Vikan - 25.04.1985, Qupperneq 40
Pabbi hefur alltaf
rétt fyrii
Listin við að búa saman er aö
hver þekki sinn stað í hjóna-
bandinu og þaö verð ég aö segja
Maríönnu til hróss að hún þekkir
sinn. Ef við erum að ræöa málin
og ég kem fram með sjónarmið í
sambandi við eitthvað ákveðið. . .
þá viðurkennir hún alltaf að ég
hafi rétt fyrir mér. Og þannig á
það líka að vera í hamingjusömu
og samstilltu hjónabandi. Konan
verður nú, eins og í fortíðinni, að
bera virðingu fyrir herra sköpun-
arverksins. Það er ekki nema
sanngjarnt. Rauðsokkar og þann-
ig kjaftforar russukussur eiga líka
sinn stað. Nei, það er rétt sem
skáldið sagði, pabbi hefur alltaf
rétt fyrir sér.
Þó maður líti ekki á nema
daginn í dag þá hefur Maríanna
viðurkennt að ég hafi haft rétt
fyrir mér oft og mörgum sinnum.
En nú hef ég uppgötvað að hún
nýtir sér ákveðna tækni á mig þeg-
ar hún svarar mér — því að þó hún
hafi sagt mig hafa á réttu að
standa í morgun, þegar ég sagði
að það þyrfti ekkert aö þvo bílinn.
þá er það nú engu að síður
staðreynd að ég ók honum inn í
bílskúr, nýþvegnum og bónuðum,
fyrir hálftíma. ög þaö kemur ein-
hvem veginn ekki heim og
saman við að hún sé alltaf á því aö
ég hafi rétt fyrir mér. Kannski
ætti ég að reyna að líta betur á
þetta atvik þarna í dag og athuga
hvernig það má vera að hún hafi
samþykkt mitt sjónarmið en ég
samt sem áður þvegið bílinn. Ég
veit að það býr eitthvað undir.
Hún hefur blekkt mig. Skrýtin
kvikindi, þessar konur. Já, hún
hefur blekkt mig. En best að líta á
þetta með bílinn:
— Lofaðir þú ekki að þvo bílinn
ídag?
— Aftur? Ég sé ekki aö það sé
svo nauðsynlegt.
— Nei, það getur verið að þú
hafir rétt fyrir þér. En, allt í lagi,
þá skaltu ekki þvo hann. Og alls
ekki fara að bóna hann . . ef þér
finnst við geta verið þekkt fyrir að
koma í svona drullukistu til hans
Tómasar í kvöld.
Nokkru seinna sagöi hún aö það
væri alveg rétt hjá mér að hún
þyrfti ekkert að fá nýjan kvöld-
kjól.
— Auðvitað er rétt hjá þér að
ég þarf ekkert sérstaklega nýjan
kjól . . . það er að segja ef þér
finnst mikilvægara að eyða
peningunum þínum í spil og áfengi
og hádegisverði með öllum
þessum dularfullu vinum þínum
. . . eða eru þaö kannski vin-
konur, ekki veit ég það?
Hún sagði líka að ég hefði rétt
fyrir mér þegar ég sagði að ég ætti
kannski að skreppa í Höllina til aö
40 Vikan 17. tbl.