Vikan


Vikan - 12.09.1985, Blaðsíða 21

Vikan - 12.09.1985, Blaðsíða 21
!------------------------------------------ leggja þetta allt því þeir voru komnir meö mig á staðinn! Ég var með fleiri morðingja þarna í vinnu, maður. Ég málaði allt heila klabbið, flísalagði nýju húsin, málaði þau öll að innan. Þú ættir að sjá lýðinn, sem á bara að vera fyrir austan, sem ég var með í vinnu. En ég fékk þá alla til þess að vinna, þessa bimba. Jón Thors sagði mér síðar að ég hefði aldrei átt að vera þarna fyrir austan, ég hefði aldrei fyllt inn í þetta kram. En þeir sáu að það þurfti að nota mig og fengu það fyrir frítt.” — Þegar þið fluttuð svo til Bandarikjanna, var það til fram- búðar? „Já, ég hefði átt að flytja til Bandaríkjanna bara þegar ég fæddist. Þarna er ég eins og , fæddur í þetta kram, þaö gengur allt upp hjá mér þarna. En maður gleymir ekkert hvaðan maöur er — úr sjávarplássi á Suður- nesjum.” — Var auðvelt að koma sér fyrir i Bandaríkjunum? „Nei, þetta er ekki beint auð- velt. Ég veit um nokkra sem fóru til Bandaríkjanna með töluvert fjármagn en eru komnir heim aftur. Þú verður að falla inn í kerfið þarna eða þú ert farinn heim. Ég meina, þú verður að spila alveg hreint eins og Kan- inn.” » — Hvernig hafa þeir feilað? „Sko, ef þú kemur til Banda- ríkjanna og ert ekki nógu harður og kaldur, án þess að fara yfir línuna, þá kemstu ekkert áfram — þeir éta þig lifandi. Þú getur gert stóra hluti þarna. Þetta er mjög heilbrigt land — með 240 milljónir eru náttúrlega problem. En þetta er byggt upp á heilbrigðum grundvelli, ég meina samkeppni og annað. Það er eng- inn ríkisstyrktur — ef við sleppum Chrysler — það er ekki hlaupið til vegna togara eða rútu- bíla. Ef þú getur ekki rekið þetta þá ertu ekkert að því. Þá er bara annar maður betri. Þess vegna er þetta þjóðfélag svona sterkt, það kemur maður í manns stað. Það er ekkert verið að dæla fjármagni í einhvern aula ef hann getur ekki rekið þetta. I sambandi við öryggi og annað, það er alveg sama hvar þú býrð í Colorado Springs, lögreglan getur komið til hússins þíns á þremur mínútum. Þeir raða kerfinu svo flott að það er alveg sama hvar bílarnir eru, þeir komast til þín á þremur mínútum. Þetta er öryggi, þetta er bara fyrir þig. Ég veit ekki — sko, þessir kunn- ingjar mínir og vinir, sem ég er að sjá núna, þeir eru sumir gamlir fyrir tímann. Það er bara unnið dag og nótt til að halda spöðum saman. Og svo er svo mikil djöfulsins kergja í þessu öllu saman, það eru skilnaðir og það eru fyllirí og það er djöfulgangur, fólk er að verða vitlaust. Þetta er voðalegt ástand. I Bandaríkjunum þekkist ekki þessi vinnuþrælkun. Þar eru menn komnir á fætur klukkan sex á morgnana og síðan ertu bara kom- inn heim um hádegið. Maöur er ekkert í fiski á laugardögum — eða að beita. Fyrir mér er besti tíminn á morgnana, þá er hugsunin tær, þú ert afslappaður og nærð bestum árangri. Bisness- inn í Bandaríkjunum fer yfirleitt fram fyrir hádegi. Fólk fer meira á fundi og annað eftir hádegi, þú nærð engum eftir hádegið.” — Þú varst fyrst i málningunni í Colorado, en hvað hefur skeð síðan? „Síðan hef ég stofnað fyrirtæki í Bandaríkjunum og er með tíu manns í vinnu. Maður er ekki alltaf ungur og vill tryggja fram- tíðina þannig að ég fór að hugsa um að flytja inn vörur frá íslandi. Á síðasta ári gerði ég fimm ára samning við efnaverksmiðjuna Sjöfn á Akureyri um að koma þeim inn á Bandaríkjamarkað með sínar vörur. Ég gerði líka samning við Erlend Hansen sem á saumastofuna Vöku á Sauðár- króki. í vor kom ég svo heim til aö ferma elsta strákinn, Guðbjörn Ásgeir, en auk hans eigum við hjónin Róbert Gunnar og Rósa- lindu Lilju. Þá segir mér stór- kunningi minn, Þorsteinn Ölafs- son, fyrrverandi landsliðsmark- vörður, frá Henson, Halldóri Einarssyni. Og nú erum við búnir að semja um að ég sjái um Henson-vörurnar á Bandaríkja- markaði. Ég er með tölvuvætt vöruhús og skrifstofu í Colorado Springs en aðalsöluskrifstofuna í Denver, höfuðborg Colorado-fylkis. Núna eru Yngvi Guðmundsson, hönnuður á Sauðárkróki, og maður frá mínu fyrirtæki að byrja sameiginlega hönnun fyrir Ameríkumarkað, til að nýta litina, hráefniö, gæöin og annað — auk þess kemur til greina að sérhanna fyrir verslanakeðjur. Það er stór- bisness, Álafoss gæti ekki gert þetta, þeir eru of stórir. Við skiptum beint við ákveðna verk- smiðju og ég reikna með að innan þriggja ára framleiði þeir á Sauðárkróki aðeins fyrir Banda- ríkjamarkað. Það sem við, mitt fyrirtæki, sem heitir Icelandic Woolen Fashion, og verksmiðjan á Sauðárkróki, ætlum að gera er að slá aldrei af gæðum og ekki heldur af verði. Við ætlum að halda okkur við klassabúðir.” — Eruð þið ekki búin að koma ykkur vel fyrir i Bandaríkjunum? „ Jú, jú, það er alveg sama hvar ég bý, þó að ég búi á norður- pólnum, ég vil alltaf búa með class. Það eru bara sumir sem geta það en sumir ekki. Við keyptum svaka villu 79, nærri 300 fermetra hús með 7 herbergjum, eldhúsi og baði. Nýlega keyptum við okkur danskar mublur í allt húsið. Við erum með tvöfaldan bíl- skúr og stóra sundlaug úti í garði. Við erum fjögurra bíla familía. Við eigum svona Ford Econoline, yfirbyggðan sendibíl með innrétt- ingum, sem við ferðumst á upp í fjöllin og með krakkana í sport og svona. Svo nota ég sjálfur árgerð 1985 af Bleiser, svo á konan drossíu og ég hef loks pickup til flutninga. En svona hefur þetta gengið hjá mér og ég má bara þakka góðum guði fyrir að vera ennþá heil- brigður og normal. Núna er fram undan hjá mér að komast áfram, ég ætla mér að verða milljónamæringur í Banda- ríkjunum. Það er ekkert sem ætlar að stoppa mig í að gera það. Nú er bara verið að hugsa um að koma börnunum á legg og vonandi fara þau í háskóla að mennta sig. Ég ræð því ekkert. Það verður bara að vona að þau verði góðir bandarískir þegnar. Það er það eina sem ég stefni að núna.” 37. tbl. Vikan zi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.