Vikan - 23.02.1989, Qupperneq 32
Kennslan felst m.a. í að læra það sem öllum er hollt að vita. Hér færðu tækifæri til að mynda þín fyrstu alþjóðlegu tengsl.
Sumarieyfið kryddað
með tungumálanámi
Nú er hœgt að fara í sumarskóla allt til Ástralíu,
svo ekki sé nú talað um nœrliggjandi lönd
TEXTI: FRlÐA BJÖRNSDÓTTIR
Þ
að er ekki aðeins skemmtilegt að
eyða sumarleyfinu erlendis, það
getur líka verið mjög svo gagn-
legt ef fólk notar leyfið til þess að
auka markvisst við þekkingu sína á erlend-
um tungumálum. Europæisk Ferieskole er
fyrirtæki sem hefur í rúm tuttugu ár skipu-
lagt sambland af sumarleyfisferð og
skólavist fyrir jafnt unga sem gamla til
landa þar sem menn geta lært ensku,
frönsku, þýsku og spænsku.
Europæisk Ferieskole var upphaflega
stofhaður í Svíþjóð fyrir tuttugu og þrem-
ur árum, en tveimur árum síðar voru opn-
aðar umboðsskrifstofur í bæði Danmörku
og Noregi. Nú eru umboðsaðilar EF í 26
löndum og þar á meðal á íslandi. Fyrir
nokkru komu hingað til lands tvær konur,
Lisbeth Schæffer framkvæmdastjóri og Kir-
sten Tvedegaard deildarstjóri frá EF í Dan-
mörku og hittum við þær að máli í húsa-
kynnum Skóla sf. við Hallveigarstíg, sem er
umboðsaðili fyrir EF hér á landi, auk þess
sem Ferðamiðstöðin hefur annast sölu á
námskeið EF, sem hægt er að fara á víða
um heim.
ÞóHtakendur frá 11 ára
og upp úr
EF-námskeiðin eru haldin í Englandi,
Bandaríkjunum, Kanada, Ástralíu, Frakk-
landi, Þýskalandi, Austurríki og á Spáni.
Þátttakendur geta verið allt frá ellefu ára
og upp úr. Á námskeiðunum fyrir yngri
hópana eru þátttakendur frá 11 — 18 ára,
en hins vegar yngstir 16 ára á námskeiðum
fýrir þá eldri.
Unglingunum gefst kostur á að fara til
Englands, Bandaríkjanna, Ástralíu, Frakk-
lands og Austurríkis á meðan námskeið
fyrir þá eldri eru einnig haldin í Kanada,
Þýskalandi og á Spáni. Unglingarnir eru
yfirleitt í þrjár til fjórar vikur á námskeið-
unum, en þeir eldri gjarnan í tvær vikur,
eða þaðan af meira, jafnvel einar 50 vikur,
allt eftir því hver tilgangurinn með nám-
inu er.