Vikan


Vikan - 23.02.1989, Síða 35

Vikan - 23.02.1989, Síða 35
Hvað geiist ef þú míssir atvinnuna? TEXTI: HRAFNHILDUR WILDE LJÓSM.: PÁLL KJARTANSSON Fyrir nokkrum árum flutti greinar- höfundur ásamt íjölskyldu sinni til Bretlands. Við settumst að inni í miðju landi þar sem atvinnuleysi var töluvert, en ekki eins landlægt og norðar. Samt fannst mér eins og skuggi þessa draugs hvíldi þungt yflr öllu og öllum. Það var geigur í fólki, uggur um eig- in hag og fjölskyldunnar. Og þá var gott að hugsa heim til eyjunnar gullnu í norðri þar sem ætíð skein sól nægrar atvinnu. Það var hressilegt að koma í heimsókn til landsins; varla nokkur hafði tíma til að tala við mig, allir voru í tvöfaldri vinnu. Og trú fólksins á eigin dugnað og getu, bjartsýni „súper- fólksins" verkaði á mig eins og vítamín. Mér er minnistætt samtal við áttræða konu af Vestfjörðum sem ég heyrði í útvarpinu í einni af þessum heimsóknum mínum. í þessu viðtali kvartaði konan hástöfúm um afskiptasemi yflrmanna sinna yfir að vera búnir að taka af sér yflrvinnu. Taldi það skerðingu á persónufrelsi sínu, og tal um að fara að vinna hálfan dag kom ekki til greina af hennar hálfú. En nú er blásið í aðra lúðra á íslandi. Yfirvinna hefúr minnkað, sennilega vegna staðgreiðslu skatta. Og þó að ekki beri mikið á barlómi á yfirborðinu, þá er at- vinnuleysi á íslandi þessa dagana. Ekki hef ég orðið vör við mikla umræðu um þetta mál í íjölmiðlum né heldur fólks í milli. Þetta er feimnismál. íslendingar eru búnir að vera hressir svo lengi, hafa lifað svo hátt að það er erfitt að viðurkenna tilvist draugsins fræga. En hressitalið er hljóðlát- ara en verið hefur. Fyrirferðarlítil smáklaua birtist í DV 24. janúar s.l. á blaðsíðu 4 með yfirskriftinni „Atvinnuleysi fer vaxandi“. Þarna kemur ffarn að í desember 1988 voru 45 þúsund skráðir atvinnuleysisdagar á landinu á móti 20 þúsund í nóvember. Árið 1987 voru tölurnar fyrir desember aftur á móti 14 þúsund. Þetta er aukning upp á 41 %. Þetta var desember en vitað er um fjölda uppsagna sem taka áttu gildi um áramótin. VIKAN kannar málið frá ýmsum hliðum. • Rætt við forstöðumann Ráðningar- skrifstofu Reykjavíkurborgar. • Hvað segja lögin um atvinnuleysisbætur? • Hvernig líður atvinnulausu fólki? • Hvernig bregst bankinn við? • Hvernig er auglýst eftir starfsfólki og atvinnu? • Eru atvinnulausir of stoltir til að láta skrá sig? • Á hvern hátt hefur ísland algera sérstöðu hvað atvinnuleysi snertir í samanburði við nágrannalöndin? • Verður atvinnuleysi áfram feimnismál hér á landi? ENN EITT FEIMNISMÁLIÐ! 4. TBL. 1989 VIKAN 33

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.