Vikan - 26.07.1984, Qupperneq 48
Pósturinn
AIRM AIL
PAR AVION
Út úr einangruninni
Kœri Póstur!
Ég hef oft séd að þú getur
legst iir mörgum vandamál-
um svo ég ákvað að leita
ráða hjá þér í þeirri von að
þú getir ráðlagt mér eitt-
hvað. Mér finnst allt vera
svo svart og ömurlegt að það
liggur við að mér finnist líf-
ið varla þess virði að lifa því
lengur.
Ég er 17 ára og hef alla
mína œvi átt heima í sveit á
mjög einangruðum stað. Ég
var þó í heimavistarskóla í 5
ár en það gekk mjög illa því
þó ég vœri sœmileg að lœra
þá þótti ég eitthvað öðruvísi
og var mikið strítt. Þar kom
að ég hélt það ekki út að
Ijúka skyldunámi. Ég fórþví
heim og var þar samfleytt í
þrjú ár eða þangað til núna í
janúar. Þá œtlaði ég nú al-
deilis að byrja nýtt líf, fór
að heiman og byrjaði að
vinna í frystihúsi en byrjun-
in var hrœðileg. Margir
höfðu gaman afþví að reyna
að plata mig því ég hafði
aldrei komið í frystihús fyrr
og það varð til þess að ég er
svo vör um mig og tortryggin
að fáir tala við mig og mér
finnst ég vera enn ein-
angraðri hér í þéttbýlinu
heldur en heima. Merkilegt
nokk.
Ef ég fer á böll hérna nœ
ég yfirleitt ekki sambandi
við nokkra manneskju og
þetta varð til þess að ég fór á
fyllirí eitt kvöldið. Það er nú
fyrsta og síðasta fylliríið
mitt því ég skil ekki hvernig
fólki getur líkað að vera
fullt. Það er alltaf verið að
segja að það sé ekki hœgt að
skemmta sér án áfengis en
ástandið batnaði ekkert hjá
mér þó ég drykki mig fulla.
Ég hef aðeins einu sinni
verið með strák og það var í
sumar en þegar ég hitti hamt
hérna vildi hann ekkert við
mig tala og það varð til þess
að ég brotnaði algjörlega
niður.
Það liggur við að ég fari
að halda að ég sé eitthvað
klikkuð eða haldin ofsóknar-
brjálœði eða ég veit ekki
hvað.
En það sem ég bið þig um,
Póstur minn góður, er að
gefa mér ráð til að brjótast
út úr þessari einangrun og
ná einhverju sambandi við
til dœmis stráka. Og hvernig
er það, œtli sé reynandi fyrir
mig að fara til sálfrœðings
ef einhver slíkur er hérna í
plássinu? Eða hvað get ég
eiginlega gert?
Jœja, það er best að hœtta
þessu rausi áður en þú gefst
upp á að lesa það — ef þú
hefur ekki þegar gefist upp.
Og ég yrði þér ákaflega
þakklát efþú gœtir gefið mér
eitthvert gott ráð.
Og svona að síðustu. Hvað
lestu úr skriftinni?
Ein einangruð á mölinni.
Ekki finnast nú neinar töfrafor-
múlur um þaö hvernig fólk getur
brotist út úr félagslegri ein-
angrun. Þaö er þó engin ástæða til
þess fyrir svo unga stúlku aö ör-
vænta því þú átt lífið framundan.
Auk þess sýnist Pósti að þú hafir
margt til brunns aö bera sem geti
orðið þér til gagns og ánægju.
Bréfið þitt er greindarlega stílað
og ef rétt er á haldið rætist örugg-
lega úr fyrir þér.
Að nýgræðingum sé strítt á
vinnustað er ekki ný bóla, flestir
þekkja slíkar sögur til dæmis af
togurum og víðar. Helsta ráðið
gegn svona hrekkjum er að láta
sér fátt um finnast, hlæja mátu-
lega og helst að gjalda líku líkt.
Það er áreiðanlega verst að láta
hrekkjalómana finna að manni sé
skapraun að gabbinu.
Þú hefur rétt fyrir þér meö
áfengiö. Þaö læknar engan en
getur auðvitaö orðið fólki til
ánægju sé þess neytt í hófi á glaðri
stund. En í efninu er enginn lækn-
ingamáttur fólginn.
