Vikan - 12.09.1985, Blaðsíða 28
Einkaspá fyrir hvern dag vikunnar:
Maður vikunnar: Kjartan Ragnarsson
Færir upp söngleik á fertugsafmælinu
Hann er fæddur á Ljós-
vallagötunni 18. september
1945, var einn vetur í
Kennaraskólanum og út-
skrifaðist úr Leiklistarskóla
Leikfélagsins árið 1966.
Allir kannast við leikritin
hans Kjartans: Sauma-
stofan, Týnda teskeiðin,
Blessaö barnalán og Peysu-
fatadagur. Einu sinni lék
hann Gretti Ásmundarson frá
Bjargi í Miðfirði. Þaö var í
söngleiknum Gretti.
— Hvernig ætlar þú að
halda upp á fertugsafmælið,
Kjartan?
Með því að færa upp söng-
leik eftir sjálfan mig í Iðnó.
Land míns föður heitir hann
og fjallar um Island í síðari
heimsstyrjöldinni. Tónlistina
semur Atli Heimir Sveinsson.
Kjartan fœr hamingjuóskir og
allir hinir:
Anna Steingrimsdóttir á
Helgafelli i Mosfellssveit,
fædd 12. september 1922.
Árni Guðmundsson, skóla-
stjóri íþróttakennaraskóla
íslands á Laugarvatni, fæddur
12. september 1927.
Gróta Garbó leikkona á sama
afmælisdag og Kjartan og
verður nákvæmlega helmingi
eldri en hann. Til hamingju
með áttræðisafmælið, Grétal
Einar Már Guðmundsson rit-
höfundur, fæddur 18.
september 1954.
Skapferlið
Fólk sem fætt er þennan dag er
með því þægilegasta sem gerist í
viðkynningu. Það leggur sig í líma
að geðjast öðrum án þess að hvika
frá eigin sannfæringu. Það er
skipulegt í hugsun, afskaplega
jaröbundið og lítið gefið fyrir útúr-
dúra í samræðum. Það er látlaust
í fasi og yfirlætislaust, jafnvel þó
þaö hafi oft á tíðum talsverða
burði í andlegum efnum. Það er
duglegt og skjótrátt ef á reynir,
og gerir sjaldan mistök.
Lífsstarfið
Gætni einkennir starfsval af-
mælisbarna dagsins. Þau eru gef-
in fyrir störf sem krefjast sam-
viskusemi og andlegs atgervis en
þurfa ekki sérlega á tilbreytingu
eöa hamagangi að halda til að
halda sér við efnið. Þau hafa oft
það góða greind að þeim er treyst
fyrir ábyrgð í menningarmálum
listum, banka- og stjórnstörfum.
Ástalífið
Börn dagsins eru oft bæði sein-
tekin og siðprúð en einlífi er þeim
þó lítt að skapi og þau eru ekki
beinlínis óframfærin. Skynsemi
ræður oft á tíðum makavali þeirra
og lítil hætta á að þau láti tilfinn-
ingamar lilaupa með sig í gönur.
Þau leitast við að finna jafnvægi
og vináttu í sambandi viö aðra og
eitthvert þeirra sambanda getur
síðan leitt til hjónabands með tíð
og tíma. Þau hafa enga grípandi
töfra í ástum en notalegt að-
dráttarafl sem nýtist þeim prýði-
lega. Þau eru barngóð.
Heilsufarið
Heilsufar afmælisbarna dagsins
er fátt um að segja ef þau temja
sér hófsemi í mat og drykk til
jafns við hófsemi á öðrum sviðum.
Þau hafa ekkert sérlega sterk-
byggt meltingarkerfi.
Heillatölur eru 3 og 5.
Böm dagsins eru hinir mestu
dugnaðarforkar. Þau eru ákveðin,
iðin, reglusöm (stundum úr hófi
fram aö annarra áliti), íhugul og
það jafnvel svo að það sem þau
hugsa getur valdið þeim óþarfa
áhyggjum. Þau taka nærri sér allt
sem mannlegt er og þaö sem þeim
finnst fara úr skorðum í samfélag-
inu, sem getur verið æði margt.
Þau eiga það til að leggja mikla
rækt við menningu, heimspekileg
vandamál og sálarfræði og fóma
miklum tíma í það.
Lífsstarfið
Oftar en ekki tekst fólki dagsins
að samræma áhugasvið, skapferli
og starf og nýtist þetta vel í lífs-
starfi þess. Böm dagsins em glögg
á styrk sinn og síður en svo blind á
veikleika sína. Þau skapa sér oft
sjálf sitt ævistarf og hika þá ekki
við að brydda upp á einhverju
nýju. Þau hafa meðfæddan áhuga
28 Vlkan 37. tbl.