Vikan


Vikan - 25.04.1985, Síða 45

Vikan - 25.04.1985, Síða 45
hana þar sem hún skjögraði og skakklappaðist áfram gnístandi nýju tönnunum af festu um leið og myrkrið skall á. Þá létu hnén á henni skyndilega undan og hún datt í snjóinn. Hún snökti lítið eitt. ,,Ég er hrædd um að ég komist ekki lengra. Ég verð að hvíla mig. Mér þykir það leitt en ég get ekki hreyft mig. ’ ’ ®/ödd svartklædda skíðamannsins varð blíð og uppörvandi þegar hann reyndi að stappa í hana stálinu. ,,Áfram með þig,” sagði hann, , ,þú stendur þig alveg frábær- lega vel, við erum næstum því komin í stöðina, hún er rétt handan við næstu beygju. Þaðan geturðu tekið kláfinn aftur niður!” Því mjökuðu þau sér áfram þar til Maxín datt aftur. Hana verkjaði í allan skrokkinn. ,,Ég get ekki haldið áfram,’ ’ tautaði hún, grúfði andlitið niður á hnén og velti sér á hliðina í snjóinn, samanhnipruð í fósturstellingu. Skíðamaðurinn andvarpaði, tók af sér skíðin og stakk þeim niður í snjóinn. ,,Hérna, leyfðu mér að nudda í þig hita,” sagði hann. Hann nuddaði handleggina, síðan bakið á henni þar til hana sár- verkjaði. Síðan nuddaði hann fótleggina á henni harkalega þar til hún fann aftur fyrir þeim og hjálpaði henni að standa upp. Þau þokuðust áfram hægt og með kvölum. Stöðin var ekki við næstu beygju og ekki þá þarnæstu. Það leið næstum klukkutími áður en þau komu fyrir beygju og sáu hana. Maxín skreiddist inn í stöðina en björgunarmaður hennar sagðist ætla að renna sér niður það sem eftir var leiðarinnar. Hann skyldi hitta hana á barnum við fjallsræturnar ef hún kærði sig um. Hann renndi sér fyrirhafnar- laust frá henni og niður brekku. Gerber RICE CEREAL with BANANA AFPLESAUIE (ORTIFIEO WITH IÍ0N ANO VITAMINS ÍETIII8ZÖ?| barnamatur Fimmtíu ára reynsla og 70% markaðshlutfall í USA segir meira en mörg orð um Gerber barnamatinn. Venjuleg fæða er of bragðmikil eða skortir næringarefni, sem ungbörn þurfa á að halda til að dafna og þroskast eðlilega. Eftir áratuga rannsóknir færustu sérfræðinga hefur Gerber tekist að framleiða, úr bestu hráefnum, mikið úrval af auðmeltanlegum og bragðgóðum barna- mat, með réttum næringarefnahlutföllum. Qerber gæðanna vegna það geta 30 milljón mæður staðfest. Einkaumboð EEHKt . , sími 82700 Auglýsingastofa Gunnars

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.