Vikan - 25.04.1985, Síða 59
DROTTNINGAR-
DAGURINN
ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGUR HOLLENDINGA
Texti og myndir: Sigrún Harðardóttir
58 Vikan 17. tbl.
Það er ekki hægt að segja um Hollendinga að
þeir eigi sér fastan þjóðhátíðardag eins og aðrar
þjóðir því þjóðhátíðardagur þeirra hefur verið
um aldir afmælisdagur þjóðhöfðingja þeirra og
hefur sá siður haldist fram að krýningu núver-
andi drottningar, Beatrix, að hún tilkynnti
þegnum sínum að afmælisdagur Júlíönu, frá-
farandi drottningar, skyldi áfram vera þjóðhá-
tíðardagur landsmanna. Mun ástæðan vera sú
að núverandi drottning á afmæli á miðjum vetri
en Júlíana að vori þegar búast má við sól og
blíðu.
30. apríl ár hvert taka Amster-
dambúar því til á háaloftinu hjá
sér enn sem áður fyrr, breiða
klæði á gangstéttir borgarinnar
eða á grasflötina í Vondelpark og
versla með allt milli himins og
jaröar. Borgin er öll undirlögð af
einum allsherjar flóamarkaði því
að á drottningardaginn mega allir
vera kaupmenn. Þeir sem ekki
telja sig hafa neitt til að selja en
vilja samt taka þátt í kaup-
mennskunni, án þess þó aö vera
jkaupendur, stilla sér upp með
jheimabakaðar kökur eða heita
súpu í potti yfir gamla
ferðaprímusnum, nú eða hella upp
á könnuna og svo mætti lengi
telja. Hér er það hugmyndaflugiö
sem ræður og það er um að gera
aö prófa eitthvaö nýtt í mat-
þig upp í samsvarandi búning.
Meö nokkurra metra millibili hafa
svo hljóðfæraleikarar komið sér
fyrir, ýmist einn og einn eða
einhvers konar vísir aö tríói,
kvartett eöa jafnvel lítilli hljóm-
sveit, allt frá krökkunum í barna-
músíkskólanum, sem hafa sumir
hverjir ekki fengið margar
kennslustundir á blokkflautuna,
upp í klassíska hljóðfæra-
leikarann sem leikur á klassískt
hljóðfæri eins og fiölu eöa
klarínettu.
Við látum berast með mann-
fjöldanum inn í Vondelpark,
kaupum blússu á fimmtíu aura og
prúttum stærðar leirskál niður í
túkall. Fyrr en varir er ýmislegt
drasl farið að hlaðast á okkur og
seldinni sem náunginn við hliðina
getur ekki boðið upp á. Það þýddi
víst lítiö aö ætla að reyna að selja
pulsu og kók á þessum degi því
þetta er dagur ævintýranna og
tilraunanna.
Ef þú vilt reyna hæfileika þína í
látbragösleik eöa sem skemmti-
kraftur þá er tækifærið nú því ef
þér mistekst þá hlæröu bara með
áhorfendunum. Enginn ætlast til
þess að þú getir gert neitt meira
en þeir sjálfir þó þú sért búinn aö
mála á þig trúösandlit og dubba
17. tbl. Vikan 59
þá er um aö gera aö reyna
kaupmannshæfileikana og sjá
hvort ekki er hægt að losna við
eitthvað af þessu dóti aftur. Við
hendum nokkrum smápeningum í
box hjá verðandi fiðlusnillingum
og horfum um stund á látbragðs-
leikara leika listir sínar, kannski í
fyrsta skipti, og leiktjöldin eru
heldur ekki merkileg, tvö lök
strengd milli tveggja hríslna. Alls
konar venjulegar og óvenjuiegar
kökur eru á boðstólum meðfram
gangstígnum og ilmurinn af
1