Þú skalt ekki gera þér grillur
yfir stráknum. Ef mér sýnist rétt
er það mikið í þig spunnið að þú
þurfir ekki að vola yfir piltungi
sem ekki kannast við stúlkuna
sína þegar hann hittir hana í fjöl-
menni. Þaö eru margir fiskar í
sjónum. Þú þarft ekkert að vera
að flýta þér að ná sambandi við
hitt kynið, það er engin hætta á því
að þeir hætti að gefast. Og ekkert
er athugavert við það að vera ekki
í neinu sambandi við stráka. Það
er kannski meira áríðandi fyrir
þig að eignast trúnaðarvin því oft
er gott að geta treyst einhverjum
fyrir raunum sínum og því sem
ánægjulegra er. Ég held að það sé
of snemmt fyrir þig að ákveða að
þú náir ekki neinu sambandi við
þá sem vinna með þér, þú skalt
bara reyna að líta á björtu
hliðarnar og ekki ætlast til of mik-
ils af félagsskapnum.
Þú spyrð um sálfræðing. Póstur-
inn heldur að sennilega sé réttast
fyrir þig að leita ekki til sálfræð-
ings í litlu plássi. Heldur skalt þú,
ef þú átt þess kost, leita til sál-
fræðings ef þú átt leið til Reykja-
víkur. Sálfræðingur gæti áreiðan-
lega gefið þér einhver ráð. Annars
finnst Póstinum að þú ættir að
hugleiða hvort ekki eru einhverjir
möguleikar á því fyrir þig aö
halda áfram námi. 17 ár eru ekki
hár aldur og þú virðist eftir bréf-
inu að dæma vel geta lært til
bókarinnar. Fyrir konu á þínum
aldri ættu allar dyr til náms að
standa opnar og fráleitt að nýta
ekki unglingsárin til þess að afla
sér menntunar ef geta stendur til.
Því miður hefur hæfileikum
Póstsins til þess að ráða úr skrift
farið mjög undarlega hrakandi
upp á síðkastið en helst virðist
honum skriftin benda til þess að
þrátt fyrir allt sé nokkuö góður í
þér bakfiskurinn. Þú ert nokkuð
feimin og hlédræg en snögg upp á
lagið ef þú ert áreitt.
Bara
ástarmálin
Hœ, hœ, kœri Vikupóstur!
Eg er hérna með spurning-
ar sem ég œtla að leggja
fyrirþig.
1. Tekur Pósturinn bara
ástarmálabréf til að svara
(þið mœttuð fœkkaþeim)?
2. Hvar get ég eignast fœr-
eyskan pennavin ?
Jœja, bœ, bless!
P.S.
Geturðu birt plakat með
mynd af Nenu og svo þetta
sama: Hvað lestu úr skrift-
inni og hvað heldurðu að ég
sé gömul?
Ein á Selfossi.
1. Eins og sjá má birtir Póstur-
inn ekki bara ástarmálabréf. Það
er einu sinni svo að þessi mál
liggja þungt á hjörtum vina Pósts-
ins og Póstur reynir alltaf sitt
besta til þess að gefa góð ráð. Það
er ekki á valdi Póstsins að fækka
bréfum sem honum berast.
2. Best væri fyrir þig að skrifa
einhverju færeysku blaði. Ekki
höfum við á takteinum heimilis-
föng færeysku blaðanna. En við
höfum nöfn á að minnsta kosti
þremur. Þau eru: Dimmalætting,
14. september og Sósíalurinn. Trú-
lega er nóg að skrifa bara nafnið á
blaöinu og Tórshavn, Föröyar þar
undir. Ef færeyska póstþjónustan
er jafndugleg og sú íslenska við að
koma pósti til skila ætti þetta að
duga!
Svar við P.S.: Við höfum komiö
þessu með plakatið af henni Nenu
áleiðis í poppdeildina. Póstur
treystir sér ekki til þess að lýsa
þér nákvæmlega út frá þessu
stutta bréfi en líklega hættir þér
ofurlítið við kæruleysi og að skipu-
leggja illa það sem þú tekur þér
fyrir hendur. Þetta getur þó allt
staðið til bóta því Póstur heldur að
þú sért 10—12 ára gömul og átt
þess vegna framtíðina fyrir þér!
48 Vlkan 30 tbl.