Vikan - 12.09.1985, Side 42
Published by arrangement with Lennart Sane Agency, Karlshamn, Sweden. Originally published by Simon & Schuster.
læsta fímmtudag
^fór hún á fyrsta fundinn
hjá AA-samtökunum.
Kata var hjá Christopher
og hafði fengið tvær
vélritaðar síður af leið-
beiningum um hvernig
hún ætti að bregðast við í
neyðartilfelli.
„Þetta var hrikalegt,” sagði
Heiðna henni seinna. „Erfítt.
' Ekkert múður. Manni fannst að
þeim væri öllum hræðileg mik-
il alvara, að allir væru þarna í
grafalvarlegum tilgangi. Við
áttum öll þetta óheillavænlega
áhugamál. Við hittumst öll í St
Martins in the Field, þú veist,
kirkjunni á Trafalgartorgi, og
við sátum og drukkum te og
borðuðum kex. Þau reyktu
mikið, eftir tvo tíma var eins og
salurinn væri fullur af þoku.
Það voru miklu fleiri karlmenn
en konur þarna og nokkrir voru
reglulega dmslulegir, eins og
þeir hefðu verið að koma úr
fangelsi eða eitthvað svoleið-
is.”
,,En hvað gerðist?” spurði
Kata.
„Einhver fór að segja að
viljastyrkurinn væri álíka
áhrifamikil aðferð við drykkju-
sýki og við krabbameini. Ef lxk-
aminn þolir etýlalkóhól þá get-
ur það veitt manni meinlausa
vellíðan eins og í þínu tilfelli,
Kata. En ef maður þolir það
ekki, eins og í mínu tilfelli, þá
verður maður smám saman
háður því. Eg skal segja þér það
að mér var dálítill léttir að því
að vera háð því en ekki bara
einhver gamall svampur. ’ ’
Hún lá í makindum á tepp-
inu fyrir framan arininn og
faðmaði fjárhundinn Búster að
sér. Hann hafði verið úti í rign-
ingunni og lyktin af honum var
eins og af gömlu teppi. , ,Það er
furðulegt að stjórnvöld skuli
leyfa að áfengi sé auglýst í sjón-
varpinu þegar vitað er að þriðja
algengasta dánarorsök í land-
inu er af völdum þess.
„Talaði einhver við þig?”
„Enginn spurði mig neins,
ég sat bara, horfði á og hlust-
aði. Ég lærði eitt — þú reynir
bara að drekka ekki í einn dag í
einu.” Heiðna þagnaði. Þetta
var í fyrsta skipti sem hún fann
Shirley Conran
TUTTUGASTI
OG SJÖUNDIHLUTI
Það sem á undan er gengið. . .
Árið 1963 gengst þrettán ára stúlkubam undir ólöglega fóstureyðingu á subbulegri
lækningastofu í París. . . Fimmtán árum síðar er fjórum glæsilegum heimskonum
stefnt á fund kvikmyndastjömunnar Lilíar. Þær Heiðna, Kata, Maxín og Júdý vita ekki
að þeim er stefnt saman og vita ekki hver tilgangurinn er. , Jæja, tæfumar ykkar. Hver
ykkar er móðir mln ? ’ ’ spyr Lilí.
Árið 1948 em Heiðna, Kata og Maxln á flnum heimavistarskóla I Sviss. Þær kynnast
Júdý sem vinnur sem framreiðslustúlka á kaffiteríu glsesihótels. Ungir menn koma við
sögu og ástin blómstrar I svissneska fjallabænum.
Að skóla loknum skilja leiðir. Ein stúlknanna er barnshafandi, en hver?
Júdý og Maxín fara til Parlsar. Þar fer Júdý að vinna hjá Dior tískuhúsinu en slðan
hjá Guy, ungum og upprennandi fatahönnuði. Hortense, frænka Maxln, er auðug
ekkja I París og alltaf reiðubúin til hjálpar þegar eitthvað bjátar á. Júdý og Guy vegnar
vel I París en þegar móðir Júdýjar verður alvarlega veik ferJúdý heim til Bandaríkjanna
og lofar mðður sinni að fara ekki aftur til Parísar. Hún sest að I New York og fer að
vinna hjá kynningafyrirtæki.
