Vikan - 25.04.1985, Síða 30
VÍDEÓ— VIKAN
Vídeó-Vikan er þáttur fyrir þá sem áhuga hafa á myndböndum og þeim kvikmyndum
sem unnt er að verða sér úti um hjá myndbandaleigum til afnota í heimahúsum.
Við leggjum áherslu á að ekki er ætlunin að gagnrýna
þætti og kvikmyndir heldur kynna þær sem á boðstólum eru
og við teljum óhætt að mæla með.
Skilnaður
Framleiðandi: Frederick Brogger.
Handrit: Loring Mandel.
Leikstjóri: Delbert Mann.
Aðalleikarar: Lee Remick, Granville Van Dussen,
Vicki Dawson og David Stambauch.
Sýningartimi er 100 mín. ísl. texti.
Einkaréttur á íslandi: JS — Video.
Þetta er kvikmynd úr myndaflokkn-
um Love & Live sem er flokkur sjálf-
stæöra mynda og hafa þær verið og eru
enn vinsælar hér á myndbandaleigun-
um.
Meginspurning þessarar myndar er
þessi: Hvernig er hægt aö raöa saman
atriöum úr ævi sem þegar er gleymd?
Þetta er þó engan veginn spurning sem
svaraö veröur á flókinn hátt eöa meö
djúpri, sálfræöilegri könnun í mynd-
inni.
Þetta er saga venjulegrar fjöl-
skyldu, hjóna meö tvö börn. Myndin
hefst á því aö fjölskyldan er í eins
konar skógarferö eöa helgarhvíld viö
fallegt vatn. Þaö er veriö að taka upp
matarpakkana.
En svona fjölskylduferö er nú ekki
„staöurinn eöa stundin” til aö brjóta
niður hjónaband, jafnvel þótt bryddaö
sé á umræðum um aöskilnaö á hrein-
skilinn hátt, eins og Tom, eiginmaöur
JoAnn, gerir hér.
Þegar eiginmaður JoAnn vill veröa
frjáls, eftir fimmtán ára hjónaband,
hrynur tilvera hennar. Hún reynir meö
öllum ráöum aö halda í hann en án
árangurs.
Fyrir Tom, eiginmanninn, þýöir
frjálsræöiö nýja íbúö, nýjar vinstúlkur
og helgarstundir meö börnunum. —
Fyrir JoAnn þýðir þetta aftur á móti
aö hún fær mikla athygli gamals vinar
sem er giftur og sem hún hefur engan
áhuga á.
Hún hverfur aö hinum blákalda
veruleika klúbba hinna einstæðu og
stefnumótum sem hana haföi aldrei
óraö fyrir.
En málin eru alls ekki komin á
hreint. Lögfræöingur er engin hjálpar-
hella, nema síöur sé. Sá ræðir eingöngu
um meðlög og skiptingu eigna. — Þaö
er ekki allt. Börnin eru á erfiöum
aldrei — eins og þau eru „alltaf” —
einkum dóttirin, fjórtán ára gömul.
Hún ráöfærir sig áfrarr. viö fööur sinn
og hún er fyrr en varir oröin stærsti
hlekkurinn í þessari vandamálakeöju
— en kannski ekki sá veikasti. . .
Saga sem fellur vel aö mynda-
flokknum Love & Live.
Mynd, byggð á sögu eftir Philip Dossick.
Framleiðandi: David Susskind.
Leikstjóri: William A. Graham.
Aðalleikarar: Kevin Dobson, Melinda Dillon,
Granville Van Dussen, Ronny Cox, Bibi Besch,
Joan Lancaster, Helen Hunt og Dee Croxton.
ísl. texti.
Einkaréttur á islandi: JS-Video.
Þessi mynd er byggð á sönnum
atburðum þótt nöfnum og staðháttum
sé breytt, eins og í sögunni sjálfri.
Þetta er saga um mann sem hefur,
eins og viö öll hin, aðeins eina ósk sem
er mest allra — að halda lífi.
Hann var fæddur í Brooklyn-hverfi í
New York og gekk allt í haginn. Þegar
hann er þrjátíu og þriggja ára gamall
er hann aö dauöa kominn. . .
Því er ekki aö leyna aö spenna er
mikil í kringum söguhetju okkar, John
Hurley. Síminn þagnar varla er hann
kemur heim og ákafinn í fasi hans
leynir sér ekki.
Hann er þrjátíu og fimm ára gamall
þegar hann fyrst fær hjartaáfall. Hann
hefur alla tíö unnið, drukkiö og reykt
of mikið. En John neitar aö minnka
við sig og fær annaö hjartaáfall. Eina
von hans nú er mjög tvísýn hjartaaö-
gerö.
Hvemig svo sem fólk lítur á þessa
mynd og atburöarásina eftir að John
Hurley hefur fengiö áfalliö og meöferö
á sjúkdómi hans hefst fyrir alvöru þá
er ekki síöur athyglisveröur allur að-
dragandi aö áfalli hans: spennan,
æsingurinn, kappiö og óforsjálnin.
Eflaust kannast margir við allt
þetta úr hinu daglega lífi. Þess vegna
er myndin raunsönn lýsing á lífi svo
margra sem í dag vita betur en þeir
vilja viðurkenna opinberlega, nefni-
lega aö að flas er aldrei til fagnaðar,
síst af öllu í því aö ofbjóöa sjálfum sér
— eftir aö viökomandi hefur fengiö
greinilega viövörun um líkamlegan
veikleika.
Hér er leikarinn Granville Van
Dussen, sá er viö kynntumst í mynd-
inni hér að framan, í gervi læknisins
sem stundar John Hurley. — Þessi
mynd á erindi viö flest okkar og þaö
má mikið af henni læra. — Leyfð fyrir
alla aldurshópa.
30 Vikan 17. tbl.