Vikan - 25.04.1985, Blaðsíða 35
Í t Draumar
Blóðbrullaup
Kæri draumráðandi.
Eins og gengur og gerist
dreymir alla eitthvað. Mig
dreymdi að ég væri í
brúðarkjól, hvítum (mig
minnir að ég hafi tekið
hann úr tómum fataskáp)
og fyrir framan mig væri
stór spegill. Eg horfði á
sjálfa mig íspeglinum og sá
að ég var með þrjú göt í
hægra eyranu, með
eyrnalokka (ekki hangandi)
íþeim öllum. Eg sá að það
blæddi úr þeim öllum og
tók ípilsið á brúðarkjóln-
um og þurrkaði blóðið í
pilsið.
Draumurinn var ekki
lengri.
Það er þó nokkuð síðan
mig dreymdiþetta en ég er
alltaf að hugsa um draum-
inn og hann veldur mér
óró. Eg held ég hafi ekki
sagt neitt í draumnum og
ég var ein í einhverju her-
bergi, allt var svo bjart.
G.V.H.M.
Skugga mun bera á ein-
hvern gleðiatburð og þessi
skuggi er fyrst og fremst
vegna þess að þeir sem þú
telur vera vini þína eða þér
velviljaða reynast ótryggir
og jafnvel svo að þeir gera
þér einhverja skráveifu.
Öróin í þér er því alls
ekki að ástæðulausu en þú
mátt samt ekki fara að tor-
tryggja alla vini þína,
mundu bara að það þýðir
ekki alltaf að ætlast til þess
að aðrir reynist manni eins
vel og maður ætlast til, því
veldur eigingirni og stund-
um öfund, og hver veit
nema þessi draumur sé til
þess fallinn að vara þig við
oftrausti á öðrum þannig
að þú ættir að reyna að
stilla þig inn á það hugarfar
að njóta þess gleðilega við-
burðar sem í vændum er og
láta aðra lönd og leið.
Tvíburar
Kæri draumráðandi.
Mig langar að biðja þig
að ráða fyrir mig draum.
Hann ersvona:
Stelpa, sem ég þekki, var
allt í einu búin að eiga tví-
bura, stelpur. Önnur var
mjög falleg, dökkhærð, hin
var Ijósari og ekki eins
falleg. Þær voru með hringi
um hálsinn og þar stóðu
nöfnin þeirra. Eg hélt á
fallegri stelpunni. Þá tók
ég eftirþvíað hún var alveg
rosalega sterk miðað við
nýfætt barn og stór líka
(eins stór og sex mánaða
krakki). Við vorum að tala
um hvað það væri skrýtið
að ég skyldi ekki taka eftir
þvt að hún væri ólétt. Eg
sagðifrá því að mér fyndist
skrýtið að hún skyldi vera
hætt að reykja. Þá sagði
hún að henni hefði orðið
óglatt afþví.
Önnur stelpan svaf í
kassa með brúnu sængur-
veri. Það var dekkri
stelpan. Ljósa stelpan svafí
grind með frekar Ijósu
sængurveri.
Bæ, bæ, meðfyrirfram
þökk fyrir birtinguna,
Lilla S.
Þessi draumur skiptir
vinum þínum í tvo hópa,
góða og vonda, og þú
munt áþreifanlega komast
að raun um hverjir eru vinir
í raun vegna einhvers máls
sem upp kemur á
næstunni. Sem betur fer
fyrir þig munu þeir góðu
reynast fleiri og sterkari og
þú munt halla þér meira að
þeim en þér mun nokkuð
brugðið að komast að því
að ekki eru allir í þeim
hópi.
Dökkar tennur
molna
Kæra draumasíða.
Eg ætla að biðja þig að
ráða fyrir mig draum sem
mig dreymdi í nótt en
hann er svona: Mig
dreymdi að ég var annað-
hvort búin að drekka eitt-
hvað eða borða. Svo þegar
ég sá tennurnar í mér voru
þær orðnar mjög dökkar,
næstum svartar. Eg ætlaði
að skafa þetta dökka af
tönnunum en þá skóf ég
tennurnar þannig að þær
eyddust og var með tann-
mylsnu undir nöglunum.
Ekki var draumurinn
lengri.
Með fyrirfram þökk.
Tóbaks-Steini.
Þessi draumur bendir til
þess að einhvern skugga
beri á samband sem er þér
mikils virði, vináttu- eða
ástarsamband, og það verði
eins og í molum eftir
skamman tíma. Ekki
kemur fram í draumnum af
hverju þetta stafar, það
geta bæði verið ytri og
innri aðstæður, veikindi,
missætti og í rauninni hvað
sem er. I lok draumsins er
staðan sú að þú ert að reyna
að ná saman brotunum og
svo er það undir þér og
hinum aðilanum komið
hvort eitthvað verður hægt
að laga í þessu máli, en
samkvæmt draumnum er
það þungur róður.
_ © Bulls
Ég hálfsé eiginlega eftir því að hafa keypt bjórgeréarpakkann handa honum i afmælisgjöf.
17. tbl. Víkan 35