Vikan


Vikan - 25.04.1985, Side 23

Vikan - 25.04.1985, Side 23
menningssímanum á götuhominu. Það sem gerðist svo næst gerði mig að algeru fífli. Lögreglan kom, ekki færri en þrír, og auk þess læknir. Þeir drógu Digby fram og hann var sektin upp- máluð, mótmælti og sagði að þetta væri skammarlegt og innrás á einkalíf sitt og — hvaö mundu vinir hans halda? Það voru víst tveir kunningjar í heimsókn hjá þeim Lily. Viö þrömmuðum allir upp. Ég hleypti þeim inn í íbúðina mína og í gegnum gatið á veggn- um fórum við. Leynilögregluþjónninn, sem hét Doyle, opnaði fataskápinn. Þar inni, allt á herðatrjám, voru tvö pils, tveir kjólar og rauða buxna- dragtin. ,,En það var þarna,” sagði ég. „Það er ekki þarna núna, herra,” sagði lögregluþjónninn. Digby, sem var mjög alvarlegur á svip, þræddi sér leið þvert yfir herbergið. Þar á góll'inu, í hálf- gerðu hnipri, lá beinagrindin. „Þetta,” sagði læknirinn, „er hundrað ára gamalt.” Hann pikkaði í hana. „Ef þú skoðar beinagrindina geturðu séð að það er búið að festa hana saman með vírum.” „Allt þetta drasl,” sagði Digby og brosti göfugmannlega til mín, „er úr verslun sem ég rak einu sinni. Ég erfði beinagrindina og læknisfræðibækurnar frá gömlum ættingja.” „Ekki kæra gamla Ambeach úr Royal Free? ” sagði læknirinn. „Afabróðir minn,” sagði Digby og eftir það urðu þeir allir mjög kumpánlegir, potuðu í beinagrind- ina og skoðuðu tennurnar í henni meðan Digby útskýröi að fötin í fataskápnum tilheyrðu fyrri konu sinni og hefði verið skilin eftir þegar þau skildu. Allir virtust hafa gleymt mér þangað til Digby sló á bakið á mér. „Hresstu þig upp, sonur sæll,” sagði hann. „Okkur verður öllum einhvem tíma á. Hvers vegna förum við ekki allir niður núna og fáum okkur íglas?” „Við erum á vakt, þú veist, herra,” sagði Doyle með tón sem gaf til kynna að hann léti skylduna ekki aftra sér. Hann leit hvasst á mig. „Ég myndi segja að hr. Dashwood væri búinn að fá meira en nóg.” Lily góndi þegar við gengum allir inn. Það voru tvær aðrar persónur með henni, karlmaður og kona. Ég heyrði Doyle segja: „Aha, beinagrindin í fata- skápnum,” þegar hann var kynnt- ur fyrir Oliviu. Þá reis gólfið upp og það leið yfir mig. Þegar ég rankaði við mér var lögreglan farin og Lily horfin. En Olivia og maðurinn hennar voru þarna ennþá. Hún var jafnfalleg og áður. „Hér er hún, holdi klædd,” sagði Digby. „Átt enn langt eftir í að verða beinagrind, er það ekki, dúkkan mín?” „Ég skil ekki hvaö kom yfir mig,” sagöi ég. „Ég hlýt að hafa misst vitið.” Digby hefði ekki getaö verið al- mennilegri. Hann hló og gantaöist. Hann sagði öllum vinum sínum frá þessu og líka öllum sem bjuggu í húsinu. Hann geröi eiginlega allt of mikið úr þessu en ég hafði ekki brjóst í mér til að segja það við hann eftir að hann hafði verið mér svo góður. Allir í nágrenninu hljóta að hafa fengið að vita að ég sá ofsjónir, beinagrind hangandi í fataskáp, og sakaði Digby um að myrða aðra konu sína. Ekki löngu seinna spurði hann mig hvort ég vildi festa kaup á íbúðinni sem ég bjó í — reyndar allri efstu hæðinni, þar á meðal því sem við höfðum öll tekið að kalla „beinagrindarherbergið” — og verðið sem hann nefndi var svo lágtaðég hikaði ekki. „Ég er djúpt sokkinn, sonur sæll,” sagði hann, „en þessi nokkur þúsund frá þér gætu haldið mér á floti þangað til eitthvað