Vikan - 05.02.1987, Blaðsíða 20
E L D H Ú S
á
Lambalifur og fleíra
- fyrir þá sem eiga ógreidda plastreikninga
Lifrin, beikonið og paprikan skorið í jafnstóra bita.
Það var kominn tími til að leita á náðir harla óvenjulegt; konan sín, Heiga Thorberg,
Sigmars B. Haukssonar, meistarakokks og væri alltaf að vinna eða á fundurn fram yfir
sælkera, með svosem eina uppskrift úr safn- kvöldmat og sonurinn, Haukur, hefði enga
inu. Ekki vildi hann þó blekkja lesendur með sérstaka matarást á sér. Þó fékkst hann til
því að dekka borð (fyrir myndavélina) á að galdra fram þennan ljúffenga rétt, sem
venjulegu þriðjudagskvöldi, því slíkt væri meiraaðsegja Haukurfékksttilaðsmakka!
Ódýr og fljótlcgur lifrarréttur:
400 g lamalifur
200 g beikon
2 grænar paprikur
2 msk. vínedik
salt og pipar
2 stk. niðursoðnir tómatar
I dl kjúklingasoð (teningur)
Lambalifur, beikon og paprika skorið í jafn-
stóra bita. Beikonið steikt á pönnu í matarolíu
og paprikunni bætt út í. Þegar beikonið er
vel steikt er lifrin sett á pönnuna, en þess
gætt að steikja hana ekki of mikið. Þegar lifr-
in tekur lit er vínedikinu hellt á pönnuna,
kryddað með salti og pipar og allt soðið við
vægan hita í eina til tvær mínútur. Þá eru
tómatarnir saxaðir smátt og soðnir í kjúkl-
ingasoðinu í þrjár mínútur.
Með þessu er svo borið fram íslenskt spag-
hettí eða soðin hrísgrjón. Ef spaghettí er notað
er rifnum osti stráð yfir eftir smekk og örlítið
smjör yfir. Ef hrísgrjón eru höfð með eru þau
bragðbætt með sítrónusafa.
Þessi réttur er ódýr en hollur og ef hrisgrjón
eru notuð er hér um tilvalið megrunarfæði
að ræða. - Ekki sakar að hafa glas af góðu
rauðvíni með rétti þessum.
Haukur gefur grænt Ijós á lifrarréttinn hans pabba.
20 VIKAN 6. TBL