Vikan - 23.02.1989, Síða 30
TEXTI: BRYNDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR/LJÓSM.: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON
Þorbjörg Bjamadóttir er nemandi í Verzlunarskólanum þar
sem hún er á eðlisfræðisviði. Hún hefúr tekið þátt í Elite
keppninni og er skráð hjá Módelsamtökunum. Vegna námsins
segist hún lítið hafa staríað við fyrirsætustörf en sér bjóðist að
fara til Parísar í sumar og hún sé að hugsa um að taka því.
Sophie málaði Þorbjörgu með nýju sumarlitunum frá Sten-
dahl sem ættu að vera fáanlegir í snyrtivöruverslunum núna.
Hárgreiðslumeistarinn
Guðrún Hrönn sá
um greiðsluna að
þessu sinni. Lokkapermanent
eins og þetta er mjög vinsælt
hjá ungu stúlkunum nú, reynd-
ar er Þorbjörg ekki með perm-
anent en hárinu rúllað upp á
sama hátt. Það er tilvalið íyrir
þær sem langar að fá sér svona
permanent, en þora ekki, að
gera eins og hér er gert - t.d.
fyrir ferminguna — og fá sér þá
permanent seinna ef þeim lík-
ar við sjálfar sig með krullað
hárið.
Guðrún, sem er margfaldur
verðlaunahafi í hárgreiðslu,
hefur verið með eigin stofu
síðan 1983 og er stofan henn-
ar nú til húsa að Laugavegi
163. Hún byrjaði í faginu 1975
og Iauk námi 1977. Hún fór þá
til Þýskalands og vann þar á
mjög góðri stofu í eitt ár, þar
sem hún segist hafa lært margt.
Eftir heimkomuna tók hún
þátt í sinni fyrstu keppni, ís-
landskeppni í hárgreiðslu vor-
ið 1979, og hlaut þá 3. sætið í
kokteilgreiðslu. Keppnisand-
inn var þar með hlaupinn í
hana og hefur hún tekið þátt í
Frh. á bls. 31
FORSÍÐUSTÚLKAN
Margfaldur
verðlaunahafi
. SUMAR ÖFUNDA MIG...
Vikunni höfúm við sagt
frá nokkrum íslenskum
förðunarmeisturum,
hvað og hvar þær hafa
lært og hvernig þær starfa.
Margar hafa farið til Frakklands
að læra, en hvað gera franskir
förðunarmeistarar og hvar
læra þær? Sophie Jeanpierre
var stödd á íslandi fyrir nokkru
og við gripum tækifærið og
fengum hana til að mála for-
síðustúlkuna okkar, Þorbjörgu
Bjarnadóttur, og segja dálítið
frá sjálfri sér.
Sophie starfar hjá því þekkta
snyrtivörufyrirtæki Stendahl
og var hér að kynna vor- og
sumarlitina um leið og hún
kenndi á námskeiði sem Rósa
Matthíasdóttir í Gasa, umboðs-
aðili Stendahl, hélt fyrir starfs-
menn snyrtivöruverslana og
snyrtifræðinga. Sophie sagði
reyndar að á íslandi væri einn
besti markaðurinn fyrir Sten-
dahl vörur miðað við fólks-
fjölda. Sophie býr í hjarta
Parísarborgar og af heimilis-
fangi hennar má ráða að hún
hlýtur að hafa góð laun — og
hún neitar því ekki þegar hún
er spurð. Hún er frá Vichy í
Mið-Frakklandi og eftir stúd-
entspróf fór hún í málanám og
nám í snyrtingu og snyrtivöru-
fræðum í Ecole Superieur des
Carrieres Feminines, sem út-
leggja mætti sem háskóla fyrir
konur á framabraut. Hún sagði
að þetta væri mjög dýr einka-
skóli, þar sem hún hefði lært
þrjú tungumál og mjög margt
um snyrtingu og snyrtivörur.
„Prófið sem ég er með er að-
eins hægt að fá ffá þessum
skóla. Viljið þið vita hvað það
heitir?" Já takk, sögðum við.
„Brevet De Technicien Super-
ieur en Esthetique-Cosmeti-
que“. Og þar höfum við það.
Að námi loknu var hún svo
heppin að fá vinnu hjá Sten-
dahl og vegna þess hversu
mörg tungumái hún talar þá
fær hún að ferðast á vegum
fyrirtækisins um allan heim, en
fyrir utan hana eru aðeins
þrjár aðrar stúlkur sem hafa
sams konar menntun og hún.
Þær skipta 105 Iöndum á milli
sín og eru að ferðast allt árið.
Sophie var hér í viku og strax
daginn eftir síðasta kennsludag
þurfti hún að fara til New York
og þaðan til Kanada þar sem
nýir nemendur biðu hennar.
Sophie sagði að sér þætti starf-
ið afar skemmtilegt og vissu-
lega væru margar stúlkur í
heimalandinu sem öfunduðu
hana af því, en ekki allar þó því
margar segjast ekki geta hugs-
að sér það vegna fjölskyldu
sinnar. Það þarf varla að taka
það ffam að Sophie hefúr eng-
an tíma haft til að stofna fjöl-
skyldu og sagðist ekki geta séð
að það væri á dagskrá á næst-
unni... hún yrði að velja. □