Vikan - 05.02.1987, Síða 7
Stjama HoUywood til Tokyo
Það er óhætt að segja að þær
fái ferðaþránni fullnægt, stúlkurn-
ar sem hafa sigrað í þeim fyrir-
sætu- og fegurðarsamkeppnum
sem Vikan hefur kynnt að und-
anförnu. Guðlaug Jónsdóttir, sem
nýlega hreppti titilinn stjarna
Hollywood, mun í byrjun mars
taka þátt í keppninni Miss Wond-
erland sem haldin verður í Tokyo.
Verður þetta í fyrsta skipti sem
íslenskur þátttakandi er með en
keppendur, sem eru einungis frá
Evrópu- og Asíuþjóðum, verða
um fimmtíu talsins. Fyrst mun
Guðlaug fljúga til Rómar, þar sem
allir keppendurnir hittast og
dvelja í nokkra daga. Þá verður
og gerður stuttur stans í Kuala
Lumpur, á Filippseyjum, í Hong
Kong og á Taiwan. Ferðalagið
mun taka þrjár vikur. Guðlaugu
finnst að vonum spennandi að
eiga þess kost að koma til þessara
landa, sem er ólíklegt að hún eigi
eftir að heimsækja annars.
Það eru reyndar fleiri ferðalög
í bígerð hjá stúlkunni. í vor er
meiningin að fara til Parísar að
kynna sér möguleika á fyrirsætu-
störfum og síðar í sumar verður
væntanlega farið í Ibizaferðina
sem allar stúlkurnar í Hollywood-
keppninni fengu að launum. En á
milli ferða ætlar Guðlaug þó að
reyna að vera dugleg í skólánum.
Hún er í fimmta bekk Mennta-
skólans í Reykjavik og fékk frí til
að fara í þetta mikla ferðalag, með
því skilyrði að gleyma skólabók-
unum ekki alveg á meðan...
Guðlaug sem sýningarstúlka.
Texti: Guðrún Alfreðsdóttir
Myndir: Valdís Úskarsdóttir og fleiri
.. .og sem stjarna Hollywood.
6. TBL VIKAN 7