Vikan - 25.04.1985, Síða 21
hann, „vegna þess að ég hef
dálitlar fréttir sem hafa ekki
komist til skila í mæðrafréttum.
Eg ætla að gifta mig aftur í næstu
viku.”
Þannig kom Olivia inn í líf mitt.
Digby hlýtur að hafa frétt í
.gegnum það sem hann kallaði
mæðrafréttir að ég hætti starfi
mínu í Norður-Englandi og tók við
kennarastöðu í tækniskóla rétt
fyrir utan London. Sex mánuðum
eftir fund okkar í antíkbúðinni
fékk ég boð um að borða með
honum og nýju konunni hans.
Þau bjuggu í íbúö í einu af
rotnandi gömlu húsunum hans
Digbys í niöurníddu horni Maida
Vale. Þar var ólykt frá síkinu og
þaö var í mikilli þörf fyrir endur-
nýjun en í nálægð Oliviu Ambeach
tók maður varla meira eftir
veggjunum og loftunum en sultu-
krukkunni sem blómin stóðu í.
„Hvað finnst þér um hana,
sonur sæll?” sagði Digby meðan
eiginkona hans var í eldhúsinu.
„Frábær. Hvers vegna sagði
enginn mér að hún væri svona of-
boðslega falleg?”
Digby leit skringilega á mig.
„Já, hún er sæt stelpa,” sagöi
hann, „og ég er feginn að geta
sagt að hún kom ekki tómhent til
mín. Hún var ekkja, þú veist. Líf-
trygging mannsins hennar sáluga
mun koma sér mjög vel, það get
ég sagtþér.”
Mér fannst hann viðbjóðslegur.
Hvers vegna hafði hún gifst
honum? Hvers vegna hafði hún
sóað sér á peningagráðugan
heimskingja? Ég spurði hana
þessara spurninga sjálfur þegar
við vorum saman í rúminu á ógeð-
felldu litlu hóteli í Paddington.
„Hann vildi svo endilega giftast
mér. Ég bara lét undan. Hann
hélt að ég ætti meiri peninga en ég
í raun og veru á.” Hún hló. „Og ég
hélt að hann ætti meiri en hann á.”
„Þú hefur verið meira svikin en
hann.”
„Hann er hress,” sagði Olivia,
„og mjög skapgóður.” Það gaf
innsýn í hvemig fyrri eiginmaður
hennar hafði verið.
„Farðu frá honum og komdu í
burtu með mér,” sagði ég. Þetta
var allt ári eða svo eftir brúðkaup
þeirra og starfskipti mín og ég var
að bíða eftir staðfestingu um há-
skólastöðu í Ástralíu. „Þú getur
ekki sóað öllu lífi þínu á Digby
Ambeach.”
Hún brosti einu af dularfullu
brosunum sínum. „Ég geri ekki
ráð fyrir að ég geri það,” sagði
hún en vildi ekki koma með mér.
Sex vikum síðar kvöddumst við og
hún skildi viö mig á Heathrowflug-
velli.
Við höfðum ákveðið að hafa ekki
samband. Þaö var móðir mín sem
skrifaði til að segja mér að Olivia
hefði farið frá Digby. „Gufaði
hreinlega upp. Enginn veit hvert
hún fór en mín trú er sú að hún
hafi hlaupið burtu með einum af
þessum mönnum sem voru alltaf
hangandi í kringum hana.” Mig
hryllti viö þessu. Ég var búinn að
koma Oliviu úr huga mér en þaö
særði samt að vita að ég hafði ekki
verið sá eini.
Næsta bréf móður minnar var
eins og sprengja. Digby hafði flutt
til foreldra sinna og það var
orðrómur á kreiki — LJÖTAR
SÖGUSAGNIR, kallaöi móðir mín
þær — um ástæðuna fyrir hvarfi
Oliviu.
Hvað gæti hún átt við? Ég
skrifaði til baka og bað um út-
skýringu því ég sá fyrir mér lög-
regluna yfirheyra Digby og grafa
upp Maida Vale garðinn.
Ambeach, óvináttan gleymd, kom
að jarðarförinni.
„Hvernig hefur Digby það?”
spurði ég að jarðarförinni lokinni.
„Hann hefur það gott. Vissir þú
að hann er búinn að gifta sig
aftur?”
Nei, ég haföi ekki vitaö það. Það
var árásar- eða varnartónn í rödd
hennar. Eftir dálítið hik spurði ég
um Oliviu.
„Gift aftur.” Hún leit á mig með
óvild. „Ég veit ekki mikið um það,
þú veröur að spyrja Digby.” Ég
hefði getað gert það, auðvitað, en
mig langaði ekki mikið til þess.
Hann gæti vitað aö ég var einn af
þessum mönnum sem voru „alltaf
hangandi í kringum” Oliviu. Hún
hafði lofað að segja honum aldrei
frá því. En ég veit hvað verður um
slík loforð þegar kona rífst við
manninn sinn áður en hún fer frá
honum.
Ég var feginn að vita að ótti
Að missa eina eiginkonu er ógæfa.
Að missa tvær jaðrar við hirðuleysi.
Að missa þrjár er örugglega glæpsamlegt!
Mér barst svar en ekki það sem
ég vildi. Móðir mín hafði lent í
rifrildi við frú Ambeach sem hafði
sakað hana um að breiða út slúður
um son sinn og þær töluðu ekki
lengur saman. Með því að lesa á
milli línanna gat ég mér þess til að
hún hefði verið hrædd til að umla
aldrei nafn Digbys, hvað þá festa
nokkuð um hann á blað.
