Vikan - 25.04.1985, Side 27
I
Síða hárið
aftur í tísku
Rakararnir geta farið að
biðja fyrir sér —
fska
Nokkur fræg módel með hár niður á herðar.
Með Bítlunum komst hárið á
karlmönnunum niöur á eyrun,
með Rolling Stones síkkaði þaö
niður fyrir eyrun og með hippun-
um niður á herðar og langt niður á
bak. Svo liðu tímar og hárið stytt-
ist aftur smátt og smátt.
Pönkararnir og nýbylgjuliðið tók
af skarið og klippti hárið knall-
stutt og áöur en varði var fyrrum
hrikalega hallærislega kana-
klippingin orðin allsráðandi. Þó
voru alltaf einhverjir sem héldu í
síða hárið, meðal annarra þunga-
rokkararnir og þeirra fylgismenn,
en þeir voru þá heldur ekkert að
eltast við tískuna og þóttu ekki
með smartari mönnum.
Nú ber hins vegar svo við að sítt
hár á karlmönnum, eða réttara
sagt sumum karlmönnum, þykir
yfirmáta fínt. í Bretlandi og
meginlandi Evrópu eru það
guðum líkir ungsveinar sem prýöa
ljósmyndir helstu tískublaðanna
heldur fáklæddir.
í Bandaríkjunum hélt síða
hártískan lengur og betur velli í
mótlætinu en í Evrópu. Þar héldu
margir frægir karlmenn fast í
lubbann, og eru nú viðurkenndir
smekkmenn, og aörir, sem alltaf
hafa átt sér þennan draum, geta
nú óhræddir leyft hárinu að vaxa.
Á meðfylgjandi myndum má sjá
nokkur dæmi um hina nýju —
gömlu hártísku. Það má nú segja
að hér á við það sem stundum er
sagt um tískuna: „Allt kemur það
aftur’”.
Alexander Godunov ballettdansari
er einn þeirra sem ekki hafa viljað
farga síða hárinu.
Ron Reagan, sonur hins Reagans,
siðhærður og sæll með það.
David Lee Roth úr bandarisku
hljómsveitinni Van Halen er annar
sem haldið hefur fast i lubbann.
17. tbl. Víkan 27