Vikan - 25.04.1985, Side 45
hana þar sem hún skjögraði og
skakklappaðist áfram gnístandi
nýju tönnunum af festu um
leið og myrkrið skall á. Þá létu
hnén á henni skyndilega undan
og hún datt í snjóinn. Hún
snökti lítið eitt.
,,Ég er hrædd um að ég
komist ekki lengra. Ég verð að
hvíla mig. Mér þykir það leitt
en ég get ekki hreyft mig. ’ ’
®/ödd svartklædda
skíðamannsins varð blíð og
uppörvandi þegar hann reyndi
að stappa í hana stálinu.
,,Áfram með þig,” sagði hann,
, ,þú stendur þig alveg frábær-
lega vel, við erum næstum því
komin í stöðina, hún er rétt
handan við næstu beygju.
Þaðan geturðu tekið kláfinn
aftur niður!”
Því mjökuðu þau sér áfram
þar til Maxín datt aftur. Hana
verkjaði í allan skrokkinn. ,,Ég
get ekki haldið áfram,’ ’ tautaði
hún, grúfði andlitið niður á
hnén og velti sér á hliðina í
snjóinn, samanhnipruð í
fósturstellingu.
Skíðamaðurinn andvarpaði,
tók af sér skíðin og stakk þeim
niður í snjóinn. ,,Hérna,
leyfðu mér að nudda í þig
hita,” sagði hann. Hann
nuddaði handleggina, síðan
bakið á henni þar til hana sár-
verkjaði. Síðan nuddaði hann
fótleggina á henni harkalega
þar til hún fann aftur fyrir
þeim og hjálpaði henni að
standa upp.
Þau þokuðust áfram hægt og
með kvölum. Stöðin var ekki
við næstu beygju og ekki þá
þarnæstu. Það leið næstum
klukkutími áður en þau komu
fyrir beygju og sáu hana. Maxín
skreiddist inn í stöðina en
björgunarmaður hennar sagðist
ætla að renna sér niður það sem
eftir var leiðarinnar. Hann
skyldi hitta hana á barnum við
fjallsræturnar ef hún kærði sig
um.
Hann renndi sér fyrirhafnar-
laust frá henni og niður
brekku.
Gerber
RICE CEREAL
with BANANA
AFPLESAUIE
(ORTIFIEO WITH IÍ0N ANO VITAMINS
ÍETIII8ZÖ?|
barnamatur
Fimmtíu ára reynsla og 70%
markaðshlutfall í USA
segir meira en mörg orð um Gerber barnamatinn. Venjuleg fæða er
of bragðmikil eða skortir næringarefni, sem ungbörn þurfa á að
halda til að dafna og þroskast eðlilega. Eftir áratuga rannsóknir
færustu sérfræðinga hefur Gerber tekist að framleiða, úr bestu
hráefnum, mikið úrval af auðmeltanlegum og bragðgóðum barna-
mat, með réttum næringarefnahlutföllum. Qerber gæðanna vegna
það geta 30 milljón mæður staðfest.
Einkaumboð
EEHKt . ,
sími 82700
Auglýsingastofa Gunnars