Vikan


Vikan - 12.09.1985, Side 37

Vikan - 12.09.1985, Side 37
á viðskiptum ýmiss konar og fara ótroðnar slóðir í þeim sem öðru. Ástalífið Afmælisböm dagsins eru nokkuð gjörn á að koma sér í vanda í ástarmálum. Þau halda oft að aörir skilji þau betur en þeir gera og ætlast til þess aö þeir hafi frumkvæöið. Með tímanum læra þau að vera áræðnari og þau eru ekki líkleg til að byggja hjónaband á ótraustum grunni. Tilfirininga- lega eru þau stundum nokkuö lok- uð, þykja jafnvel köld, en þau eru jafnframt afskaplega traust. Heilsufarið Yfirleitt eru afmælisbörn dagsins öllum öðrum hraustari en manna seinust að gera sér grein fyrir þeirri góðu vöggugjöf. Happatölur eru 4 og 5. Hagsýni, dugnaður, staðfesta og reglusemi eru einkennisorð þessa dags og afmælisbama hans. Þau eru metnaöargjörn og vinnusöm, vilja gjarnan eiga síðasta orðið í umræðum og vinna vel að hugðar- efnum sínum. Til þess eru þau betur fallin en margir aðrir því þau víla ekki fyrir sér að leggja ómælda vinnu fram til að koma sínu fram. Þau eru oft talin smá- munasöm og það með réttu en samt vilja margir njóta góðs af þessum eiginleika og beita þeim fyrir sér í erfiðum málum. Lífsstarfið Yfirleiti vegnar börnum dagsins vel í viðskiptum. Þau hafa ekki sköpunargáfu eða frumkvæði nema í einstaka tilviki, en eru þeim mun betur fallin til ýmissa skipulags- og úrvinnsluverkefna. Þau eru það nákvæm að þeim er vel treystandi fyrir flóknum verk- efnum á sviði ferða- og mennta- mála. Ástalífið Mannleg samskipti eru kannski veikasti hlekkurinn hjá börnum þessa dags. Þau eru upptekin af sjálfum sér og sínum frama og vanrækja að rækta tilfinningar sínar og tilfinningasambönd. Þau meta vini sína og ástvini á þann hátt sem margir telja heldur kaldranalegan og giftast ekki endilega. Þau eru raungóð og heiðarleg í samskiptum við aðra. Heilsufarið Heilsufarið er nokkuð viðkvæmt hjá afmælisbörnum dagsins. Þau veröa yfirleitt að fara vel með sig og lifa heilbrigðu lífi og sem betur fer segir skynsemin þeim oftast að gera það. Þau ættu að eiga létt með að fara reglubundið í læknis- skoðun og þyrftu að gera það er aldurinn færist yfir. Happatala dagsins er 5. Þeir sem fæddir eru 15. september eru eldhugar mitt í jarðbindingu meyjarmerkisins. Þeir eru hugsjónamenn með heil- brigða skynsemi að vopni. Þeir eru að jafnaði meiri tilfinninga- verur en flestir aðrir sem fæddir eru undir merki meyjarinnar. Þeir eru þó ýmsum kostum búnir sem því merki fylgja, sæmilega hagsýnir og skipulegir en ærsla- fyllri en gengur og gerist með fólk fætt á þessum árstíma. Lífsstarfið Afmælisbörn dagsins hafna oft í hefðbundnum störfum meyja þar sem nákvæmni og skipulagsgáfa skipta máli. Kaupsýsla, hvers konar verslun og skrifstofuvinna koma þar oft við sögu. Einnig kemur fyrir að þau fara út í lækninga- eða hjúkrunarstörf. Liklegt er að við starfsval líti afmælisbörn dagsins á tekju- möguleika ekki síður en starfs- gleði. Ástalífið Ástir afmælisbama dagsins gjalda þess sennilega að þau eru yfirmáta vandfýsin og setja smæstu ókosti svo fyrir sig að þau missa áhuga á ástvini við minnsta tilefni. Afleiðing þessa er sú að miskunnarlaus gagnrýni og vægöarlaust mat á kostum og göllum hins heittelskaða ræður meiru um val á lífsförunaut en til- finningasemi. Heilsufarið Heilsan er yfirleitt í góðu lagi hjá afmælisbörnum þessa dags, það er helst að tilfinningalífið sé veikt fyrir því í skapgerð og kröfum eru nokkrar andstæður. Heillatölur 5 og 6. Sumir segja aö afmælisbörn þessa dags séu kaldlynd og jafnvel kaldrifjuð. Þaö er mikil einföldun. Vissulega lætur þeim manna best að sjá hlutina skýrt og glöggt, skil- greina blákalt