Vikan


Vikan - 26.07.1984, Síða 50

Vikan - 26.07.1984, Síða 50
Nýjustu rannsóknir á Loksins er hægt aö skoöa andlit hins brosmilda manns á vísinda- legan hátt. Nú er hægt aö úr- skurða meö mælitækjum hvort bros er virkilega bros eöa bara yfirbreiðsla. Umkvartanir Charles Darwin eiga ekki lengur viö en hann taldi áriö 1872 aö rann- sóknir á svipbrigöum væru ein- staklega erfiöar af því að „vööva- hreyfingarnar eru vart merkjan- legar og ganga skjótt yfir”. Sálfræðingurinn dr. Paul Ek- man hefur stundaö rannsóknir á brosi mannskepnunnar og meöal annars komist aö þeirri niður- stööu að mismunandi hugar- ástand sé hreinlega hægt að lesa úr andlitinu með því að skoöa hvaða vöövum er beitt í brosinu. Sá sem ekki brosir þvinguðu brosi og hefur ekki uppi háðsglott eða hræsnissvip — hann brosir glað- lega meö andlitsvöðvum númer 6 og númer 12. Tilfinningar hafa orðiö viðfangsefni vísindarannsókna, sem og flest annaö mannlegs eðlis. Sambandið á milli svip- brigða og tilfinninga hefur meðal annarra hluta verið undir smásjá rannsóknarmanna. Og nú er svo komið að „í fyrsta skipti hillir undir aö hægt sé að mæla til- finningar með vísindalegum hætti”, svo notuð séu orð Richards Davidson sálfræðiprófessors við fylkisháskólann í New York. Vissulega gilda enn varnaöar- orð Charles Darwin í bók hans um Tjáningu hugarástands hjá mönn- um og dýrum sem út kom 1872; „ . . . þegar við væntum þess eðli málsins samkvæmt aö sjá ákveðin svipbrigði, hneigjumst við til að ímynda okkur að einmitt þau svip- brigði séu til staðar.” Athuganir Darwins beindust að því að komast að raun um „að hvaða marki ákveðin svipbrigði . . . gefa raunverulega til kynna ákveðið hugarástand. ” Hann studdist einkum viö athuganir á börnum og geðsjúklingum og taldi aö þau mundu tjá geðshræringar á taumlausari hátt en aðrir. Enn- fremur notfærði Darwin sér ljós- myndir frægs taugalæknis í París, Guillaume Duchenne aö nafni. Sá beitti rafstraumi til að framkalla hræringar andlitsvöðvanna. Á dögum Darwins voru aðeins taldir 55 vöðvar í mannsandlitinu. Með því að nýta sér video- og tölvutækni hafa Ekman og félagar kortlagt hina 80 andlitsvöðva og að auki fundið út hvaöa vöðvum er beitt til að tjá mannlegar til- finningar. Núna geta þeir gefið til kynna hvaða andlitsvöðvar tjá mismunandi tilfinningar eins og reiði, sorg, gleði, samþykki eða ó- samþykki. Ekki nóg með það — sál- fræðingarnir prófuðu niðurstöður sínar með því að bera skil- greiningar á svipbrigðum saman við heilastarfsemi á sama augna- bliki. Tölva vann úr þessum upp- lýsingum og einnig öðrum um hjartslátt, svitun og fleiri þætti líkamlegs ástands. 1 ljós kom aö sérhverju tilfinninga- eða hugar- • ástandi fylgir alveg ákveðiö lík- amsástand. Þessar aðferðir leiddu í ljós leyndar tilfinningar. Fjórir þátt- takendur í rannsóknartilraunum sálfræðinganna sýndu blekkjandi bros þegar skoðaðar voru video- myndir sem höfðu verið teknar við mismunandi aðstæður. Talna- röðin, sem gefur til kynna vöðva- notkunina, sýndi hverju sinni hvaö bjó raunverulega að baki brosinu. Kona, sem hafði nýlega fengið uppsögn í starfi, duldi reiöina með brosinu „1,2,13,25,55” (sjá mynd 1). Hjá starfsmanni sjúkrahúss, sem heilsaði nýjum sjúklingi, varaði brosið aðeins tvær sekúnd- ur, síðan setti hann upp 10 sekúndna langt yfirdrifið bros sem nefnist „12, 20, 5, 53, 56” (sjá mynd2). Maöur, sem hafði látið út úr sér einum of harkalega gagnrýni, reyndi að draga úr þunganum með sáttabrosinu „12, 24, 41” (sjá mynd 3). Þetta hikandi, undir- gefna bros á f jóröu myndinni nefn- ist „1, 2, 12” og breiðir yfir uppgjöf. ^ Þetta misræmi milli þess sem fólk heldur aö það láti í ljósi og þess sem líkaminn lætur í ljósi í svipbrigðunum gæti orsakast af nokkurs konar innra „sambands- leysi”. Richard Davidson beindi því augunum að hópi fólks sem telst til „bældra”. — Þetta eru ein- staklingar sem halda því fram að þeir séu rólegir við streituástand en mælingar á líkamsástandinu benda hins vegar eindregið til verulegrar hræðslu. Rannsóknir á heilastarfsemi þessa fólks sýndu að sú taugastöö heilans, sem hýsir neikvæðar tilfinningar (hún er framarlega hægra megin í heila- berkinum), stendur ekki í nægilega greiðu sambandi við málstöðvarnar í vinstri hluta heilabarkarins. Mismunur kynjanna kemur aö mati sálfræðingsins Robert Levenson hjá Indiana-háskólan- um meðal annars fram í ólíkum viðbrögðum viö neikvæðum til- finningum, einkum reiði. Hann rannsakaði tilfinningaleg við- brögö sem í ljós komu við video- upptökur á samskiptum 50 hjóna. Konur, sem höfðu veriö reittar til reiði, væntu sams konar við- bragða hjá mökum sínum. Körl- unum nægði hins vegar aö láta reiðina í ljósi. Karlar virðast víkja sér undan viðvarandi neikvæöum tilfinning- um á heimilinu og telur Levenson ástæðuna vera þá að neikvæðar SO Vikan 30. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.