Vikan


Vikan - 12.09.1985, Page 4

Vikan - 12.09.1985, Page 4
FÖT í SKÓLANN Texti: Hrafnhildur Ljósmyndir: RagnarTh. Nú eru skólarnir nýbyrjaðir og þá þarf að huga að skólafatnaði. Það er alltaf gaman að byrja í skólanum á haustin eftir langt sumarfrí og ekki spillir ánægjunni að fá sér ný föt fyrir þessa stóru stund. Mikið hefur verið rætt og ritað að undanförnu um þá tilbúnu glans- ímynd, sem margir vilja kalla, er alls staðar blasir við unglingum í dag. Um tilvist og ágæti þessa eru skiptar skoðanir. Tískufram- leiðendur og auglýsingaiðnaðurinn reyna vissulega að höfða til þessa neysluhóps með því að skapa á- kveðna unglingatísku. Máli sínu til stuðnings segja þeir að unglinga- tíska eigi jafnmikinn rétt á sér og önnur tíska. Það er staðreynd að á unglings- árunum verða áhrif og skoðanir kunningjahópsins yfirsterkari áhrifamætti foreldra og gildir þetta ekki síst um fataval, mörgu for- eldri til mikils ama. En þetta er ekk- ert nýtt. Hver man ekki eftir grænu „kanaúlpunum” sem voru einkenn- isklæðnaður unglinga fyrir fimmtán árum, svo dæmi séu tekin? Á þessu verður sennilega seint breyting. Áhrifamáttur auglýsinga er vissulega mikill en ég held þó að á- stæðulaust sé að óttast um afdrif þessa hóps frekar en annarra. Á tímum aukins auglýsingaflóðs þurf- um við öll að gera okkur grein fyrir þeim heimi sem þar birtist og skoða hann með dálítið gagnrýnu hugar- fari. Ef unglingnum er hjálpað við að þroska með sér slíkt hugarfar er hann betur í stakk búinn að velja og hafna úr því sem í boði er. Vikan fékk tvo unglinga, þau Stefán Sigurðsson og Lilju B. Arnar- dóttur, til að fara og velja sér föt í skólann. Við brugðum okkur með þeim niður á Laugaveg. Blaða- maður hafði sett sér það markmið að reyna í engu að hafa áhrif á valið. Hann hafði hins vegar áhyggjur af því að erfiðlega gengi að standa við það fyrirheit. Þessar áhyggjur fuku þó út í veður og vind strax á leiðinni í bæinn, því þegar Stefán og Lilja voru spurð um fyrirmyndir svöruðu þau strax einum rómi: „Engar, því það er skemmtilegast að vera öðruvísi en aðrir, en það er bara svolítið erfitt að finna eitthvað svoleiðis í búðunum.” Þegar í búðirnar kom vissu þau nákvæm- lega hvað þau vildu og létu athuga- semdir blaðamanns (sem ekki gat stillt sig) eins og vind um eyrun þjóta. Það kom blaðamanni á óvart hvað þau virtust sjálfstæð og vissu nákvæmlega hvað þau vildu. Kannski eru unglingar að breytast eða þau tvö eru undantekningin sem sannar regluna. Hvað sem því líður var árangurinn góður og sjáum við hann hér á myndunum. Þegar við vorum á ferð um bæinn voru haustvörurnar að ber- ast í búðirnar. Síðastliðinn vetur einkenndi tískuna frjálslegt litaval og má segja að nánast allir litir hafi gengið. Nú er hins vegar annað uppi á teningnum. Þeir litir sem mest einkerina tísku vetrarins eru fjólublár, grænn og (lilla)bleikur. Svart og hvítt verður áfram vinsælt. Önnur breyting er sú að nú skal verða meiri munur á klæða- burði kynjanna en verið hefur. 4 Vikan 37. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.