Vikan - 27.12.1984, Blaðsíða 11
Sam Neill í einu gervinu í Njósnaranum Reilly.
Margir kannast við leikarann Sam Neill eftir að hann hefur verið viku-
legur gestur á skjánum í þáttunum „Njósnarinn Reilly”. Þó Neill væri
orðinn töluvert þekktur áður en hann lék njósnarann skipti þetta hlut-
verk sköpum fyrir leiklistarferil hans. Nú má segja að Sam Neill stefni
hraðbyri á heimsfrægðina, þó svo að hann neiti því að það sé markmiðið
sem hann stefni að.
Sam Neill fæddist á Irlandi en
fluttist sjö ára gamall með for-
eldrum sínum til Nýja-Sjálands.
Eftir að hafa lokið námi í leiklist í
háskóla byrjaöi hann á því að
leika í leikhúsum. Athugull
ástralskur kvikmyndastjóri kom
auga á Neill og taldi að þessi leik-
ari ætti frekar heima á hvíta tjald-
inu. Síöan hefur hann leikið í
kvikmyndum eins og The Final
Conflict, Ivanhoe, Possession,
Enigma og My Brilliant Career,
en tvær þær síðastnefndu hafa
verið sýndar hér á landi. Eftir að
hann lauk við Njósnarann Reilly
lék hann í sjónvarpsmyndinni
Country Girls, sem gaf honum
færi á að heimsækja æsku-
stöðvarnar á Irlandi, og Blood Of
Others, kvikmynd sem byggð er á
bók Simone de Beauvoir.
Kvikmyndagagnrýnendur spá
Neill miklum frama á leiklistar-
sviðinu, segja að hann eigi ekki
eftir nema örfá skref til að ná hin-
um fámenna, útvalda hópi þeirra
karlleikara sem ekki eru aðeins
myndarlegir heldur geta LEIKIÐ
líka! Sam Neill segist taka einfalt
líf fram yfir stjörnulíf það sem
sumir leikarar kjósa sér. „Það er
ekkert á bak við slíkan lífsstíl,”
segir Neill. „Það eina sem ég hef
áhuga á er atvinna mín, leiklistin.
Eg hef engan áhuga á að verða
tákn fyrir eitt eða neitt. Eg vil lifa
venjulegu lífi. Mér finnst
skemmtilegast aö eyða tíma
mínum í að heimsækja vini mína,
fara á skíði eða hestbak, borða á
góðum veitingastöðum og fara á
bíó!
Ég er auðvitað mjög ánægður
Fyrrverandi sambýliskona Sam Neilf er ástralska leikkonan Lisa Harrow. Þau
eiga saman einn son.
yfir því hvað ég hef mikið að gera,
mér finnst ég tilheyra hálfgerðum
forréttindahópi þeirra sem hefur
gengið vel í þessum bransa. En
stundum hugsa ég: Guð minn
góður, hvað hef ég rótað mér í?
Þetta er ekkert líf. Eg held ég fari
bara heim og rækti epli! ”
Þegar Neill var spurður að því
hvort honum þætti gaman að leika
hlutverk kvennaflagarans og
njósnarans Reilly, sem misnotaði
miskunnarlaust þá sem vænst
þótti um hann, svaraði hann:
„Reilly vissi ekki hvaö heiðarleiki
eöa sómatilfinning var. Hann ólst
upp við misjöfn skilyrði og þar
sem heimurinn hafði brugðist
honum, þegar hann var ungur, sá
hann enga ástæöu til aö með-
höndla hann af einhverju rétt-
læti.”
En líkaði Neill viö persónuna
Reilly? „Já, ég held það bara. Eg
held að hver þorpari hafi ástæðu
fyrir þorparaskap sínum, mann-
lega ástæðu. Það eru mjög fáir
vondir alveg inn aö beini — það er
rangtúlkun.
Þó mér hafi þótt gaman að leika
þorparann Reilly ætla ég ekki aö
festast í einhverjum þorparahlut-
verkum. En mér finnst gaman að
spreyta mig á þeim margflókna
persónuleika sem svona persónur
hafa að geyma. Mér finnst gaman
að leika persónur sem eru öðruvísi
en ég sjálfur!”
I einkalífinu hefur Sam Neill
ekki gengið eins vel og á leiklistar-
sviðinu. Hann bjó með þekktri
ástralskri leikkonu, Lisu Harrow,
og saman eiga þau lítinn son, Tim.
Þau eru nú skilin. Neill gefur í
skyn aö álagið af því að vera í
sviösljósinu hafi átt sinn þátt í að
sambandið fór út um þúfur.
„Þetta setti ákveöna spennu í
sambandið. Guð veit að hjónabönd
eru nógu erfið eins og þau koma
fyrir. Maður þarf að gefa sig allan
svo þaugangi.”
En hvernig hreppti Sam hlut-
verk njósnarans Reilly?
„Eg hafði ekki unnið í nokkurn
tíma, tók mér nokkurra mánaða
frí af því tilefni og fór heim til
Astralíu. Eftir langt og strangt
ferðalag til baka til Bretlands var
ég aö labba inn í íbúðina mína
þegar síminn hringdi. Það var
umboðsmaðurinn minn sem sagði
mér að fara í hvínandi hvelli í
prufumyndatöku fyrir þættina um
Reilly!
Heyrðu mig, sagöi ég, ég er
dauðþreyttur og get ekki sýnt eitt
eða neitt af viti. Farðu strax,
sagöi hún og ég fór! Eg afsakaði
útganginn á mér við framleiðend-
urna því ég vildi ekki að þeir héldu
að ég væri algjör imbi. Eg man
ekki eftir neinu sem gerðist en
viku seinna var hringt í mig og
mér sagt að ég hefði fengið hlut-
verkið!
Eg ætla aldrei að hætta að leika
en ég verð að viðurkenna að mig
langar oft til aö leikstýra líka,”
segir Sam Neill. „Stundum held
ég að ég geti fengið betri hluti út
úr fólki heldur en ég næ frá sjálf-
um mér. En ég verð að viður-
kenna að ég er alveg tvíklofinn í
skoðunum. Stundum er ég mjög
metnaðargjarn og stefni að því að
verða besti leikari í heimi. Aðra
daga er mér skítsama hvaö
verður um mig,” segir Sam Neill
og brosir kæruleysislega.
^3 Margt smátt
Sam Neitt er Reitty
46. tbl. Vikan IX