Vikan - 12.09.1985, Side 40
Fimm mínútur með Willy Breinholst
'•W
Sem kunnugt er lifum við á
tímum sem krefjast þess af smá-
iðnaðinum að hann geri gangskör
að hagræöingu ef hann á að lifa og
dafna. I heimi nútímans dugar
ekkert nema harkan sex og þeir
sem trúa á gamaldags mynd af
smáiðnaði hafa alrangt fyrir sér.
Ef sofnað er á verðinum eitt andar-
tak gleypa stóru keppinautarnir
þig með húð og hári og ræna hug-
myndunum. Kvasahöj, forstjóri
hjá Kvasahöf-verksmiöjunni,
meðalstórri verksmiðju sem
framleiddi verkfæri og ýmiss
konar vélbúnað og haföi sérhæft
sig í að sérsmíöa tæki og tól, var
sífellt vakandi fyrir þróuninni og
lét ekkert koma sér í opna skjöldu.
Dag nokkurn las Kvasahöj í blaöi
vinnuveitendasambandsins sér-
lega athyglisverða og fróðlega
grein um þann undraverða
árangur sem hægt var aö ná með
gjörhugulli, miskunnarlausri og
gagnþekkri hagræðingu. Hann sat
lengi og tottaði vindilstúfinn sinn,
sem var þegar orðinn gegn-
blautur, svo fór hann í gegnum
skrifstofurnar þar sem starfs-
fólkiö sat og drollaði yfir vinnunni
sinni. Hann tók eftir því að það
rápaði inn og út meö pappíra og
skjöl og reikninga í hendinni og lét
sem það hefði ofsalega mikið aö
gera. Hann fór niður í vélasalinn
og nam staðar við færiband. Þar
stóðu fjórir menn og horfðu á
þann fimmta setja bolta í málm-
stykki sem fóru þarna framhjá.
Innar í vélasalnum gaf hann
manni bendingu um að koma til
sín.
— Hvaö starfarðu hér? spurði
hann.
— Ég, starfa? sagði maðurinn
og lagöi frá sér kassa af tómum
bjórflöskum. Ég er sá sem sé um
bjórbókhaldið!
Kvasahöj forstjóri haföi heyrt
nóg, hann haföi séö nóg, hann var
ekki í nokkrum vafa. Hér þurfti
hagræðingar með. Hann réð sam-
stundis til starfa tvo þaulvana
hagræðingarfræðinga og þegar
þeir mættu til starfa fyrsta
morguninn kallaði hann þá inn til
sín.
— Nú er bara að ganga til
starfa, sagði hann, samstundis og
vægðarlaust! Fyrst er að taka til
hendinni í skrifstofugeiranum. Ég
hef alvarlegar grunsemdir um að
helmingurinn af starfsliðinu sé
40 Víkan 37. tbl.