Vikan - 27.12.1984, Page 17
I nýjustu mynd sinni, MOSCOW ON THE HUDSON, ákvað
leikstjórinn, Paul Mazursky, að gefa óþekktri leikkonu stóra
tækifærið. Hún heitir Maria Conchita Alonso og er frá Vene-
zuela. Þaö kemur eflaust einhverjum á óvart því í myndinni
leikur hún ítalska afgreiðslustúlku.
Maria Conchita Alonso hefur haft áhuga á leiklist síðan á
barnsaldri enda lék hún sitt fyrsta hlutverk í heimalandi sínu,
aðeins 4 ára gömul. Hún fór þó bakdyramegin inn í leiklistina ef
svo má að orði komast. Hún var kosin „Miss Teenager of the
World” eða alheimstáningur árið 1971. Ári seinna var hún krýnd
ungfrú Venezuela. Eftir það lék hún í fjórum kvikmyndum, tíu
sápuóperum og nokkrum söngleikjum í Venezuela. Hún er
einnig þekkt söngkona þar í landi. Fyrsta tækifæri hennar í
Ameríku var að syngja titillagið í kvikmyndinni Scarface og
síðan fékk hún sem fyrr segir hlutverkið í myndinni Moscow on
the Hudson. Hún leikur þar ítalska afgreiðslustúlku, Luciu, sem
vingast við rússneska saxófónleikarann sem ákveður inni í stór-
markaðnum Blomingdale aö biðja um hæli sem pólitískur
flóttamaður.
Kærleikar takast með rússneska saxófónleikaranum
(Robin Williams) og ítölsku afgreiðslustúlkunni
(Maria Conchita Alonso).
Þær Joan Collins og Linda
Evans keppa sífellt um
hylli áhorfenda, bæði í
einkalífinu og í Dynasty
þáttunum. Þaö er þó bara
Joan sem fær hótunarbréf.
Joan Collins er hrædd um
líf sitt!
Joan Collins, sú hin sama sem
leikur tæfuna Alexis í Dynasty-þátt-
unum, er nú á góðri leið með að
veröa milli út á þetta hlutverk sitt.
En' þaö er ekki þar með sagt að
allt sé gott og blessað. Hún þykir
nefnilega leika tæfuna svo vel að
þúsundir hótunarbréfa berast
leikkonunni daglega, þar sem fólk
ruglar henni og persónunni Alexis
saman!
Nú er svo komið að leikkonan
þarf aö hafa yfir sér lífverði allan
sólarhringinn. Nú nýverið þurftu 30
lífveröir að mynda skjaldborg utan
um hana svo hún kæmist frá húsi
einu þar sem hún kom fram á góð-
gerðarsamkomu.
Joan Collins hefur það notalegt á veitingastaðnum San
Lorenzo í London ásamt kærastanum, Peter Holm. Líf-
verðirnir eru þó ekki langt undan.
46. tbl. Víkan X7