Vikan


Vikan - 23.02.1989, Page 8

Vikan - 23.02.1989, Page 8
ÍSLENSK KONA í KOSNINGA- Dóttir Rannveigar, Kristina Rannveig, og tengdasonurinn Jolin. ■ Þegar Barbara Bush gengur inn á fundi og þess háttar samkom- ur stoppar allt. Hún er mjög ákveðin, er með báða fætur á jörðinni og veit nákvæmlega hvað hún á að gera og hvað hún vill... ■ Nancy Reagan var alveg hissa á að ég skyldi vera í repú- blikanaflokknum og að ég væri að styðja hennar mann ... ■ Það er alveg magnað að Pat Nixon skuli ennþá standa á sínum tveimur eftir allt sem hún hefur þurft að ganga í gegnum. Það er ekki annað hægt en að dást að henni. kona. Ég er mjög hreykin yfir því hvað hún hefur verið dugleg að berjast gegn eitur- lyfjaneyslu unglinga. Hún hefúr farið í skóla og á fúndi og talað við unga fólkið til að reyna að fá það til að afneita hassi og kókaíni. Það er alveg voðalegt ástand í þeim eftium. Hún er afskaplega dugleg í að hamla á móti þessum vanda og þessari vit- leysu. Nancy er dugleg og lætur engan vaða yflr sig. Þetta er mitt álit á Nancy Reagan. Kosningabarátta er mikið starf — Ég vann við tvennar ríkisstjórakosn- ingar í Michigan, sem unnust báðar. Þegar við fluggum til San Antonio í Texas var byrjað strax í pólitíkinni. Maður kynntist fleirum og lærði meira um hvernig allt er byggt upp í kosningabaráttunni þegar sótt er um hvers konar embætti, en í Banda- ríkjunum er kosið um mörg embætti. Ég hef verið mjög virk í þessu pólitíska starfi og mér hefur gengið mjög vel enda fengið mikið hrós fyrir og margar viður- kenningar. Kosningastarf kostar mikla vinnu og ég hef ekki bara unnið á sjálfum kosningaskrifstofúnum heldur hef ég tekið heim með mér vinnu. Ég fer yflrleitt snemma að sofa á kvöldin og fer upp á morgnana klukkan þrjú til að undirbúa störf dagsins. Það þarf allt að vera tilbúið fyrir næsta dag. Ég var kosin „presidential elector" fyrir Nixon fyrir svæðið þar sem ég bý og er eins stórt og ísland. Þar býr um ein og hálf milljón manns. Mér fannst þetta alveg sérstakt af því að ég er íslendingur og v'ir valin úr öllum þessum stóra hópi repú- blikana. Ég kynntist frú Nixon. Hún er smávaxin, fíngerð og manni fannst að hún hlyti að vera brothætt. En þessi kona er afskaplega dugleg og sterk. Það er alveg magnað að hún skuli ennþá standa á sínum tveimur eftir allt sem hún hefúr þurft að ganga í gegnum. Það er ekki hægt annað en dást að henni. Hún er alveg einstök kona. Það var svo í Dallas í Texas sem ég kynntist Reagan forseta. Ég var það sem kallað er „vice chairman" í repúblikana- flokknum á mínu svæði. Þegar ég sagðist vera Ranna Diener, þá sagði Reagan að ég talaði með hreim og spurði hvaðan ég væri. Ég sagðist vera frá Reykjavík á ís- landi. Þá spurði hann hvað ég væri að gera hér og vera frá íslandi. Ég sagðist vera þarna til að hjálpa honum í kosningabar- áttunni í beggja þágu. Spennandi og gaman að vinna í pólitík — Eins og ég sagði áður þá kynntist ég Barböru Bush í San Antonio því hún var í Texas af og til. Hún er mjög skemmtileg og alveg indæl kona. Ég held hún Barbara Bush verði ekki eins fataglöð og Nancy Reagan. Hún leggur ekki eins mikið upp úr því að vera glæsileg í klæðaburði. Hún er há og virðuleg kona. Það taka allir eftir henni hvar sem hún fer. Það er ekki bara útlitið heldur og fasið. Mér finnst hún al- veg dásamleg manneskja, hún er svo blátt áfram. Ég held það hafi verið árið 1970 sem ég kynntist þeim Barböru og George Bush. Þau eru elskuleg hjón og fara alltaf saman hvert sem farið er. Hún er góð og sniðug en mjög ákveðin kona. Hún er elskuleg amma og hefur gaman af að blanda geði við fólk. Hún er bandarísku þjóðinni til sóma. Það eru ekki bara forsetakosningar sem eru spennandi. í New-Mexíkó nota fram- bjóðendur oft hesta. Þannig var það til dæmis hjá þingmanninum Manuel Lujan jr. Þó það sé hægt að fara á bíl þá er hent- ugra að fara á hestbaki til að hitta bænd- urna. Það verður að fara og tala við fólkið sem býr úti í sveitunum til að vita hvað það vill og vill ekki, kynnast áhuga þess og áhyggjum. Það verður að hlusta á fólkið og reyna að afgreiða það. Þingmaðurinn er af- skaplega indæll og vel liðinn. Konur eru geysilega duglegar að hjálpa til við kosningar. Ég tala nú ekki um karl- menn sem hafa tíma, eru komnir á eftir- laun og í stað þess að hanga heima, þá bjóðast þeir til að hjálpa þeim sem eru að sækjast eftir embættum. Þetta er hressandi fyrir fólk, það kynnist öðrum og lífgast upp við þetta. Það eru engar kosningar eins. Þess vegna er það bæði spennandi og gaman að standa í þessu. Það hefúr oft komið fyrir þegar einhver er að sækjast eftir embætti og er í vandræðum, eitthvað er á síðustu stundu, þá hefur stundum verið sagt að það verði að hringja í Rönnu. Ég geng allt- af ffá öllu, öllum pappírum og undirbún- ingi á réttum tíma. Það er mjög nauðsyn- legt að skrásetja fólk til að kjósa. Ég hef mjög mikinn áhuga á því. Ég hef sjálf skráð hundruð fólks. Ég hef farið hingað og þangað, gengið hús úr húsi. Ég vil endilega að allir hafi tækifæri til að kjósa. Maður hvetur fólk og segir því að það megi til með að kjósa. Það verða kosningar hér i New-Mexíkó á þessu ári og maður verður að undirbúa sig fýrir það, til að hjálpa ýmsum til að komast í embætti og störf. Þetta hefúr maður gert í öll þessi ár fyrir ekki neitt, ekki einn eyri. Það er ágætt að vera í pólitíkinni en maður verður að hafa áhuga. Þá getur maður farið á fúndi og haft áhrif á að breyta lögum og breytt mörgu sem er orð- ið úrelt og hefur verið óbreytt í mörg herrans ár. Og maður getur haft áhrif ef maður er ekki ánægður með þá sem eru í embættum og hjálpað einhverjum öðrum til að komast að í það sæti. Flugfreyjustarfið er eftirminnilegt — Vissulega er flugið eftirminnilegt. Þegar ég var flugfreyja voru farþegarnir oft kaupsýslumenn í viðskiptaerindum. Þeim 8 VIKAN 4. TBL. 1989

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.