Vikan


Vikan - 12.09.1985, Side 41

Vikan - 12.09.1985, Side 41
Þýðandi: Anna bara að rápa og sýnast gera eitt- hvað. Ég vil að þið finnið þá sem slá slöku viö, skilið skýrslu um þá og svo komum við þeim héðan...ef þeir vilja þá ekki vinnu í véla- salnum. Það er engin afsökun tekin til greina. Miðað við þær líkur sem eru á atvinnuleysi í framtíðinni ætti maður ekki að þurfa að búa við skert afköst og þeir sem vilja vera hér áfram verða að vinna fyrir hverjum eyri í launaumslaginu sínu . . . eða taka afleiðingunum ella. — Það er fullkomlega rétt athugað hjá þér, sögöu hagræð- ingarfræðingarnir tveir og kinkuðu kolli til áherslu. Síðan tóku þeir skeiðklukkurnar fram og fóru að sinna verkefni sínu. Tveim vikum síðar kallaði Kvasahöj forstjóri þá inn til sín til að heyra hvernig gengi. — Það lítur ekki út fyrir að neitt sé athugavert við vinnuafköstin hjá skrifstofufólkinu, sagöi annar þeirra. Allir hafa nóg verkefni og vinnan er skynsamlega innt af hendi á öllum verkþrepum. Vinnu- hraðinn flokkast næstum undir „of mikinn”. — En skrifstofuneminn, Eiki freknótti, hvað um hann? Hann er næstum allan daginn í kompunni og reykir, er þaö ekki? Á ég aö segja honum upp...eða láta hann vinna í vélasalnum? — Eiki hefur síðastliðna fjórtán daga unnið að meðaltali níu stundir og 13,5 mínútur. Þaö er 73 mínútur og 30 sekúndur yfir það sem hann má vinna mest sam- kvæmt nemasamningunum. — Ökei, gleymum honum! En hvað með yfirbókarann? Hann Pétur gamla? Hann situr þarna og hálfdottar yfir bókhaldinu allan daginn, er það ekki? Og er á eftir með færslurnar? Á ég að láta hann hætta með þriggja mánaða upp- sagnarfresti eða á ég aö bjóða honum verr launað starf á verk- stæðinu? Eða ætti ég að koma honum á eftirlaun? — Pétur vinnur í raun réttri tveggja manna starf, herra for- stjóri. Hann hefur vinnuna með sér heim á hverju kvöldi án þess að taka nokkuð auka fyrir það. Það held ég að verslunarmanna- félagið yröi heldur óhresst með ef þaðfrétti afþví. — Umm...jæja...en hvað með verkamennina í vélasalnum? Það hlýtur að þurfa að verða þar smá, hress uppstokkun? Ég hef séö fjóra fimm menn standa gapandi yfir Sigga þegar hann er á færi- bandinu. Þeir eru þó varla aö vinna fyrir kaupinu sínu, er það? — Það er Siggi sem setur alla nýja starfsmenn inn í verkin. Um leið og þeir eru búnir að sjá hvernig hann ber sig að á færi- bandinu eru þeir komnir á fulla ferð þar líka — svo svitinn drýpur af þeim! — En hvað með manninn sem heldur bjórbókhaldið? Hvernig líst ykkur á að ég láti hann flakka á föstudag... sama hvað verka- lýðsfélagið segir? — Hann er yfir mötuneytinu og er ekki einu sinni á launaskrá. — En verkstjórann? Ég hef lengi haft auga með honum! Hann er bara að fela sig þarna í glerbúr- inu sínu, er það ekki? — Maggi? Hann hefur varla tíma til aö borða hádegismatinn sinn! Þessa fjórtán daga, sem við höfum fylgst með hér, hefur hann tekið sér samanlagt 16 sekúndna hlé og þaö notaði hann til að hnýta skóreimarnar sínar. Kvasahöj forstjóri leit mjög óánægður af öðrum hagræðingar- fræðingnum á hinn. — Þiö eruð allt of meyrir! drundi í honum. Svo barði hann í borðið. — Ég vil fjandakornið fá ein- hverjar niðurstöður! sagði hann. Fyrir hvað haldið þið að ég borgi ykkur? Það var barið varlega að dyrum. Eiki, freknótti skrifstofu- neminn, var að koma með póst dagsins til undirskriftar. Það voru