Vikan


Vikan - 27.12.1984, Qupperneq 48

Vikan - 27.12.1984, Qupperneq 48
 Pósturinn AIRMAIL PAR AVION Of þroskuð? Kœri Póstur. Ég er nýorðin 12 ára og er með smávandamál. Þannig er mál með vexti að ég er svo þroskuð að ég er með jafn- stór brjóst og mamma og með heilan skóg að neðan. Ég er 161 1/2 cm og 51 kíló. Er ég of þung ? Mamma vill að ég noti brjóstahaldara en ég þori það ekki því einu sinni, þegar ég kom með brjóstahaldara í leikfimi, þá stríddu mér allir á eftir (allur skólinn frétti þetta auðvitað) og strákarnir tóku í teygjuna að aftan og slepptu henni beint á bakið — ég fór grenjandi heim. Á ég að nota brjóstahaldara? Strákarnir eru alltafað pota í brjóstin á mér og þegar ég geng fram hjá strákunum í 13 ára bekk þá flauta þeir alltaf á eftir mér og kalla mig kynbombu og þeir hafa líka reynt að gyrða niður um mig. Hvað á ég að gera? Ég grœt mig í svefn á hverju kvöldi. Vonandi birtirðu þetta, elsku Póstur. Ein á báti. Þú getur huggað þig við það að þú ert ekki sú eina sem hefur lent í þessu. Krakkar á þínum aldri eru einfaldlega ekki orðnir nógu þroskaðir andlega til aö viöur- kenna að það séu ekki allir eins og láta þess vegna svona barnalega. Þú ert sennilega bara búin að taka út þinn þroska líkamlega og ert ekki of þung. Þetta er því líklega tímabundið ástand því það þarf ekki að vera að þú verðir með of stór brjóst þegar þú ert orðin eldri. Það er ekki nauðsynlegt fyrir þig að ganga í brjóstahald- ara strax, þú getur alveg beðið með það í eitt til tvö ár svo framarlega sem það bitnar ekki á bakinu þínu en stundum getur verið nauðsynlegt að vera í brjóstahaldara ef brjóstin eru mjög stór. En þú ættir líklega bara að sleppa brjóstahaldar- anum svona fyrst í stað þar til skólafélagarnir eru hættir að vera svona barnalegir. Þú getur reynt aö klæða þig þannig að beri minna á brjóstunum þínum þannig aö brjóstapotararnir veröi ekki fyrir freistingum, blessaðir. I sambandi við þessa sem eru að reyna að gyrða niður um þig þá liggur nú við að þeir ættu skilið að vera rassskelltir berrassaðir á skólalóðinni fyrir vikið. Þú verður að reyna að verða ekki á vegi þessara pilta á meðan þeir hafa gaman af þessu og eins veröur þú að reyna að láta sem þetta hafi engin áhrif á þig, láta frekar sem þú vorkennir þeim fyrir að hafa ekkert betra að gera en að flauta og kalla á eftir þér. Hins vegar er líka spurning hvort ekki þarf að ræða við piltana og segja við þá nokkur vel valin orð án þess þó að það fréttist hver á í hlut en þetta fer auðvitað eftir því hvemig kennarinn þinn er því það væri best, ef þetta ætti að gerast, að það væri hann sem tæki það að sér. Þegar stúlkur á þínum aldri eru orðnar fullþroska getur það stund- um valdið því að þær eru þungar á sér og kannski ekki eins mikil mýkt í hreyfingum fyrir vikiö. Ef þér finnst þetta eiga við um þig ættir þú að athuga að fara í góða leikfimi eða heilsuræktarstöð og fá ráðleggingar um það hvers konar æfingar henta þér. Þetta getur verið mikil hjálp og með því að stæla líkamann dálítið og fá meiri mýkt í hreyfingamar getur þér liðið miklu betur. Mundu svo bara aö þú ert ekki ein á báti og sumar stelpur, sem eru alveg „brjóstalausar”, vildu gefa mikið fyrir að fá stærri brjóst — þetta tilheyrir víst þessu svokallaða unglingavandamáli. Tækniteiknun Kœri Póstur. Okkur langar mikið að vita eitthvað um hvernig starf það er að vinna við að hjálpa til að teikna á teiknistofum. Hvað er þetta langt nám? Hvar er