Vikan


Vikan - 12.09.1985, Qupperneq 39

Vikan - 12.09.1985, Qupperneq 39
^östurinn A I R M A I L PAR AVION Snyrtifræði Ég hef skrifad ádur og fékk svar svo ég œtla ad freista gœfunnar aftur. Mig langar ad vita hvort ég geti farið beint í snyrtifrœði eftir 9. bekk. Ég reyndi að skrifa til Félags íslenskra snyrti- frœðinga en fékk ekkert svar. Geturðu sagt mér hvernig er með stúdentspróf í sam- bandi við snyrtifrœðina? Og hvað um plakat af Spandau Ballet? Ég er búin að bíða og bíða eftir að röðin komi loksins að þeim félögum en það er ekki ennþá. Með fyrirfram þökk fyrir birtinguna. Spandauaðdáandi. Snyrtifræði er nýlega orðin lög- gilt iðngrein og þess vegna stendur til að breyta allri námstil- höguninni. Samkvæmt upplýsing- um frá Félagi íslenskra snyrti- fræðinga er málið allt í algjörri biðstöðu núna og ekkert hægt að segja ákveðið um hvernig því muni verða háttað. Þetta verður þó þriggja ára skólanám (í það minnsta verður allt bóklegt í skóla) og eins og í öðrum iðngrein- um getur fólk byrjað námið þegar það hefur staðist grunnskólapróf. Samkvæmt upplýsingum hjá félaginu mun ekkert verða fyllilega ljóst í málinu fyrr en um áramót. Þá skaltu skrifa félaginu aftur. Spandau Ballet verður vonandi á plakataskránni áður en langt um líður. Fjórtán ára með æðahnúta Kœri Póstur. Mitt stóra vandamál er œðahnútar. Ég er 14 ára og þegar búin að taka eftir ein- um og ég held að það séu að koma miklu fleiri. Hvað er hœgt að gera við þessu? Þetta er svo Ijótt. Svo er það annað, er til íslenskur aðdáendaklúbbur David Bowie? Ef svo er, hvert er heimilisfang hans ? Bœ, bœ, frú Bowie. Þú ert nú fullung til að eðlilegt geti talist að æðahnútarnir hrjái þig illa. Sennilega er réttast að þú lítir inn hjá lækni og látir hann kíkja á þetta. Æöahnúta er hægt að f jarlægja ef með þarf. Pósturinn veit ekki til þess aö til sé íslenskur aðdáendaklúbbur David Bowie en ef einhver sem þetta les veit um slíkan klúbb er hann vinsamlegast beðinn að senda Póstinum línu. Stórar geirvörtur Elsku Póstur. Ég hef oft skrifað þér en aldrei hefur þú svarað mér. En nú reyni ég enn og vona að bréfið verði birt. Þannig er mál með vexti að ég er með svo stórar geirvörtur. Mér finnst stelpurnar horfa á mig en ég dríf mig bara úr bolnum og í fötin. Elsku Póstur, hvað er hœgt að gera við stórum geirvörtum ? Með þökk fyrir birtinguna. Ein sem vill ekki láta nafns síns getið. Fólk er svo margbreytilegt að allri líkamsgerð. Brjóstin á kven- fólki eru óskaplega mismunandi, sumar hafa stór brjóst, aðrar lítil, sumar bleikar geirvörtur, aðrar brúnar, sumar stórar, aðrar litlar. Þú skalt ekki vera að gera þér neina rellu út af þessu. Það er ekkert athugavert við brjóstin á þér þó að geirvörturnar séu pínulítið stærri en á öðrum stelpum. Þú og jafnöldrur þínar eru mjög ungar og enn að þroskast, sumar ykkar eru með þroskaðri brjóst en aðrar eða einfaldlega dálítið öðruvísi án þess að nokkuð sé athugavert við það. Þú miklar þetta mjög fyrir þér og þar af leiðandi finnst þér stelpurnar stara á þig. Þegar fólk er með eitthvað sem því finnst ööruvísi en er á öðrum er þaö oft svo að það ímyndar sér að aðrir séu stöðugt að glápa á það en venjulega er það tóm della og ímyndun. Reyndu bara að gleyma þessu og láta sem ekkert sé. Getur einhver þýtt fyrir mig úr þýsku? Halló, kœri Póstur! Ég vil byrja á því að þakka þér fyrir þig og fram- haldssöguna LA CE. Ég er Duran Duran-aðdá- andi og kaupi því mörg blöð þar sem eru greinar um þessa frábœru hljómsveit. Þau blöð, sem ég kaupi, eru til dœmis Bravo og Pop Rocky sem bœði eru þýsk. Ég skil ekki mikið íþýsku og ég spyrþví: Hvert er hœgt að senda svona greinar í þýðingu? Þœr eru ofmargar og langar fyrir mig til þess að þýða með orðabók. Hvað heita allar 12 tommu og litlu plöturnar með Duran Duran? Hvað mynduþœr kosta samtals ? DD-aðdáandi. Pósturinn er hræddur um aö þú verðir bara að treysta áfram á orðabækurnar eða fara að læra þýsku á fullu, til dæmis í Bréfa- skólanum eða með Linguaphone. Það er vel hugsanlegt að þú gætir fundiö einhvern til að þýða grein- arnar en það fæst ekki ókeypis og þú gætir þurft aö borga mörg hundruð krónur og upp í nokkur þúsund fyrir vikið eftir því hvað greinarnar eru langar. Pósturinn hefur ekki hugmynd um hvað allar litlu plötumar kosta en þær upplýsingar getur þú örugglega fengiö í næstu plötubúð. Þær litlu plötur, sem Pósturinn veit um, eru: Planet Earth, Careless Memories, Girls on Film, Hungry Like a Wolf, Save a Prayer, Rio, Is there Something I Should Know, Union of the Snake, New Moon on Monday, Wild Boys og A View to a Kill. Sjálfsagt hafa komið út 12 tommu útgáfur með einhverjum ef ekki öllum þessum lögum en um það veit Pósturinn ekki heldur. En, eins og áður sagði, hringdu í næstu plötubúð. Vantar Bravo-blöð Sœll og blessaður, Póstur. Ég er hér einn í svolitlum vandrœðum. Þannig er mál með vexti að ég er að reyna að ná í allt púsluspilið sem var með Duran Duran í þýska blaðinu Bravo. Ég á nœstum því alla hlutina, en vantar nr. 23, 24, 25, 26, 27, 28 og 29. Ég er búinn að reyna nœstum því allt en svo mundi ég eftir Póstinum. Með von um hjálp, John Taylor. P.S. Veit Pósturinn heimilisfangið hjá Bravo og hvort það er hœgt að vera áskrifandi? Fáðu einhvern til að skrifa BRAVO fyrir þig á þýsku og biddu um að fá umrædd blöð og gerast áskrifandi ef þig langar til þess. Utanáskriftin er: Bravo Charles de Gaulle Str. 8 8000 Miinchen 83, Deutschland 37. tbl. Vikan 39
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.