Vikan - 04.05.1989, Page 4
EFNI5YFIRUT
VIKAN 4. MAI 1989
9. TBL. 51.ÁRG.
VERÐ KR. 235
VIKAN kostar kr. 180 eintakið í
áskrift. Áskrittargjaldið er innheimt
sex sinnum á ári, fjögur blöð í senn.
Athygli skal vakin á því að greiða
má áskriftina með EURO eða VISA
og er það raunar æskilegasti
greiðslumátinn. Aðrir fá senda
gíróseðla. VIKAN kemur um sinn út
aðra hverja viku. Tekið er á móti
áskriftarbeiðnum í síma 83122.
10 Fegurðardrottning íslands 1989 verður krýnd á sviði Hótel Islands á öðrum degi hvítasunnu, eða
þann 15. maí. Vikan kynnti keppendurna 10 í tveim síðustu tölublöðum. í þessu tölublaði birtast svo
nýjar myndir af þeim öllum og þá einnig í sundbolum. Undanfarnar vikur hafa stúlkurnar búið sig vand-
lega undir keppnina og aðallega notið við það tilsagnar þeirra þriggja sem með þeim sjást á þessari
Ijósmynd, en það eru þær Gróa Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri keppninnar, Katrín Hafsteins í World
Class og Birna Magnúsdóttir, en hún hefur æft stúlkurnar í sviðsframkomu.
Útgefandi:
Sam-útgáfan
Framkvæmdastjóri:
Sigurður Fossan Þorleifsson
Auglýsingastjóri:
Ingvar Sveinsson
Ritstjórar og ábm.:
Þórarinn Jón Magnússon
Bryndís Kristjánsdóttir
Markaðsstjóri:
Pétur Steinn Guðmundsson
Höfundar efnis í þessu tölublaði:
Bryndís Kristjánsdóttir
Þórdís Bachmann
Gyða D. Tryggvadóttir
Guðný Dóra Gestsdóttir
Fríða Björnsdóttir
Úlfar Finnbjörnsson
Björn Hróarsson
Pétur Steinn Guðmundsson
Hróbjartur Lúðvíksson
Gisli Ólafsson
Guðjón Baldvinsson
Sigrún Harðardóttir
Valur Bergsveinsson
Þórarinn Jón Magnússon
Elín Vigdís Hallvarðsdóttir
Ljósmyndir í þessu tölublaði:
Gunnlaugur Rögnvaldsson
Páll Kjartansson
Magnús Hjörleifsson
Þórdís Bachmann
Björn Hróarsson
Sigurður Þorgeirssön
o.fl.
Útlitsteikning:
Þórarinn Jón Magnússon
Setning og umbrot:
Sam-setning
Filmuvinna, prentun, bókband:
Oddi hf.
Forsíðumyndin:
María Björk Sverrisdóttir,
sem nýlega tók þátt í keppninni um
titilinn Frú Heimur 1989.
Ljósm.: Magnús Hjörleifsson.
Sjá nánar bls. 28
7 Lúdó og Stefán voru meðal
vinsælastu hljómlistarmanna
landsins á sínum tíma. Núna
eru þeir komnir fram á sjónar-
sviðið aftur eftir nokkuð langt
hlé og af því tilefni er viðtal við
Stefán í blaðinu núna.
20 New York borg þekkja flestir
af öðru en að þar sé gaman að
vera með börn, en þessi borg
skemmtana, lista og glæpa get-
ur einnig verið borg barnanna.
24 Dans virðist sífeilt vera að
auka vinsældir sínar hér á landi,
enda dansskólum alltaf að
fjölga. I keppnum koma nem-
endur dansskóla Sigurðar Há-
konarsonar yfirleitt einna best
út, en um leið kemur öfundin
upp á yfirborðið. Sigurður er í
Vikuviðtali í þessu blaði.
28 Frú heimur er fegurðarsam-
keppni sem eingöngu giftar kon-
ur fá að taka þátt í og þar að
auki verða þær að vera í traustu
hjónabandi. María Björk Sverr-
isdóttir tók þátt í keppninni í ár
fyrir (slands hönd.
32 Veitingastaðurinn Vetrar-
brautin er sérlega notalegur
staður þar sem maturinn er jafn
góður fyrir augað sem bragð-
laukana og ekki skaðar að eftir
matinn er hægt að fá sér snún-
ing í danssalnum. Meistara-
kokkurinn Úlfar Finnbjörnsson
eldar fyrir matargesti og einnig
fyrir Vikulesendur því hann á
uppskriftirnar sem birtast á
Framanda matarkortunum í
þessu blaði.
36 Leikhúslífið blómstrar með
vorinu og nýlega voru tvö ný
leikrit frumsýnd. Annað þeirra
sýnir útskriftarhópur Nemenda-
leikhússins í Lindarbæ, hitt Al-
þýðuleikhúsið í Hlaðvarpanum.
38 Hendurnar geta komið upp
um aldurinn, sé ekki vel og
reglulega hugsað um þær.
Handsnyrtiþáttur undir leiðsögn
snyrtifræðings hefst í þessu
blaði.
40 Ástin er umfjöllunarefnið í
smásögunni að þessu sinni. Þar
segir á gamansaman hátt frá
því hvernig óframfærinn ungur
maður nær sér i konu.
42 Sumarpeysa í fallegum
mildum litum, prjónuð úr Peer
Gynt garni er í blaðinu nú og
auðvitað fylgir uppskriftin með.
44 Léttari krossgátan.
45 Poppsíðan kynnir Cowboys
Junkies og nýjustu plötu Micha-
el Jacksons.
46 Fyrstu kynni þeirra Sigur-
jóns Péturssonar og Rögnu
Brynjarsdóttur eru til umfjöllunar
að þessu sinni.
48 Draumurinn þinn getur
ræst. Vikan og Bylgjan munu í
sameiningu reyna að láta
drauminn rætast í nýjum leik
sem kynntur er í þessu blaði.
52 Slæður eru mikið í tísku
þessa dagana, en það er hægt
að gera meira við þær en hnýta
þeim um hálsinn eða yfir hárið.
56 íþróttastjarnan F.G. Joyner
vakti heimsathygli á síðustu
Ólympíuleikum ekki aðeins fyrir
frábæran árangur á leikunum
heldur einnig fyrir fagurt útlit.
58 Ferðalögum fylgir vanalega
gisting á hótelum. Hér er sagt
frá nýstárlegum gistimöguleika.
59 Myndasögur.
60 Gæludýraþáttur hefur
göngu sína í blaðinu nú og í
honum verða tekin fyrir alls kon-
ar atriði varðandi gæludýrin,
hvaða nöfnum sem þau
nefnast. Að þessu sinni eru kett-
lingar til umræðu.
62 Krossgátan.
63 Pósturinn.
64 Akstur yfir ár getur verið afar
varasamur. Hér eru gefin nokk-
ur góð ráð og sagt hvað hafa
ber í hug við slíkan akstur á (s-
landi.
66 Stjörnuspáin og síðari hluti
umfjöllunar um þá sem fæddir
eru í nautsmerkinu.
4 VIKAN 9. TBL.1989