þetta kennt? Hver eru skilyrðin til að komast íþetta? Takk, efþetta bréf verður birt. Vinkonur. Þeir sem vinna þetta eru kallaöir tækniteiknarar og starfið tækniteiknun. Tækniteiknun er hægt að læra í Iðnskólanum. Þeir sem útskrifast sem tækni- teiknarar fara til starfa á teikni- stofur (arkitektastofur til dæmis), verkfræðistofur, til ríkisstofnana og bæjarfélaga. Tækniteiknari á til dæmis að vera fær um aö gera uppdrátt og vinnuteikningu að ýmsum hlutum og mannvirkjum. Hann á einnig að vera fær um að taka ljósrit af teikningum og ann- ast skrásetningu þeirra. Inntökuskilyrði eru grunnskóla- próf eða samsvarandi menntun. Skólinn er tvær fjögurra mánaða annir, 1. og 2. bekkur. Þið skuluð snúa ykkur til Iðnskólans í Reykjavík eöa Hafnarfirði og fá frekari upplýsingar í sambandi við umsóknir og fleira. Undirhaka, stór rass, lítil brjóst og fleira Halló. Mig langar að fá svör við nokkrum spurningum. Hvað getur maður gert til að losna við undirhöku og stóran rass? Ég er frekar grönn, eða 51 kíló, og í 9. bekk. Svo er ég líka með ferlega lítil brjóst og satt best að segja er ég með ofsalega minnimátt- arkennd út af því og finnst allir taka eftir því. Hvað er hœgt að gera við svoleiðis vandamáli? Hvað þarf maður að vera gamall til að fara til annarra landa sem skiptinemi ? Hvað kostar það? Hvað er hœgt að vera lengi?Hvert er hœgt að snúa sér íþessu ? P.S. Hvað er hœgt að gera viðþunnu hári? Ein úr höfuðborginni sem bíður eftir svari. /. Það er hægt að gefa undir- hökunni smánudd reglulega. Þú notar finguma og strýkur niður undirhökuna, nokkuð þétt. Þetta hefur reynst vel hjá mörgum. Stóri rassinn hefur löngum angrað fólk sem hann ber og eina ráðið er, auk þess að passa vel að fitna ekki um of, að stunda leikfimi og gera þá sérstaklega þær æfingar sem eru ætlaðar rassinum eins og að sitja á gólfinu og rugga sér til hliðanna. Svo er þetta meö stærð brjóstanna. Eins og fram kemur hér í öðru bréfi eru það ýmist þau litlu eða þau stóru sem angra. Þú ert í 9. bekk og alls ekki víst að þú sért búin að taka út líkamlegan þroska. En hvort heldur brjóstin verða nú stór eöa lítil þá skalt þú alls ekki vera að hafa neina minni- máttarkennd út af þeim því það er svo sannarlega þannig að sumum finnst fallegt að hafa lítil brjóst en öðrum líkar betur við þau stóru. Aöalatriðið er nú samt að þér líöi vel eins og þú ert og sért ekki að hafa áhyggjur. I líkamsræktar- stöðvum er svo hægt að gera styrkjandi brjóstaæfingar sem, að því er sumir segja, geta stækkaö brjóstin örlítið. Eftir því sem Pósturinn kemst næst þarf maður að hafa lokið grunnskóla til þess að komast út sem skiptinemi. I sambandi viö kostnaðarhliðina þá mun þetta vera nokkuð dýrt en þó ekki svo mikið meira en það kostar að vera heima með öllum þeim kostnaði sem því fylgir. Skiptinemar fara venjulega utan til eins árs dvalar. Þú skalt snúa þér til skiptinema- sambandanna hér á landi en Pósturinn hefur hér heimilisföng hjá tveimur þeirra (þau munu veratvö eöa þrjú): AFS, Intercultural Programs, Hverfisgötu 39, Reykjavík, sími (91)-25450, og Alþjóðleg kristileg ungmennasamskipti, ICYE, Frí- kirkjuvegi 11, Reykjavík, sími (91)-24617. P.S. Þú skalt spyrja um sjampó við þunnu hári í apóteki en einnig ræða við hárgreiöslumeistara um hvort þú ættir að fá sérstaka næringarmeðferð fyrir hárið Mundu líka að boröa hollan mat og taka lýsi eða vítamín. 48 Vtkan 48. tbl.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.