sjö bréf og pöntun til stálfélags í Ruhr upp á 50 tonn af smíöajárni. Þegar Kvasahöj forstjóri var bú- inn að skrifa undir síðasta bréfið og leggja pennann frá sér heyrðist í skeiðklukkum sérfræðinganna tveggja. — Ein mínúta og 35 sekúndur, sögðu þeir og skrifuðu töluna hjá sér. Kvasahöj forstjóri sneri sér við, eldsnöggt. — Hvað í fj... eruð þið að gera? sagði hann öskuillur. Ef þið efist um hæfni mína til að stjórna hér þá er ykkur velkomið aö fylgjast með mér næstu vikuna! Á mánudagsmorgun mætti Kvasahöj forstjóri í vélasalinn í bláum samfestingi og með suðu- gleraugu. Hann fór, eins og hinir nýju verkamennirnir, til Sigga aö læra réttu handtökin viö færi- bandið. Hann þurfti að læra að koma saman bolta og málm- stykki. rtír Stjömuspá Hrúturinn 21. mars 20. april Þessi vika veröur dálítið óvenjuleg hvað snertir félagslíf. Þú munt fara í skemmtilegt sam- kvæmi þar sem ýmis- legt gerist. Þú færð skemmtilega hug- mynd sem reynist ill- framkvæmanleg. Nautið 21. april - 21. mai Vinur þinn gerir þér mikinn greiða. Það er ekki víst að þú gerir þér alveg grein fyrir því hve greiði hans er þér mikilvægur. Mánu- dagurinn verður allt öðruvísi en þú haföir gert ráö fyrir. Tviburarnir 22. maí . ‘ . júni Þú hefur lengi unniö að því að hrinda hug- mynd í framkvæmd. Hún verður nú loks aö veruleika. Þaö er samt eins og þú sért ekki alls kostar ánægður. Þaö stafar af því að áhugi þinn hefur beinst yfir á annað svið. Krabbinn 22. juni 23. júli Nýtt áhugamál tekur mikið af tíma þínum. Líklega verður ást- vinur þinn þér reiöur þess vegna. Leggðu ekki út í neina óvissu í þessari viku, einkum ef peningar eru í spilinu. Ljóniú 24. |úlí 24. águst Þetta verður afar viöburðarík vika fyrir unga fólkiö, ekki sístþaðsem enn er ólofað. Þú heyrir eitthvaö sem þú mis- skilur svo að þú gerir eitthvaö sem þú munt sjá eftir síðar. Meyjan 24. ágúst - 23. sept. Það hefur verið mikiö að gera undan- farið. Nú veröur eitthvað til þess að um fer að hægjast. Reyndu aö nota frístundirnar eins og þú hafðir látið þig dreyma um. Vogin 24. sept. - 23. okt. Ekki vera að gera neitt sem brýtur í bága við samvisku þína. Þér hættir annars til þess í vikunni. Fallir þú í þá gildru ætti það þó að verða til þess að þú hættir að gagnrýna ýmislegt í fari annarra. Sporðijrekinn 24. okt. 23. nóv. Hætt er viö að vikan verði ekki eins og þú vonaðir þótt hún verði engan veginn leiðinleg. Það getur þó verið að þú gerir allt of mikið úr öllu mótlæti þessa dagana og fyllist svartsýni. Bogmaðunnn nóv. 21,des. Líklega verður þessi vika skemmtilegri en sú síöasta. Þaö áttu mest að þakka einum vini þínum. Þú virðist vanrækja ein- hvem í fjölskyldunni og hræsna fyrir öðrum. Stemgeitin 22. des 20. jan. Þekking þín á á- kveðnu sviði verður til þess að þér býðst gott tækifæri sem þú getur ekki notað þér nema að litlu leyti. Vinur þinn veldur þér miklum vonbrigöum. Vatnsberinn 21. jan. 19. fetr. Freistingarnar, sem þú verður fyrir í vikunni, eru óvenju margar. Það er eins og menn sitji og bíði í illkvittni sinni eftir að þú fallir fyrir ein- hverri þeirra. Fiskarnir 20. febr. 20. mars Líklega færðu undar- lega hugmynd í sambandi við stutta ferð sem þú og félagi þinn farið í. Hreinasta della væri aö hrinda henni í framkvæmd. Til þess er tími þinn of naumur. 37. tbl. Víkan 41

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.