annaðkemur upp.” „Getur Lily ekki hjálpað?” „Látum okkur segja að hún vilji það ekki. Þetta eru hennar peningar. Ég verð aö segja að þeir eru eina ánægjan sem hún hefur í lífinu.” Daginn sem ég borgaði Digby og íbúðin varð mín eign bauð ég þeim Lily að koma upp til aö halda upp á það með drykk. Þau komu klukkan sjö. Lily virtist sérlega fúl og viskíið sem hún drakk virtist ekki bæta geð hennar. Ég geri ráð fyrir að hún og ég höfum skolaö niður vel hálfri flösku en Digby hélt sig við sódavatn, sagðist hafa brjóstsviða. Eins og vanalega talaði Lily um peninga. Hún var svartsýn á gengi sterlingspundsins. „Trúið mér,” sagði hún, „við eigum öll eftir að sjá sterlingspundið endurmetið áður en við verðum mikið eldri. ” Svo skynsöm sem hún var nú hafði hún þó rangt fyrir sér þarna. Á sinn skyndilega hátt tilkynnti hún allt í einu klukkan níu að það væri kominn háttatími hjá sér og stóð upp til að yfirgefa okkur. Digby sagðist ætla aö vera aðeins lengur. Lily fór og eftir það — ja, ég held ég geti ekki betur en sagt ykkur hvað gerðist þegar lög- reglan kom á vettvang. Við Digby höfðum ekki snert líkama Lily. Hún lá í hrúgu neðst í stiganum. Einhvern veginn vissum við báðir að hún var dáin. Það var annar læknir sem kom en yfirlögregluþjónninn var Doyle. „Ég heyrði frú Ambeach öskra,” sagði ég, „og síðan dynkinn. Eftir það lokuöust dyrnarog...” „Gerir þú þér grein fyrir því hvað þú ert að segja, hr. Dash- wood?” Doyle hallaði sér að mér og þefaði af andardrætti mínum. „Veist þú hvað þú ert að gefa í skyn?” Digby sagði blíðlega: „Mike, sonur sæll, hver ætti að hafa getað lokað þegar við sátum báðir hérna saman?” En hann hafði farið að hurðinni með Lily, fariö aðeins fram með Lily... „Ég heyrði hana öskra og detta og síöan lokaðist. . .” Ég þagnaði og leit á Doyle. „Vertu varkár varðandi hvað þú segir, hr. Dashwood. Þú hefur drukkið sæmilega mikið. Ég mundi segja þig of ölvaðan. Þú verður að vera viss með stað- reyndirnar í þetta sinn. Við höfum ekki gleymt hvað gerðist hér fyrir tveim mánuðum. Nú, þegar þú heyrðir frú Ambeach öskra og detta, hvar var hr. Ambeach? ” Ég gat ekki endurtekið vitleysu mína aftur, var það? Saka Digby í annað sinn og í annað sinn áreiðanlega fá sannað að ég hefði rangt fyrir mér? „Mér þykir þetta leitt,” sagði ég, „ég held ég hafi drukkið aðeins of mikið. Hr. Ambeach og ég sátum hér inni. Frú Ambeach sagði góða nótt og lokaði og svo heyrðum við hana öskra og detta.” Málið var rannsakað og niður- stöðudómurinn var slysadauði. Digby var mjög miður sín yfir að missa Lily og hann fékk ekki einu sinni huggunina sem hann hafði búist við. Fjárfestingar hennar skiluðu aumkunarlega litlu. Þetta hafði allt verið tal um peninga hjá henni. En síðan þá hefur birt yfir hlutunum hjá Digby eins og virðist alltaf gerast. Hann hefur hitt mjög myndarlega konu, ekkju sem rekur blómstrandi fyrirtæki sem eiginmaður hennar skildi eftir sig. Eina vandamálið er að þó hún sé reiðubúin að búa meö honum hefur hún hingaö til neitað öllum bónorðum hans. „Ég geri ráð fyrir því að hún gefi eftir,” sagði Olivia við mig. „Digby er mjög kænn og er reiðu- búinn að ganga í gegnum enda- lausa fyrirhöfn til að fá það sem hann vill.” „Ég held hann sé það,” sagði ég. Endir 17. tbl. Vikan23

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.