það sem aðrir blanda tilfinningunum í. En þau eru einnig talsvert næm og einhvers staðar innst inni búa heitar tilfinningar sem sjaldan fá útrás. Oftar en ekki fá þau þeim útrás á sviði lista og menningar og kemur jafnvel á óvart hversu ólík andans verk þeirra verða þeirri hugmynd sem aðrir gera sér um þau. Lífsstarfið Þaö virðist nokkuð sama hvað afmælisböm dagsins leggja fyrir sig, þeim tekst bærilega upp í flestu því meðfædd reglusemi fyrirmunar þeim að klúðra nema fáu einu. Ferðalög og störf tengd þeim eru ofarlega á blaði. Ástalífið Veikasti hlekkurinn í lífskeðju afmælisbarna dagsins eru ástar- málin. Þar kemur oft upp óvænt bráölæti sem annars er fjarri skapi þeirra og sumir hafa tengt metnaði. Þau velja sér glæsilega maka sem mikið er í spunnið en tilfinningamálin geta orðið flókin þó það leiði sjaldan til vandræða. Heilsufarið Heilsufarið er eins og best verður á kosið hjá þeim sem fæddir eru þennan dag en þeir kunna ekki alltaf að meta þá góðu gjöf og halda sig veikbyggðari en ástæða er til. Heillatölur eru 5 og 7. Andstæður togast á í persónu- leika fólksins sem fætt er þennan dag. Það er rólynt en gefið fyrir tilbreytingu, það er gætið en vill þó alltaf hafa fjör í kringum sig. Það sem helst er hægt að fá botn í er að það vill ekki sjálft vera hreyfiaflið í tilverunni heldur taka þátt í aðgeröum annarra. Það hefur talsverðan metnað og mun það móta líf þess meir en margra annarra. Það gætir þess að koma vel fyrir. Lífsstarfið Yfirleitt hasla afmælisbörn dagsins sér völl á sviöi frjálsrar samkeppni og vilja láta reyna á hvað lífið hefur að bjóða af verald- argæðum, þau er ólíkleg til að hafna í opinberri stöðu nema hún sé eilítið ævintýraleg. Ástalífið Það kemur fyrir að fólk fætt þennan dag hefur frá barnæsku ákveðnar hugmyndir um heppilegan maka sér til handa og þá eru hagnýt sjónarmið, ætt, auður og völd, lögð til grund- vallar. Þetta dæmi gengur ekki alltaf upp en þegar það gerir það er sennilegt að úr verði gott hjóna- band. Heilsufarið Heilsufariö er yfirleitt gott hjá afmælisbörnum dagsins, þaö er helst að þau þurfi að gæta þess að æsa sig ekki að óþörfu og einstaka sinnum verða þau streitusjúk- dómum auðveld bráð. Heillatölur eru 8 og 5. Iðni, elja, dugnaður, þessi orð heyrir maður öðrum fremur þeg- ar afmælisbörnum 18. september er lýst. Þeim verður öllum öðrum meira úr verki, vinna markvisst og vita oftast að hvaða marki þau eru að keppa og setja markið hátt. Það er ekkert ósennilegt að þau nái því samt sem áður því þau vinna afskaplega skipulega og eru allglögg á aðalatriði hvers máls. Þau eru nokkuö góð með sig og hugrökk á andlega sviðinu. Lífsstarfið Fólk dagsins hefur metnað til að sækjast eftir frægð og frama og veraldleg gæði eru því síst á móti skapi. Það hefur elju til að fylgja þeim vilja eftir og feikilegt viðskiptavit. Ekki er hægt aö segja að það velji sér einhvem farveg öðrum fremur heldur er það fyrst og fremst kappsamt um að skara fram úr á því sviði sem það fer út á. Ástalífið Veiki hlekkurinn í lífskeðju afmælisbama dagsins er ástalífið. Þau velja oft að hafna því og það getur orðið erfitt þegar fram í sækir, þegar tómleikinn gerir vart við sig, því þrátt fyrir að þau séu sjálfum sér nóg á flestum sviðum þurfa þau mjög á uppörvun sinna nánustu að halda, ekki síður en al- menningsálitsins. Kostirnir eru þeir að ef þau finna sér maka er hann í langflestum tilfellum hinn æskilegasti. Heilsufarið Heilsufarið er yfirleitt gott hjá afmælisbörnum dagsins, það er helst að höfuðið sé veikt fyrir álagi. Heillatölur eru 9 og 5. 37. tbl. Víkan 37

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.