráð, talandi augu eru meðal þess sem allir kannast við að hafa heyrt um og mann- skepnan á víst að hafa mismikið skrafhreyfin augu ef trúa má almannarómi. Elskendur horfast stíft í augu, tala síðan og yrkja um þá reynslu sína og í því var Vatnsenda-Rósa engin undantekning þótt hún kannski félli á skjön við kerfið að öðru leyti. Hún sagði um sinn heittelskaða svo sem frægt er orðið: Augun mín og augun þín, ó, þá fögru steina. Mitt er þitt og þitt er mitt — þú veist, hvað ég meina. Undir fjöguraugu: í samræmi við þá trú manna að augnlitur segi til um persónuleika birtum við fróðleiksmola í þá veru. Tökum þó fram að við seljum þá ekki dýrara en við keyptum þá — komu okkur að kostnaðarlausu frá fyrirtækinu Elizabeth Arden í New York. ■______J n. u~1 L<S&pZu' - HStS 'j BiliTl

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.