Vikan - 23.02.1989, Side 11
BARÁTTUNNIVESTAN HAFS
hvað fólk getur gert ef það vill fara tii
íslands. Ég hringdi í Flugleiðir og þeir
sendu mér kassann eins og skot þegar þeir
vissu hvað ég ætlaði að gera við þetta, en
auðvitað er þetta auglýsing fyrir þá. Þessar
sýningar hafa gengið alveg konunglega
og það hefur sýnt sig að það er mikiil
áhugi á íslandi og ferðum til íslands. Slíkar
upplýsingar liggja ekki á lausu hérna. Það
er virkilega gaman að tala um fsland hérna
og gefa upplýsingar. Ég hef gert þetta í
mörg ár, ár eftir ár hérna í Albuquerque.
Frá hinum Norðurlöndunum er mikið
sýnt, til dæmis ails konar matur og dansar.
Þetta er gaman en gífurlega mikil vinna
að setja þetta upp og tala svo í marga
klukkutíma á meðan á sýningu stendur. Ég
veit um fólk sem hefur verið í sumarfríi á
íslandi eða í hemum og það spyr um allt
mögulegt, meira að segja um Hauk
Morthens. Ég hef hérna tæki til að spila
lögin hans og ég leyfi þeim að hlusta á þau.
Ég kalla hann Frank Sinatra íslands og ég
segi þeim að hann syngi ennþá og betur
og betur. Fólk spyr margs, hvað íslending-
ar lifi lengi og þess háttar. Ég segi því frá
lýsinu og að það eigi að taka það inn á
hverjum degi. Það geri ég sjálf.
Alltaf tími
fyrir handavinnu
— Ég er með tvö eða þrjú veggteppi
núna sem ég á eftir að klára og nokkra
púða og svo ætla ég að segja stopp. Það er
ekki lengur pláss fýrir allt þetta dót. Fólk
skilur ekkert í því hvað ég hef mikinn tíma
fyrir allt sem ég geri, því ég hef unnið svo
mikið af handavinnu. En ég segi að það sé
alltaf tími. Maður getur alltaf fúndið tíma.
Við unga fólkið sem vill fara á veraldar-
flakk vil ég segja að það þarf að vera af-
skaplega ákveðið í að standa sig sjálft. Það
þarf að passa upp á siðferðið og vera
sparsamt. Unga fólkið á ekki að biðja for-
eldrana um peninga heldur fara að vinna
sjálft.
Þegar ég kom hingað til Bandaríkjanna
fór ég í vinnu eins og skot og sparaði og
sparaði. Ég gekk og fór í strætó og hafði
engan bíl. Sjálf er ég staðráðin í því að
halda áfram að gera mitt besta.
Af því að við vorum áðan að tala um
handavinnu þá get ég nefnt að ég sauma
fötin mín sjálf. Ég lærði að sauma heima á
íslandi, og lærði tungumál og þetta hefur
haft mikla þýðingu fyrir mig.
Ég heimsótti ekki ísland fyrr en ég var
búin að vera úti í þrettán ár og þá hafði ég
flakkað um heiminn. Síðan hef ég farið
nokkrum sinnum í heimsókn. Það var al-
veg dásamlegt á síðastliðnu hausti, en það
er aldrei nógur tími. Næst langar mig til að
koma að sumri til og flakka dálítið um
landið.
Þegar ég fór að heiman var ég rúmlega
tvítug og sé ekki eftir því. Það hefur verið
gaman að sjá sig um í veröldinni. Maður
getur ekki séð neitt nema flakka og skoða
sig um í stað þess að hanga heima.
TEPPI
EINS OG
ÞESSI.GOMLU
GOÐU
Hjá okkur er nú frábært úrval gólfteppa úr ull og ullar-
blöndum. Eitt og sér stendur þó HIGHLAND TWEED
teppið frá STODDARD í Skotlandi. Teppið er úr 80% ull
og 20% nylon (ullin fyrir mýktina og nylonið fyrir slitþolið).
Garnið er bundið með nýrri framleiðsluaðferð sem styrkir
garnbindingu verulega. Teppið vegur 3 kg/m2. Fyrirliggj-
andi eru 3 litir og fjöldi annarra lita fáanlegur.
SENDUM SÝNISHORN
Teppaland
Grensásvegi 13,105 Rvík, símar 83577 og 83430
4.TBL. 1989 VIKAN 11