Vegna þess að við Olivia höfðum
verið elskendur og hún var falleg
og ég hafði verið ástfanginn af
henni fannst mér um tíma að ég
ætti aö gera eitthvað, ég ætti að
taka til einhverra ráða. Þið
skiljið, ég minntist fyrri konu
Digbys sem drukknaði í bátsferð.
Hún hafði arfleitt hann að pen-
ingum. Haföi hann fengið Oliviu til
að fjárfesta í viðskiptabraski og
síðan losað sig við hana? Ég velti
því fyrir mér. Það var mjög
truflandi.
En tólf þúsund mílur eru mikil
vegalengd. Það gerir hjartaö
minna kært og heimaáhyggjur
fjarlægar. Smám saman tók ég að
segja sjálfum mér að Olivia hlyti
aö hafa komið aftur, hún væri á lífi
og hamingjusöm einhvers staðar
og allt væri í lagi.
Ég var í Ástralíu í tíu ár, fór að-
eins einu sinni heim allan þann
tíma og það var þegar móðir mín
veiktist. Læknarnir sögðu að hún
ætti eftir þrjá mánuði ólifaða en
hún dó eftir þrjár vikur. Frú
minn hafði verið ástæðulaus, að
hjónaskilnaöur hafði átt sér stað
og þau bæði lagt út í nýtt hjóna-
band. Það virtist engin ástæða
fyrir okkur Digby Ambeach að
hittast aftur.
En við hittumst.
Vinur minn skrifaði mér frá
London og bauð mér hlutdeild í
vaxandi fyrirtæki sínu. Það virtist
ábatasamara en þáverandi starf
mitt og auk þess var ég að þreyt-
ast á háskólalífinu. Ég flaug heim
til Englands í júlí og byrjaði aö
leita mér að húsnæöi.
Mér þótti hryllilegt hve húsa-
leiga hafði hækkað í verði. Þaö
sem ég hafði borgað fyrir heila
íbúð áður en ég fór burt dygði rétt
fyrir herbergi. Það leit út fyrir
að ég yröi að kaupa íbúð en það
tekur tíma og ég var ennþá
þakklátur en vandræðalegur gest-
ur í húsi vinar míns þegar ég rakst
á Digby.
Til að spara húsfreyjunni fyrir-
höfn var ég að borða kvöldmat
minn á bjórkrá í St. John’s Wood
þegar einhver kom aftan aö mér
og sló mig hressilega á bakið.
„Langt síðan viö höfum sést, son-
ur sæll. Hvenær komstu aftur frá
Ástralíu?”
Ég sagði honum það.
„Þú hefur ekkert breyst.”
Digby hafði breyst. Þykkt,
brúnt hár hans hafði gránað fyrir
tímann. Það gerði hann hermann-
legan. Ég er enginn dómari á útlit
karlmanna en ef ég væri kona held
ég að mér fyndist Digby myndar-
legur. Hann hafði grennst og gráa
hárið gerði hann ekki ellilegri.
Hann keypti í glas handa okkur
báðum. „Hvar býrðu núna, sonur
sæll?”
Ég sagöi honum það og sagði
honum líka frá húsnæðisleysi
mínu. Hann virtist áhugasamur
en lagöi ekkert sérstakt til mál-
anna og byrjaöi síöan allt í einu,
mér til mikillar furðu, að tala um
Oliviu. Þaö var satt, var það ekki,
að ég haföi spurt um hana í gegn-
um móður mína og síðan í gegnum
móður hans? Hafði ég heyrt að
lögreglan hafði haft grun (hans
orö) um illan leik? Ég varð mjög
vandræðalegur.
„Það var ekki auðveldur tími
fyrir mig,” sagði Digby. „En hún
er gift fínum náunga núna og okk-
ur kemur öllum mjög vel saman.”
Hann hallaði undir flatt og drap
tittlinga hægt framan í mig. „Ég
held ég gefi þér þó ekki heimilis-
fang hennar. Þú gætir tekið það í
þig að eyðileggja annað hjóna-
bandfyrirhenni.”
Andlit mitt hitnaði. „Digby. . .”
„Segðu ekki orð, sonur sæll.
Blessi þig, ég kæri mig kollóttan
núna. Mikið vatn hefur runnið til
sjávar síðan þá.” Hann sló mig
aftur á bakið. „Ég skal segja þér
hvað ég hef veriö að hugsa. Það er
íbúð á efstu hæð í húsinu mínu.
Hún er laus — herbergi, eldhús og
bað. Aðeins tuttugu pund á viku
fyrst þú ert gamall félagi. ”
Þetta var um það bil helmingi
minna en ég hefði þurft að borga
fyrir svipað húsnæði annars stað-
ar. Ég þakkaði honum.
„Segðu ekki meira. Þetta er til-
valinn staður fyrir þig. Ljúktu úr
glasinu og við getum farið og litið
á hann. Þú getur hitt Lily um
leið.” í leigubílnum fór ég að velta
þessari Lily fyrir mér og hugleiddi
hvort hann hefði gifst annarri
ungri fegurðardís.
Þegar við fórum úr leigubílnum
fyrir utan hús Digbys snerti hann
handlegg minn og sagði: „Ekki
orð um Oliviu við Lily, sonur sæll.
Hún á það til að vera dálítið eigin-
gjörn.”
Þau voru á jarðhæöinni. Digby
fór með mig inn í stofu. Þar sat
gömul kona við borð með fjár-
málablað breitt út fyrir framan
sig og um stund hélt ég að þetta
væri móöir Digbys en þegar hún
sneri sér við sá ég að það var ekki
hún.
„Konan mín, Lily,” sagði Digby
17. tbl. Vikan 21