Vikan - 12.09.1985, Qupperneq 49
Eldhús Vikunnar
Skilafrestur til 15. september
Um þessar mundir efnir Vikan til verölaunasamkeppni meöal lesenda
sinna um bestu uppskriftir aö skyndiréttum. Veitt verða fimm verðlaun.
Fyrstu verðlaun eru örbylgjuofn frá Einari Farestveit & Co hf. og einnig
veitum við 1000 króna verðlaun fyrir fjórar uppskriftir að auki. Vikan
áskilur sér rétt til að birta innsendar uppskriftir þótt þær fái ekki verð-
laun og verða greidd höfundarlaun fyrir birtingu á uppskrift.
Hvernig á rétturinn að vera?
Við útilokum enga rétti en við teljum helstu skilyrðin vera: Fljótleg
matreiðsla, hráefnin fáist hérlendis á viðráðanlegu verði, hægur vandi
sé að gefa réttinum lystugt útlit og að hann hafi viðunandi næringar-
gildi.
Þátttaka
Allir áhugamenn mega taka þátt í verðlaunasamkeppninni og má
hver senda eina uppskrift. Best væri að fá uppskrift vélritaða á eitt blað
ásamt nafni, heimilisfangi og síma. Ljósmynd þarf ekki að fylgja.
Sendið uppskrift ykkar og merkið hana:
Skotheldir skyndiréttir
Vikan
Síðumúla 33
105 Reykjavík.
Fimm verðlaun fyrir
bestu uppskriftirnar
Fersk laukpylsa
(Matreiðslan tekur 40 mínútur)
200 grömm magurt svínakjöt, skorið í stóra teninga
200 grömm magurt nautakjöt, einnig teningsskorið
1 stór, flysjaður laukur
1/4 lítri ískælt kjötsoð (án fitu)
salt
hvítur, nýmalaður pipar
safi úr hálfri sitrónu
1 teskeið sterkt sinnep
worcestershire-sósa
1. Blandið saman kjötinu og fínhakkið það ásamt
lauknum í hakkavél. Hnoðið svo kjötsoði saman við,
einni matskeið í einu, þar til deigið er svipað að þykkt
og smurostur. Varist að þynna það of mikið.
2. Bragðbætið deigið duglega með salti, pipar, sítrónu-
safa, sinnepi og worcestershire-sósu. Sleppið því að
vandræðast með pylsugerð og þjappið deiginu þess í
stað í leirform. Breiðið álpappír yfir og látið „pylsuna”
standa einn dag í kælinum. Geymið hana ekki lengur en
tvo daga.
Berið fram ásamt hollu brauði og súrum gúrkum.
37. tbl. Vikan 49