Vikan - 05.02.1987, Page 10
6. tbl. 49. árg. 5.-11. febrúar 1987. Verð 150 krónur.
Guðlaug Jónsdóttir verður
stjarna á meðal stjarnanna í
keppni í Japan á næstunni. Áður
en hún lagði upp í langferðina
brosti hún einu stjörnubrosi í
forsíðumyndatöku. Sigríður
Hannesdóttir og Gunnhildur
Gunnlaugsdóttir eru tveir merkir
viðmælendur í þessari Viku og
prýða þessar þrjár forsíðuna.
Myndirnar tók Valdís Óskars-
dóttir.
ÚTGEFANDI: Frjáls fjölmiðlun hf.
RITSTJÓRI: Þórunn Gestsdóttir.
BLAÐAMENN: Guðrún Alfreðs-
dóttir, Hlynur Örn Þórisson,
Jóhanna Margrét Einarsdóttir,
Unnur Úlfarsdóttir.
LJÓSMYNDARI: Valdís Óskars-
dóttir.
ÚTLITSTEIKNARI:
Hilmar Karlsson.
RITSTJÓRN ÞVERHOLTI 11,
SÍMI (91) 2 70 22.
AUGLÝSINGASTJÓRI: Geir R.
Andersen.
AFGREIÐSLA OG DREIFING:
Þverholti 11, sími (91) 2 70 22.
PÓSTFANG RITSTJÓRNAR,
AUGLÝSINGA OG DREIFINGAR:
Pósthólf 5380,125 Reykjavík. Verð
í lausasölu: 150 kr. Áskriftarverð:
500 kr. á mánuði, 1500 kr. fyrir 13
tölublöð ársfjórðungslega eða
3000 krónur fyrir 26 blöð hálfsárs-
lega. Áskriftarverð greiðist fyrirfram.
Gjalddagar nóvember, febrúar, maí
og ágúst. Áskrift í Reykjavík og
Kópavogi greiðist mánaðarlega.
RÖDD RITSTJÓRNAR I í ÞESSARIVIKU
Eiturlyf
Varúð, varúð eða úlfur, úlfur hefur
verið hrópað í nokkur ár en
ástandið versnar. Fólk, einstakl-
ingar og hópar, hefur varað við
aukinni neyslu fíkniefna hér á
landi og hrópað varúð, varúð, en
neyslan eykst.
Óleyfilegur innflutningur eitur-
lyfja hlýtur að vera flestum aukið
áhyggjuefni. Óprúttnir innflytj-
endur svífast einskis og leiðir
þeirra eru flóknar og viðsjárverðar.
Við fréttum öðru hvoru af störf-
um fíkniefnalögreglunnar og þá
helst að henni hafi tekist að góma
nokkur grömm af eiturlyfjum hér
og þar. Vandi fíkniefnalögregl-
unnar er mikill, skortur á fólki og
tækjum hlýtur að vera henni erfið-
ur Ijár í þúfu.
Það er ógæfa margra að ánetj-
ast fíkniefnum. En ógæfan er ekki
aðeins neytendanna, einnig að-
standenda. Hörmungar eru afleið-
ingar neyslunnar. Við sjáum ekki
fyrir endann á því hvaða afleiðing-
ar aukin fíkniefnaneysla getur haft
fyrir okkar fámennu þjóð.
Það er auðvitað reynt að sporna
við en aldrei nóg gert. Það liggur
við að þjóðin þurfi að sameinast
í sóttvarnaraðgerðum og bægja
þessum vágesti frá. Það er hægt
meðal annars með að grípa til
þeirra sóttvarnaraðgerða að koma
upp um óprúttna sölumenn dauð-
ans.
Kókaín er á „útsöluverði" í Evr-
ópu - það er markaðssetning
sölumanna dauðans að lækka
vöruna. Lækkunina má bæði rekja
til mikillar framleiðslu og eins er
hún til þess ætluð að stækka hóp
viðskiptavinanna. Við förum ekki
varhluta af þeirri „útsölu".
Því er ástæða enn og aftur til
að hrópa varúð, varúð.
4
Kvenréttindafélag íslands átti 80 ára
afmæli á dögunum og heldur listsýn-
ingu af því tilefni. Nokkur sýnishorn
af verkum kvenna á sýningunni.
6
Guðlaug Jónsdóttir, stjarna
Hollywood, er á leið til Japan í
keppnina ungfrú Undraland.
8
Friðrik Á. Brekkan er nafn Vikunnar
og varð hann fyrir valinu vegna hug-
myndar sem hann hef ur varpað fram.
Meira um það á síðu níu.
12
Varúð. Kókaínið heldur innreið I Evr-
ópu. Verðlækkun á „kóki" á megin-
landinu.
20
Sigmar B. Hauksson eldar og eldar,
virka daga sem helga, og við litum
inn einn virkan og fengum að smakka
lifur.
24
Gunnhildur Gunnlaugsdóttir er bú
sett I Portúgal og unir sér þar vel
með eiginmanni og sonum tveim.
H ún segir Ástu Ragnheiði frá lífs-
háttumogfyrritíma.
28
Mission heitir ný kvikmynd um jesú-
ítaprest. Merkur klerkur kemur við
sögu myndarinnar og við litum I dag-
bókina hans.