Sögunni víkur til Ellsabetar litlu sem er I fóstri hjá Felix og Angelinu I Sviss. Felix er
ungverskur flóttamaður. Hann fer með fjölskylduna að heimsækja foreldra sína og
bróður I Ungverjalandi. Það er árið 1956. Ekkert þeirra á afturkvæmt nema Elísabet
litla, Lill, eins og Felix kallaði hana.
Maxln heldur til London að læra innanhússhönnun og hýbýlafræði. Hún er þar I tvö
ár og kemur slðan aftur til Parísar og opnar fomgripaverslun og innanhússhönnunar-
skrifstofu. Hún fær það verkefni að skipuleggja endurbyggingu á gömlum herragarði
sem er I eigu félltils greifa og kampavlnsframleiðanda. Þau gifta sig og eignast þrjá
syni.
Heiðna og Kata stunda samkvæmislífið I London grimmt. Kata fer að vera með
ungum bankastjórasyni sem býr I Kaíró. Hún fer þangað ásamt Heiðnu en eftir nokk-
urn tíma kemst bankastjórinn að því að Heiðna sé vænlegra kvonfang en Kata fyrir son
sinn og stuðlar að því að sonurinn láti Kötu róa en snúi sér að Heiðnu, sem hann og
gerir með svikum og prettum.
Heiðna giftist slðan bankastjórasyninum en hjónabandið verður ekki farsarit. Hún
fer heim til móður sinnar á Englandi og hallar sér æ meira að flöskunni.
til einhverrar vonar og var ekki
skelfílega viljalaus. „Þegar
maður er einu sinni alkóhólisti
er maður alltaf alkóhólisti, rétt
eins og með sykursýki, að sá
sem er með hana er það alltaf
þó hann geti haldið einkenn-
unum niðri með insúlíni.”
Hún var uppnumin af góðum
vonum.
„Þú ert svo fjandi æst yfir
þessu, Heiðna. Ég hef áhyggjur
af því. Þú skalt ekki tala við
Christopher um þetta fyrr en
þú hefur róast. Annars gerir
hann sér ekki grein fyrir því að
þér er alvara.
V_/n Christopher gerði
það. „Ö, ég gat mér þess til
rétt áður en við giftum okkur, ’ ’
sagði hann. „Það virtist engin
önnur ástæða vera fyrir allri
þessari munnskolvatnslykt út
úr þér þegar ég kom heim. Þess
vegna merkti ég flöskurnar —
ekki í barskápnum, ég vissi að
þú myndir vera of slungin til
þess. Ég merkti matarvínið í
eldhúsinu. Ég beið eftir því að
þú segðir mér frá því. Ég von-
aði að ég gæti hjálpað þér. ’ ’
Christopher fór með Heiðnu
á rannsóknarstofuna til þess að
hitta samstarfsmenn sína um
leið og hann gat snúið aftur til
vinnu. „Ég er búinn að biðja
alla að útskýra málið fyrir þér
með eins atkvæðis orðum,”
tautaði hann um leið og hann
kyssti Heiðnu á eyrað rétt áður
en þau stigu út úr bílnum.
Henni var fylgt um bygging-
una eins og hún væri konung-
legur gestur en vísinda-
mennirnir hefðu þess vegna
getað talað svahílí því hún
skildi lítið af því sem sagt var
þessa tvo klukkutíma. Hún
glápu á vélamar, tölvumar og
raðirnar af glerílátum þar sem
krabbameinsfrumur úr mönn-
um uxu í vefjum sem yrðu
seinna notaðir til þess að búa
til bóluefni. Daginn eftir bauð
hún einum af starfsmönnun-
um, sem leit ekki eins ógnvekj-
andi út og hinir, í hádegismat
næsta sunnudag. Hún ætlaði
að fá þennan svartskeggjaða
Peter til þess að útskýra málið
fyrir sér.
I bílnum á leiðinni heim
42 Vikan 37. tbl.